Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 8
Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar vill að borgin gefi Rithöfundasambandinu Gunn- arshús, hús Gunnars Gunnarssonar skálds og Franziscu konu hans við Dyngjuveg í Reykjavík. Tilefni gjaf- arinnar er að Reykjavíkurborg er bókmenntaborg Unesco í ár. Húsið var byggt eftir teikningum Hannesar Kr. Davíðssonar arkitekts upp úr 1950 og bjuggu hjónin í því eftir að þau fluttu frá Skriðuklaustri. Tillögu menningar- og ferða- málaráðs hefur nú verið vísað til borgarráðs. Með henni fylgir grein- argerð og þar kemur fram að við gerð fjárhagsáætlunar Reykjavík- urborgar árið 2011 hafi verið sam- þykkt að húsið yrði afhent Rithöf- undasambandinu. kjon@mbl.is Gjöf Gunnarshús, Dyngjuvegi 8. Rithöfundar fái Gunn- arshús Morgunblaðið/Golli Þótt misnotkun samfylking-arstarfsmanna „RÚV“ sé löngu hætt að koma á óvart koma einstök tilvik í þeim tilþrifum enn á óvart.    Vef-Þjóðviljinn segir: „Rík-isútvarpið, síðar nefnt ríkis- stjórnarútvarpið, hvatti mjög til mótmæla á Austurvelli frá hausti 2008 til 1. febrúar 2009. Voru frétta- tímar óspart nýttir til að minna menn á „mótmælin“ á Austurvelli.    Hefðbundin dagskrá var ítrekaðrofin til að sýna beint frá hin- um mikilvægu mótmælum þar sem lögregla var grýtt og barin og skemmdarverk unnin á þinghúsinu og fleiri byggingum og munum í miðbænum.    Í dag hefur verið boðað til sam-stöðufundar sjávarútvegsins gegn skattheimtu- og þjóðnýting- arfrumvörpum ríkisstjórnarinnar. Reykjavíkurhöfn er að fyllast af skipum og bátum og áhafnir á leið á fundinn kl. 16.    En hvar eru hvatningarfréttirríkisstjórnarútvarpsins um fundinn? Hvar er tilkynningin um beina útsendingu frá fundinum?“    RÚV varð frægt þegar það sagðiekki fyrr en eftir dúk og disk frá skaðræðisjarðskjálfta á Suður- landi vegna fótaboltalýsingar.    Og auðvitað gátu þeir ekki gertmótmælendafundi sjávar- útvegsfólks skil, því þá hefðu þeir þurft að rugla dagskrá um Múm- ínálfana, sem einhverjir innan þing- hússins hefðu getað tekið til sín. Múmínálfar STAKSTEINAR 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012 Veður víða um heim 11.6., kl. 18.00 Reykjavík 11 skýjað Bolungarvík 11 léttskýjað Akureyri 8 heiðskírt Kirkjubæjarkl. 11 skýjað Vestmannaeyjar 9 heiðskírt Nuuk 10 léttskýjað Þórshöfn 8 alskýjað Ósló 17 léttskýjað Kaupmannahöfn 15 skýjað Stokkhólmur 17 léttskýjað Helsinki 13 skúrir Lúxemborg 15 skýjað Brussel 15 léttskýjað Dublin 16 skýjað Glasgow 13 skýjað London 12 súld París 17 skýjað Amsterdam 18 léttskýjað Hamborg 17 skýjað Berlín 21 heiðskírt Vín 20 skýjað Moskva 22 skýjað Algarve 26 léttskýjað Madríd 26 skýjað Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 26 léttskýjað Róm 26 léttskýjað Aþena 30 léttskýjað Winnipeg 12 alskýjað Montreal 27 skýjað New York 23 heiðskírt Chicago 27 skýjað Orlando 28 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 12. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:59 23:57 ÍSAFJÖRÐUR 1:33 25:33 SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16 DJÚPIVOGUR 2:16 23:40 MJÓLKURÍS GAMLI ÍSINN Skalli • Ögurhvarfi 2 • 203 Kópavogi • Sími 567 1770 • Opið alla daga kl. 10 - 23 Samningsafstaða Íslands í köflum númer 9 og 24 var birt á vefsíðunni vidraedur.is í gær. Um er að ræða kafla sem varða annars vegar fjár- málaþjónustu og hins vegar dóms- og innanríkismál. Samningsafstaða Íslands í umræddum köflum var send framkvæmdastjórn ESB og aðildarríkjum sambandsins eftir að fjallað hafði verið um hana í við- komandi samningahópum, utanrík- ismálanefnd Alþingis, samninga- nefnd Íslands og hún samþykkt í ráðherranefnd og ríkisstjórn. Í tilkynningu frá utanríkisráðu- neytinu segir m.a. að búist sé við því að viðræður hefjist í viðkom- andi málaflokkum síðar á þessu ári. Einnig kemur fram í tilkynning- unni að Ísland óski eftir því að Við- lagatrygging Íslands, sem veitir tryggingu vegna tjóns af völdum náttúruhamfara, verði undanþegin ákvæðum tilskipunar um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vá- trygginga og endurtrygginga. Þá er í samningsafstöðunni einn- ig lögð fram viðbót við reglugerð ESB um fullnustu óumdeildra krafna sem myndi gera Íslandi kleift að hafna að viðurkenna meið- yrðadóm ef um er að ræða svokall- að meiðyrðamálaflakk sem hafi mikinn málsvarnarkostnað í för með sér. Alls hefur samningsafstaða í 22 af 33 köflum verið birt á vefsíðunni vidraedur.is. Birtu samningsafstöðu í tveimur köflum  Enn á eftir að birta samningsafstöðu Íslands í ellefu mismunandi köflum ESB Afstaðan birt á vidraedur.is.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.