Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012 A ðalsteinn Sigurgeirsson, forstöðumaður Rann- sóknastöðvar skóg- ræktar að Mógilsá, fæddist í Reykjavík, ólst upp í Bandaríkjunum frá fjög- urra til tíu ára aldurs en síðan Kleppsholtinu. Hann var í Lang- holtsskóla, lauk stúdentsprófi frá MS 1981, B.Sc.-prófi í skógfræði við Uni- versity of Alberta í Edmonton í Kan- ada, 1986, lauk doktorsprófi í skóg- fræði með sérmenntun í erfðafræði við Sveriges Lantbruksuniversitet í Umeå í Svíþjóð 1992 og námskeiðum í stjórnun og opinberri stjórnsýslu við Endurmenntun HÍ 2002-2003. Aðalsteinn sinnti skógrækt- arstörfum á sumrum víða á Íslandi 1980-86, var aðstoðarmaður á til- raunastofu með námi 1988-91, sér- fræðingur í skógerfðafræði á Rann- sóknastöð Skógræktar ríkisins 1991-98 og hefur verið for- Aðalsteinn Sigurgeirsson, forstöðumaður að Mógilsá, 50 ára Fjölskyldan Aðalsteinn með eiginkonu sinni, Steinunni, dætrunum Hugrúnu og Borghildi, og syninum Geir. Nytjaskógrækt hér á landi - vannýtt auðlind Kátar skógræktarkempur Jón Loftsson skógræktastjóri, afmælisbarnið og Sigurður Blöndal, fyrrv. skógræktarstjóri, kunna augljóslega vel við sig í Þjóðhátíðarlundinum í Heiðmörk. Myndin var tekin árið 2009. Það er oft þannig að ég fæ góðan morgunmat. Þá fer konanmín til dæmis í bakaríið og kaupir eitthvað. Svo er þettabara svolítið heilagur dagur, maður gerir ekkert nema það sem er skemmtilegt,“ segir bassaleikarinn Jakob Smári Magnússon. Kappinn, sem í dag fagnar 48. aldursárinu, segir ekkert sérstakt á prjónunum fyrir daginn en vonast þó til þess að eiginkonan stjani við afmælisbarnið. „Konan átti afmæli í fyrradag svo þetta er spurning um hversu mikið ég lagði inn þá,“ segir Jakob og hlær. Bassaleikarinn svarar því aðspurður að eftirminnilegasta afmæl- ið hafi verið haldið á Prikinu. „Þegar ég varð 45 ára hélt ég veislu, sem ég geri yfirleitt ekki, á skemmtistaðnum Prikinu. Þar var öllu tjaldað sem hægt var að tjalda! Annars hef ég svona yfirleitt látið þetta fara fram í kyrr- þey.“ Jakob er með nokkur járn í eldinum og er meðal annars að vinna að plötu með Láru. „Við erum að vinna að nýrri plötu sem kemur út í haust og ég er mjög spenntur fyrir því verkefni. Ég spila einnig inn á nýjustu plötu Johns Grants og verð með honum í Háskólabíói 19. júlí,“ segir Jak- ob. davidmar@mbl.is Jakob Smári Magnússon er 48 ára í dag Afmælisbarn Bassaleikarinn Jakob Smári er með nokkur járn í eld- inum og er meðal annars að vinna að plötu með Láru og John Grant. Afmælin yfirleitt haldin í kyrrþey Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Reykjavík Jack Odin fæddist 22. febr- úar. Hann vó 3.495 g og var 49 cm langur. Foreldrar hans eru Meredith Rubin og Josh Rubin. Reykjavík Rósey Hrund fæddist 16. apríl. Hún vó 3.055 g og var 48 cm löng. Foreldrar hennar eru Kristín Clausen og Arnar B. Sigurðsson. Nýir borgarar Elísabet Sól Sig- urðardóttir og Alda Lind Skúla- dóttir héldu tom- bólu við verslun Samkaupa í Hrísa- lundi á Akureyri og söfnuðu 5.539 kr. sem þær styrktu Rauða krossinn með. Hlutavelta Jarðvegsþjöppur - Vatnsdælur - Malbikunarvélar Vinnustaðamerkingar - Vélsópar - Hellulagningatæki A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is Tæki til verklegra framkvæmda Stofnað 1957

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.