Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 10
Fyrir þá sem ekki hafa mikinn tíma til
að fara í ræktina er tilvalið að gera
æfingar heima. Þá getur verið gott að
vafra á netinu og finna góðar leið-
beiningar. Á vegsíðu kanadíska tíma-
ritsins Divine er til dæmis að finna
skemmtilegan tengil þar sem hægt er
að smella á þann líkamspart sem við-
komanda langar til að þjálfa. Til
dæmis ef smellt er á fótlegg þá eru
gefnar upp þónokkrar ólíkar æfingar,
með skýringarmyndum og góðum
leiðbeinandi texta svo allt sé nú rétt
gert. Ein er sú heimaæfing fyrir læri
og rass sem aldrei klikkar og er köll-
uð stóllinn. Hún er mjög einföld: Að
fara með bakið upp að vegg, beygja
sig niður í níutíu gráður, eins og setið
sé á stól. Halda þannig vel og lengi og
gera nokkrum sinnum. Ef þessi æfing
er gerð daglega, þrisvar sinnum tutt-
ugu sinnum í röð, þá skilar hún stinn-
um og finum lærum.
Vefsíðan www.divine.ca/en/fitness-and-nutrition
Magaæfing Hægt er að gera margar æfingar heima til að styrkja líkamann.
Hvaða líkamspart viltu þjálfa?
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
V
ið fljúgum á Ísafjörð í
dag, tökum bát í fyrra-
málið út í Hornvík og
þaðan ætlum við að
ganga upp á Hornbjarg
og hefja gönguna formlega,“ segir
Emelía Blöndal en hún er ein af þeim
sex konum sem ætla að ganga yfir Ís-
land frá vestri til austurs. „Við áætl-
um að vera fjórar vikur á leiðinni og
við ætlum að klára hinn 14. júlí á
Eystrahorni við Höfn í Hornafirði.
Þess vegna köllum við okkur Sex-
urnar Horn í Horn. Enginn hefur
farið þessa leið áður svo við vitum en
þetta eru 640 kílómetrar og við ger-
um ráð fyrir að ganga vel yfir 20 kíló-
metra á dag. Fleiri vinkonur ætla að
slást í hópinn hluta af ferðinni, þrjár
ganga með okkur um Hornstrandir
og vonandi bætast einhverjar við síð-
ar í ferðinni og klára kannski með
okkur.“
Með allt á bakinu
Þær Emilía, Anna Lára, Guð-
rún, Kristín Jóna, Margrét og Sigrún
ætla að ganga niður Hornstrandir
sem leið liggur í Ófeigsfjörð, þá upp á
Trékyllisheiðina og koma niður í
Hólmavík þar sem hvílt verður í einn
dag. „Síðan göngum við Laxárdals-
heiðina inn í Hrútafjörð, svo beint
upp á hálendið og göngum norðan
jökla. Við förum yfir Blöndu á stíflu
og svo förum við inn í landið, jafnvel
með viðkomu í Öskju og þaðan ofan í
Snæfell. Svo göngum við þaðan niður
í Lónsöræfi, sem er mjög falleg
gönguleið.“
Þær ætla að vera með allt á bak-
inu; svefnpoka, dýnur og annað haf-
Sexurnar ganga
Horn í Horn
Á morgun leggja þær upp í mánaðar gönguferð sem þær kalla Horn í Horn. Þær
hefja för í Hornvík á Hornströndum nyrst á Vestfjarðakjálkanum og enda á
Eystrahorni á Austurlandi, rétt við Höfn í Hornafirði. Þetta eru sex hraustar kon-
ur sem eru ýmsu vanar í göngum og víla ekki fyrir sér að sigrast á jökulám.
Ísland krossað Hér má sjá leiðina þegar þær gengu þvert yfir landið frá
Reykjanestá að Fonti á Langanesi og þá sem þær fara nú Horn í Horn.
Garpar Á Þjórsárjökli í Hofsjökli þegar þær þveruðu landið. Sigrún fremst
og fyrir aftan Anna Lára, Margrét, Kristín, Emelía og Guðrún.
Nú á laugardag 16. júní verður hinn
árlegi Gullsprettur, en svo heitir
hlaup í kringum Laugarvatn. Hlaupið
hefst kl. 11 við gróðurhúsið niður við
vatn. Hlaupið verður í kringum Laug-
arvatn yfir ár, mýrar og móa með
frjálsri aðferð. Vegalengdin er um 8,5
km og drykkjarstöð verður við Útey
eftir að Hólárós hefur verið vaðinn.
Tímataka er í hlaupinu. Skráning á
staðnum frá kl. 9 og þátttökugjald er
kr. 2.000 og aðgangur að Fontana
innifalinn. Í ljósi metþátttöku í fyrra,
101 hlaupari, má búast við mörgum
þetta árið og því æskilegt að mæta
tímanlega í skráningu.
Endilega...
...farið í Laug-
arvatnshlaupið
Gullsprettur Hlaupið í kringum
Laugarvatn er yfir ár, mýrar og móa.
Mikka-maraþon verður haldið í fyrsta
skipti næstkomandi sunnudag, 17.
júní, kl. 11, þar sem börn og fullorðnir
geta tekið þátt í léttu skemmti-
skokki. Vegalengdin sem hlaupin
verður er 4,2 km og hlaupið er hugs-
að bæði fyrir byrjendur og lengra
komna, en það er tilvalin fjölskyldu-
skemmtun.
Hlaupinn verður hring-
ur í Laugardalnum og
tími tekinn á öllum
keppendum og úrslit-
in birt á hlaup.is.
Skráð verður í hlaupið á hlaup.is.
Myndir verða teknar í hlaupinu af
hlaupurum og boðið upp á mynda-
töku með Mikka mús í bakgrunni.
Aldursflokkar:
9 ára og yngri
10-12 ára
13-15 ára
16 ára og eldri
Veitt verða aldursflokkaverðlaun
fyrir fyrsta sæti stráka og stelpna í
öllum aldursflokkum. Einnig verður
fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna.
Allir þátttakendur fá sérstaka
Mikka-verðlaunapeninga.
Nánar á hlaup.is.
Skemmtiskokk fyrir alla fjölskylduna
Mikka-maraþon í fyrsta sinn
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.