Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 35
stöðumaður stöðvarinnar frá 1998. Aðalsteinn sat í ritstjórn Scand- inavian Journal of Forest Research 1994-2001, Búvísinda 1998-2004 og „Rits Mógilsár“ frá 1999, var í stjórn Héraðsskóga og Skjólskóga á Vest- fjörðum, í stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur frá 2000 og varafor- maður frá 2002, í stjórn Skógrækt- arfélags Íslands frá 2007, er formað- ur Skógfræðingafélags Íslands frá 2010, situr í framkvæmdaráði Skóg- ræktar ríkisins frá 2003, í embættis- mannanefnd Norrænu ráðherra- nefndarinnar um málefni skóga á Norðurlöndum frá 2005, er fulltrúi Íslands í ýmiskonar norrænni og evr- ópskri samvinnu um skógrækt- arrannsóknir og situr í opinberum nefndum um skógrækt. Aðalsteinn hefur kennt á fjölda námskeiða við Landbúnaðarháskól- ann á Hvanneyri, Garðyrkjuskólann á Reykjum og við HÍ. Hann hefur haldið fjölda fyrirlestra á ráðstefnum og fræðslufundum. Landflæmi og markaðsmögu- leikar til nytjaskógræktar Aðalsteinn er spurður um stöðu ís- lenskrar skógræktar. „Fyrir hrun jókst skógrækt á Ís- landi hraðar en á hinum Norðurlönd- unum. Þá gróðursettum við sex millj- ónir tjáplantna á ári en nú eru þær þrjár milljónir. Grunnauðlind grein- arinnar er tvenns konar: Víð- áttumikið flæmi af ódýru, vannýttu landi sem myndi nýtast til arðbærrar skógræktar, og nánast ótakmarkaðir markaðsmöguleikar. Nú er hver einasta spýta nýtt sem fellur til við grisjun íslenskra skóga. Við gætum selt þúsundfalt meira efni, þó ekki væri nema til innlends járn- blendiðnaðar og markaðsmöguleikar liggja mun víðar. Á endanum snýst þetta um skyn- semi, þolinmæði og langtíma landnýt- ingarstefnu. En við Íslendingar erum óþolinmóð. Þess vegna gætum við aldrei framleitt tólf ára viskí. Nú eru 1,1% þurrlendis vaxin kjarri hér á landi en skógar trjáa sem fara í fimm metra hæð taka yfir 0,4%. Ef einungis 3-4% landsins yrðu nýtt til slíkra skóga nægði það til að binda alla okkar kolefnislosun og yrði í leið- inni arðbær atvinnugrein.“ Fjölskylda Aðalsteinn kvæntist 1991 Stein- unni Geirsdóttur, f. 28.9. 1963, þýsku- kennara við HR og Fjölbrauta- skólann í Ármúla. Hún er dóttir Geirs Geirssonar, f. 4.5. 1939, endurkoð- anda, og Hugrúnar Einarsdóttur, f. 10.4. 1941, fyrrv. umsjónarmanns bóksölu Tækniskólans. Börn Aðalsteins og Steinunnar eru Hugrún, f. 16.7. 1990, þýskunemi við HÍ; Borghildur, f. 7.1. 1993, nemi við MH; Geir, f. 17.1. 2000, grunn- skólanemi. Systir Aðalsteins er Elín, f. 9.2. 1967, tannlæknir, búsett í Kópavogi, gift Kristjáni Hallvarðssyni, verk- fræðingi og framkvæmdastjóra hjá Marel og eiga þau þrjár dætur. Foreldrar Aðalsteins: Sigurgeir Kjartansson, f. 7.3. 1938, skurðlæknir við Landakotsspítala og síðan við LHS, og Halla Sigurjóns, f. 15.11. 1937, d. 31.3. 2002, tannlæknir. Úr frændgarði Aðalsteins Sigurgeirssonar Þorlákur Jónsson b. á Hrauni í Ölfusi Vigdís Sæmundsdóttir húsfr. á Hrauni Siguveig Siguðard. húsfr. á Þykkvabæjarkl. Jón Brynjólfsson b. í Þykkvabæjarkl. Sigríður Brynjólfsdóttir húsfr. á Reyni Einar Finnbogason hreppstj. í Þórisholti Vilborg Andrésdóttir húsfr. í Þórisholti Aðalsteinn Sigurgeirsson Sigurgeir Kjartansson skurðlæknir í Rvík. Halla Sigurjóns tannlæknir í Rvík. Sigurður Jónsson rafv. og bæjarfulltr. í Rvík. Elín Þorláksdóttir ljósm. Kjartan Einarsson b. í Þórisholti Þorgerður Einarsdóttir húsfr. í Þórisholti Einar Brandsson b. á Reyni í Mýrdal Brynjólfur Einarsson b. í Dyrhólum í Mýrdal Þóranna Brynjólfsd. húsfr. í Rvík. Sigurður R Gíslason prófessor í jarðefnafr. við HÍ Guðrún Gíslad. prófessor í landafr. við HÍ Einar Kjartansson b. í Þórisholti í Mýrdal Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastj. Mentor Gísli Þ Sigurðsson rafvirkjam. í Rvík Jón Gíslason forstj. Mast á Selfossi SigurbjörgGíslad. efnafr. hjá Hollustuvernd ríkisins Sigurður Gíslas. arkitekt Rannveig Jónsdóttir húsfr. í Rvík. Karl Eiríksson forstjóri Bræðurnir Ormsson Sigurveig Eiríkd. húsfr. í Rvík. Rannveig H. Kristinsd. móðir Hilmars Arnar Hilmarssonar allsherjargoða Á vinnustaðnum Á Mógilsá á 40 ára afmæli stofnunarinnar. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012 95 ára Þóra Bjarnadóttir 85 ára Kristín Stefánsdóttir Ólöf Sigríður Björnsdóttir 80 ára Ingibjörg Kristjánsdóttir Sigrún Elísabet Sigurðardóttir 75 ára Guðný Skaftadóttir Sheena Gunnarsson 70 ára Geir Hilmar Oddgeirsson Guðbjörg Guðmundsdóttir Guðmundur Bachmann Rúnar Geirsson Sólveig Jónsdóttir Steindór Hermannsson 60 ára Björn Björnsson Elínborg Helga Helgadóttir Gunnhildur J. Lýðsdóttir Haraldur Hinriksson Þórdís Helgadóttir 50 ára Aðalsteinn Sigurgeirsson Björg Bryndís Jónsdóttir Björn Garðarsson Brynhildur Jónsdóttir Kristín Magnúsdóttir Ólöf María Ingólfsdóttir Pétur Sigurðsson Þorbjörg Björk Tómasdóttir Þórdís Úlfarsdóttir 40 ára Agla Huld Þórarinsdóttir Andris Bulins Bjarni Þór Grétarsson Brynjar Helgi Brynjólfsson Dragana Milanovic Erla Júlía Viðarsdóttir Helga Kristín Gilsdóttir Helgi Hinriksson Ingibjörg Úlfarsdóttir Júlíus Helgi Schopka Sigurfinnur Garðarsson Sólrún Snæþórsdóttir Tómas Halldór Pétursson Þröstur Gunnar Sigvaldason 30 ára Andri Karl Elínars. Ásgeirsson Árni Rúnar Karlsson Egill Lynn Thomas Helga Ósk Hreinsdóttir Jóhann Levi Jóhannsson Kristján Karlsson Svavar Kári Svavarsson Tine Ditte Burmeister Þorbjörn Þorgeirsson Til hamingju með daginn 50 ára Tómas fæddist í Reykjavík og ólst upp í smáíbúðahverfinu en er búsettur í Kópavoginu. Tómas lauk prófi í graf- ískri hönnun frá Mynd- lista- og handíðaskól- anum og er sjálfstætt starfandi. Maki Laufey Benedikts- dóttir, f. 1964, kennari. Börn Tvíburarnir Tómas Aron og Erla Mjöll, f. 1994 og Haukur Már, f. 1995. Foreldrar Tómas Sig- urjónsson, f. 1922, d. 1999, og Jóhanna Laufey Óskarsdóttir, f. 1924. Tómas Sigurjón Tómasson 60 ára Sólrún ólst upp í Kópavogi og býr í dag í Mosfellsbæ. Sólrún vinn- ur á elliheimili við um- mönnun. Maki Ólafur H. Einarsson, f. 1948, húsasmíðameist- ari og starfar hjá MR. Börn Hugrún Ósk, f. 1975, viðskipta- og sam- skiptafræðingur hjá Penn- anum, Einar Hreinn, f. 1978, sjúkraliði Hlein hjá Reykjalundi og Daníel Óli, f. 1991, mennta- skólanemi. Foreldrar Jón Magússon, f. 1927, d. 1998, og Unnur Lárusdóttir, f. 1928. Sólrún Maggý Jónsdóttir Ásta Kristín Erlingsdóttir,grasalæknir, fæddist 12. júní1920, að Haukalandi í Öskju- hlíð í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Erlingur Filippusson grasa- læknir, f. 1873 og Kristín Jónsdóttir, f. 1881. Ásta er komin af grasalækn- um langt aftur í ættir. Hún nam listina af föður sínum sem var sonur Grasa-Þórunnar er bjó í Kálfafells- koti í Fljótshverfi, sú lærði af móður sinni sem líka hét Þórunn. Ásta Kristín giftist Einari Jóns- syni og eignuðust þau sex börn, þó nokkrir afkomendur hennar fást einnig við grasalækningar. Segja má að grasalækningar hafa verið eins konar heimilisiðnaður. Í uppvextinum var gestkvæmt á heim- ilinu því faðir hennar fékk iðulega sjúklinga heim sem fengu bót meina sinna á öllu mögulegu. Ásta kynntist einnig ömmu sinni Grasa-Þórunni sem var hafsjór af fróðleik, ákveðin og skýr en hún kom mörgum til hjálpar í starfi sínum sem ljósmóðir. Í frjálsræðinu í Öskjuhlíðinni lagði jafnan steka lykt af jurtum því Erlingur sauð í eldhúsi sín grasame- ðul. Æska Ástu endaði um fermingu þegar móðir hennar lést frá stórum barnahóp og gekk Ásta þeim yngri í móður stað. Ásta ferðaðist mikið um landið og safnaði jurtum og leitaði að heppi- legum uppeldisstöðum þeirra jurta sem áhugi hennar beindist að. Hún átti margar uppáhalds jurtir því hún vissi hversu góðar þær væru en sagði jafnframt, „ég er eins og sauð- kindin. Tíni það sem mér finnst best og líklegast til að skila góðum ár- angri.“ Jurtirnar notaði hún ekki einungis í að brugga seiði og búa til smyrsl heldur bjó hún einnig til jurtaliti og málaði myndir með þeim. Náttúrulækningafélag Íslands veitti henni viðurkenningu fyrir ára- tuga starf við meðhöndlun íslenskra jurta til heilsubótar. Atli Magnússon setti saman end- urminningar Ástu, Ásta grasalækn- ir, líf hennar og lækningar og dul- ræn reynsla, sem kom út 1987. Ásta Kristín lést 8. júlí árið 2005. Merkir Íslendingar Ásta Kristín Erlingsdóttir 40 ára Óskar Pétur ólst meðal annars upp í Ísrael og Hornafirði, en hefur búið í Reykjavík síðustu 20 ár. Hann lauk MS-prófi í verkfræði frá HÍ árið 2000 og starfar sem vélaverkfræðingur hjá Verkís. Kona Guðrún Eva Jó- hannsdóttir, f. 1978, jarð- fræðingur og starfar hjá Mannvit. Dóttir Jóhanna Eldey, f. 2008. Foreldrar Einar Ósk- arsson, f. 1952, og Guð- rún Ingimundadóttir, f. 1952. Óskar Pétur Einarsson „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæð- ingum eða öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Hádegisverðartilboð Tvíréttað í hádegi frá 1.890,- Fljót og góð þjónusta Veitingastaður / verslun Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.