Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012
AF TÓNLIST
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Spænska söngkonan ConchaBuika reyndist svo sannar-lega biðarinnar virði. Hún
átti að halda tónleika í Eldborg á
vegum Listahátíðar í Reykjavík
þann 3. júní sl. en veiktist og því
þurfti að fresta tónleikunum. Sex
dögum síðar steig Buika á svið Eld-
borgar, búin að ná sér. Buika var í
ógnarstuði á tónleikunum og með-
reiðarsveinar hennar, þeir René
Toledo sem lék á gítar og Ramón
„Porrina“ Suárez Escobar sem lék
á ásláttarhljóðfærið cajón fla-
menco, stóðu sig eins og hetjur.
Tónlistarlegar rætur Buiku
liggja í flamenkótónlist og sú tón-
list var mest áberandi á tónleik-
unum. Söngur Buiku var ástríðu-
fullur og ákafur, tjáningin leikræn
og í dramatískustu lögunum var
ekki annað að sjá en söngkonunni
væri mikið niðri fyrir, slík var túlk-
unin og treginn, röddin fallega rám
og brothætt. En þrátt fyrir mikla
dramatík var alltaf stutt í gleðina,
Buika sló á létta strengi milli laga
og jafnvel inni í miðjum lögum.
Gestir hlógu innilega að athuga-
semdum hennar og fallegri en dá-
lítið einfaldri lífsspeki, m.a. vanga-
veltum um eðli ástarinnar og hvort
fuglar veltu því fyrir sér hvort
rödd þeirra væri falleg. Buika
greindi gestum frá því að hún hefði
slitið sambandi við unnusta sinn
fyrir skömmu og grátið í heila viku.
Það væri auðvitað bölvaður kjána-
skapur, nóg væri nú til af mynd-
arlegum karlmönnum í heiminum!
Bað hún Guð um að senda sér ein-
hvern myndarlegan næst og þá
yngri en þann síðasta. Og eftir há-
dramatískan inngangskafla í
ónefndu lagi hætti hún skyndilega
að syngja og fór að tala um kjólinn
sinn, að hætta væri á því að tón-
leikagestir sæju á henni brjóstin,
hún ætti fullt í fangi með að halda
þeim innan klæða.
Buika hóf leikinn með trompi,
hinu ægifagra „No habrá nadie en
el mundo“ og fann blaðamaður
hvernig gæsahúðin hríslaðist um
líkamann undir sjóðandi heitum
flutningi þessarar frábæru söng-
konu. Eftir það ávarpaði hún gest-
ina og sagðist telja Ísland „heitt“
og þjóðina sömuleiðis. Sama hafði
hún sagt við blaðamann nokkrum
vikum fyrr sem og að gestirnir
væru ættbálkurinn hennar, ein stór
fjölskylda. Eftir að hafa skjallað Ís-
lendinga stutta stund renndi hún
með félögum sínum í næsta lag og
ekki síður fallegt, ballöðuna „Mi
niña Lola“ af samnefndri breið-
skífu hennar. Tónleikarnir voru þó
ekki allir á rólegu nótunum, Buika
steig villtan flamenkódans, svipti
upp um sig kjólnum og gleymdi sér
svo í ákafanum að hún söng fjarri
hljóðnemanum þannig að lítið sem
ekkert heyrðist til hennar. Það
gerði ekkert til, tónleikagestir hrif-
ust með og var ekki annað að sjá en
að margir ættu erfitt með að sitja
kyrrir í sætum sínum. Inn í flutn-
inginn fléttaðist svo djasskotinn
söngur á köflum og Buika teygði
raddböndin sundur og saman.
Þegar Buika og félagar höfðu
leikið í um eina og hálfa klukku-
stund var tónleikunum lokið, tím-
inn flaug svo sannarlega hratt
þetta kvöld. Gestir voru þó ekki á
því að sleppa þríeykinu, vildu
meira og fengu eitt lokalag. Buika
ljómaði eins og sólin, líkt og hún
hefði aldrei verið klöppuð upp áður
og bað um að ljósinu yrði varpað á
tónleikagesti svo hún fengi að sjá
„fjölskylduna sína“. Og hún endaði
með trompi, líkt og hún byrjaði,
með „Mentirosa“, eða „Lygak-
vendi“. Takk fyrir Buiku, Listahá-
tíð.
Ólgandi ástríða og notaleg gæsahúð
» Bað hún Guð umað senda sér ein-
hvern myndarlegan
næst og þá yngri en
þann síðasta.
Ljósmynd/Kristinn Svanur Jónsson
Frábær Buika í Eldborg með René Toledo og Ramón „Porrina“ Suárez Escobar. Tónleikarnir voru gríðarvel
heppnaðir og söngkonan heillaði gesti með söng sínum, tilfinningaríkri túlkun og skemmtilegri sýn á lífið.
Hljómsveitirnar Jónas Sigurðsson
og Ritvélar framtíðarinnar, Prins
Pól og Ojba Rasta koma fram á tón-
leikum í Höfn í Hornafirði sem bera
yfirskriftina Humarþruman og
verða haldnir föstudaginn 22. júní.
Mun þá standa yfir Humarhátíð
Hafnar í Hornafirði. Tónleikarnir
hefjast kl. 21.30.
Degi síðar munu sömu hljóm-
sveitir koma fram á Partíþokunni,
Jónsmessuhátíð á Seyðisfirði. Hins
vegar eru það Snorri Helgason,
Mr. Silla og Hugleikur Dagsson
sem skemmta á Partíþokunni degi
fyrr, 22. júní. Á fésbókarsíðu Partí-
þokunnar segir að um sé að ræða
„sannkallaða nautnahátíð sem inni-
heldur tónleika, uppistand, jóns-
messubrennu, tjaldútilegu, og allan
þann góða mat sem fjörðurinn er
annálaður fyrir“.
Humar Mr. Silla kemur fram á
Humarþrumunni og Partíþokunni.
Partíþokan og
Humarþruman
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
PROMOTHEUS 3D Sýnd kl. 4 - 7 - 10 (Power)
SNOWWHITEANDTHEHUNTSMAN Sýnd kl. 4 - 7 - 10
MEN IN BLACK 3D Sýnd kl. 5 - 8
THE FIVE YEAR ENGAGEMENT Sýnd kl. 10:15
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
HHHH
“SCOTT TEKST AÐ SKAPA
RAFMAGNAÐA STEMNINGU Í
PROMETHEUS”
-V.J.V., SVARTHOFDI.IS
Þriðjudagstilboð
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
HHHH
-ROGER EBERT
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
Moonrise
Kingdom
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐÞRIÐJUDAGSTILBO
Ð
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ GILDA EKKI Í BORGARBÍÓI
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
FRÉTTABLAÐIÐ
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
PROMETHEUS KL. 5.50 - 8 - 10.15 16
SNOW WHITE AND THE... KL. 8 - 10.15 12
MIB 3 3D KL. 6 10
PROMETHEUS 3D KL. 6 - 9 16
MOONRISE KINGDOM KL. 5.50 - 8 - 10.10 L
SNOW WHITE AND THE HUNTSMAN KL. 9 12
MIB 3 3D KL. 6 - 9 10
GRIMMD:SÖGUR AF EINELTI KL. 5.45 10
MORGUNBLAÐIÐ
PROMETHEUS 3D KL. 5.20 - 8 - 10.30 16
PROMETHEUS 3D LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.30 16
PROMETHEUS 2D KL. 5.20 - 8 - 10.30 16
SNOW WHITEAND THE HUNTSMAN KL. 8 - 10.40 12
MIB 3 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 10
MIB 3 2D KL. 5.30 10
LORAX – ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 L
LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 3.30 L
LEITIN AÐ UPPRUNA OKKAR GÆTI LEITT TIL ENDALOKANNA
„SCOTT ... TEKST AÐ SKAPA RAFMAGNAÐA
STEMNINGU Í PROMETHEUS“
-V.J.V., SVARTHOFDI.IS
- ROGER EBERT