Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012 Ríflega þrjú hundruð krakkar á aldrinum 12-16 ára settust í gær á skólabekk í Háskóla unga fólksins sem starfræktur verður í Háskóla Íslands í þessari viku. Þetta er í níunda skipti sem Há- skóli unga fólksins er starfandi. Samkvæmt upplýsingum frá HÍ er nemendahópurinn í ár afar fjöl- breyttur og kemur alls staðar af landinu. Þá eru í hópi nemenda verðlaunahafar í Nýsköp- unarkeppni grunnskólanna 2011. Kennsla í Háskóla unga fólksins er í höndum fræðimanna og fram- haldsnema við Háskóla Íslands. Auk námskeiða í einstökum greinum hafa nemendur valið sér eina námsgrein á svokölluðum þemadegi miðvikudaginn 13. júní. Botninn verður sleginn í Háskóla unga fólksins á lokahátíð á Háskólatorgi föstudaginn 15. júní. Glímt við fréttaskrif Nemendur í blaða- og fréttamennsku í Háskóla unga fólksins. Háskóli unga fólksins settur Á stofnfundi Samtaka kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg sem haldinn var í síðustu viku, var samþykkt ályktun þar sem mót- mælt er lokun götunnar fyrir bílaumferð. Í ályktuninni segir m.a. að mjög hafi dregið úr verslun þá daga sem Laugavegur hafi verið lokaður fyr- ir bílaumferð. Nær væri að lækka bílastæðagjöld og fjölga bílastæð- um í götunni. Einnig myndi það auðvelda aðgengi að verslunum að fella niður gjaldskyldu á svæðum nærri Laugavegi. Mótmæla lokun Laugavegar fyrra og 20.957 á þessu ári, en miðað er við nýársdag. Það er því enn nokkuð í land með að hér verði jafnmargir erlendir ríkisborgarar og á nýársdag 2009. Með sama áframhaldi munu þeir hins vegar senn verða jafn margir og á nýársdag 2010. Sögulega mikið atvinnuleysi Þessi þróun er athyglisverð með hliðsjón af þróun atvinnuleysis á tímabilinu. Þensluárið 2007 var 1,3% atvinnu- leysi í janúar og alls 1.977 manns án vinnu. Árið eftir var 1% atvinnuleysi í janúar og 1.545 manns án vinnu. Í janúar 2009 var 6,6% atvinnuleysi og 10.456 ein- staklingar án vinnu. Árið eftir var 9% atvinnuleysi í janúar og 14.705 manns án vinnu. Í janúar 2011 var 8,5% at- vinnuleysi og 13.458 ein- staklingar án vinnu, en í janúar í ár var 7,2% at- vinnuleysi og 11.452 ein- staklingar án vinnu. Sú þver- stæða liggur þó fyrir að í sumum greinum gengur illa að finna Íslendinga í störf, líkt og fjallað er um hér til hliðar. Vaxandi straumur til landsins  Um 460 fleiri erlendir ríkisborgarar voru skráðir í utangarðsskrá fyrstu mánuði ársins en árið 2010  Verði aukningin frá því í fyrra jafn mikil út árið munu ríflega 4.400 manns fara í skrána á þessu ári Nýskráning á utangarðsskrá 2010 - 2012 350 300 250 200 150 100 50 0 Jan. Feb. Mars Apr. Maí 2010 (samt.: 758) 2011 (samt.: 899) 2012 (samt.: 1.217) 276 327 272 186 247 217 Heimild: Þjóðskrá Ísland Nýskráðir á utangarðsskrá (Þar með talin andvana fædd börn) 16000 14000 12000 10000 8000 6000 4000 2000 0 2006 2007 2008 2009 2010 2011 20121) 20122) 1) Jan. - maí. 2) Spátala fyrir allt árið 2012 13.692 4.4052) 1.2171) 3.254 2.6752.850 9.258 14.888 FRÉTTASKÝRING Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ríflega 300 fleiri erlendir ríkisborg- arar voru skráðir í svonefnda ut- angarðsskrá Þjóðskrár Íslands á fyrstu fimm mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra og er bilið enn breiðara ef árið 2010 er haft til við- miðunar. Þannig fóru 1.217 erlendir ríkisborgarar í skrána á þessu tíma- bili í ár en 899 í fyrra og munar þar 318. Árið 2010 komu 758 erlendir ríkisborgarar til landsins á þessum mánuðum og fóru í þessa skrá eða 459 færri en í ár. Í prósentum talið fóru 35% fleiri í skrána í ár en sömu mánuði í fyrra. Alls fóru 3.254 í utangarðsskrána allt árið í fyrra og ef aukningin verð- ur jafn mikil út þetta ár, eða 35%, munu 4.405 fara í skrána árið 2012. Það er mun lægri tala en árið 2008 þegar 9.258 fóru í skrána og enn lægri en árið 2007 þegar 14.888 fóru í hana. Þá fóru mun fleiri í skrána 2006 eða 13.692. Hitt er ann- að mál að ef 4.405 fara í utangarðs- skrá í ár verður það mesti fjöldi síð- an 2008. Lá skipting eftir þjóðerni ekki fyrir þegar fréttin var í vinnslu. Frekari vísbending Fjölgunin í utangarðsskrá, sem er útskýrð hér til hliðar, er frekari vís- bending um að erlendum ríkis- borgurum sé tekið að fjölga á ný. Samkvæmt tölu Hagstofu Íslands komu hingað 600 erlendir ríkisborg- arar á fyrstu þrem mánuðum ársins en 450 fluttust frá landinu. Um 150 fleiri settust því að á landinu en fluttust í burtu og skal tekið fram að hér er um að ræða aðra skrá en títt- nefnda utangarðsskrá. Til frekari fróðleiks skráði Hag- stofa Íslands 18.563 erlenda ríkis- borgara hér á landi 2007, 23.421 er- lendan ríkisborgara 2008, 24.379 einstaklinga í sama hópi 2009, 21.701 einstakling 2010, 21.143 í „Mörg fyrir- tæki hafa að undan- förnu kvart- að undan því að erfitt sé að manna sum störf. Þá er ég að tala um störf í tækni- og hugbúnaðargreinum, málmiðn- aði og tengdum greinum. Svo hefur í sumum tilfellum verið erfitt að fá fólk til starfa í ferðaþjónustu og þá fyrst og fremst í þjónustustörfum,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um þá mótsögn að hingað streyma erlendir ríkisborgarar í atvinnuleit á tímum mikils atvinnuleysis. „Það er skoðun okkar í Samtökum atvinnulífsins að það hafi ekki verið unnið nógu markvisst að því að koma at- vinnulausum af skrá og út á vinnumarkað. Svo er annað mál að margir þeirra sem eru án vinnu vilja ekki fara í lág- launastörf. Það er einhver hópur sem velur frekar að vera á bótum. Svo er stór hópur sem er án vinnu og vill vinna. Maður hefur heyrt það úr ferðaþjónustunni að það hafi ekki gengið of vel að manna sumar stöður. Í staðinn kemur fólk frá útlöndum og þá þarf ekki alltaf atvinnumiðlanir til,“ segir Vilhjálmur. Vilja ekki vinna störfin FYRIRTÆKIN KVARTA Vilhjálmur Egilsson Þær upplýsingar fengust hjá Þjóð- skrá Íslands að nýskráningar í utangarðskrá miðuðust við skrán- ingardag, þ.e. vinnsludag. Inn í þessar tölur vantaði upplýsingar um EES-ríkisborgara sem flytja lögheimili sitt við fyrstu skrán- ingu til landsins og færu þar af leiðandi aldrei í utangarðskrá. Með skráningu í utangarðsskrá er viðkomandi kominn með íslenska kennitölu og skráð aðsetur á Ís- landi. Utangarðsskrá er skrá yfir er- lenda ríkisborgara sem aldrei hafa haft skráð lögheimili á Íslandi. Í utangarðsskrá er skráning á dvalarstað hér á landi ekki jafn nákvæm og skráning á lögheimili í þjóðskrá. EES-ríkisborgarar sem koma hingað mega dvelja hér á landi í allt að þrjá mánuði án þess að skrá lögheimili hér á landi, en sex mánuði ef þeir eru í atvinnuleit. Skráning í utangarðsskrá er oft undanfari lögheimilisskráningar í þjóðskrá, en sumir EES-ríkisborg- arar skrá lögheimili strax við fyrstu komu til landsins. Meiri kröfur eru gerðar þegar sótt er um lögheimilisskráningu en til að komast í utangarðs- skrána. Er þar um að ræða skilyrði sem gerð eru til EES-ríkisborg- ara, svo sem framfærslu- skilyrði. Utan- garðsskráin er því um margt ágætur mæli- kvarði á straum er- lendra rík- isborgara til landsins. Fá íslenska kennitölu INNFLYTJENDUR INNAN OG UTAN EES-SVÆÐISINS Flytja þarf inn erlent vinnu- afl þessa dag- ana. Michael E. Mann, prófessor við Penn State Uni- versity, flytur á morgun, miðviku- dag, fyrirlestur í Háskóla Íslands um loftslagsmál. Mann, sem er einn þekktasti loftslagsvísindamaður heims, fjallar um rannsóknir sínar og það hvernig línuritið sem kennt er við „hokkíkylfuna“ varð að þekktustu táknmynd hins svonefnda loftslags- stríðs. Fyrirlesturinn, sem er öllum op- inn, verður í Odda, stofu 101, og hefst klukkan 12. Fyrirlestur um loftslagsstríðið Michael E. Mann Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is LÁTTU OKKUR SJÁ UMHEIMILISÞVOTTINN! LÍTIL VÉL 7 KG. 1.790 KR. STÓR VÉL 15 KG. 3.290 KR. Efnalaug - Þvottahús SVANHVÍT EFNALAUG - NÚ Á ÞREMUR STÖÐUM Hverafold 1-3, 112 Reykjavík Grettisgötu 3, 101 Reykjavík Smáralind, 201 Kópavogur STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.