Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 13
Útgefandi
Reginn hf., kt. 630109-1080, Hagasmára 1, 201
Kópavogi, www.reginn.is.
Hlutafé útgefanda
Heildarfjöldi útgefinna hluta í Regin er
1.300.000.000 hlutir. Þeir eru allir í einum flokki.
Seljandi
Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf.,
kt. 471008-0280, Austurstræti 11, 155 Reykjavík.
Áskriftartímabil
Útboðið hefst kl. 10:00 þann 18. júní
og lýkur kl. 16:00 þann 19. júní.
Verðbil og útboðsgengi
Að áskriftartímabilinu loknu mun seljandi
ákveða útboðsgengi sem verður það sama til
allra sem taka þátt í útboðinu. Útboðsgengið
verður á verðbilinu 8,1-11,9 kr. á hvern hlut
í Regin. Seljandi mun byggja ákvörðun sína
um útboðsgengi á þeim tilboðum sem berast
í útboðinu að teknu tilliti til markmiða sinna
með útboðinu.
Fyrirkomulag útboðs
Útboðið er tvískipt. Í tilboðsbók eru til sölu
633.750.000 hlutir eða sem nemur 48,75% af
heildarhlutafé í Regin. Í áskriftarhluta eru til
sölu 341.250.000 hlutir eða sem nemur 26,25%
af heildarhlutafé í Regin. Ein áskrift er heimil
fyrir hverja kennitölu í útboðinu. Þátttaka
í útboðinu er skuldbindandi fyrir fjárfesta.
1. Tilboðsbók – áskriftir að lágmarki
50 m.kr. að kaupverði
Í tilboðsbók skila fjárfestar áskrift sinni til
umsjónar- og/eða söluaðila á sölutímabilinu á
sérstöku áskriftareyðublaði sem nálgast má hjá
Fyrirtækjaráðgjöf og Markaðsviðskiptum Lands-
bankans.
2. Áskriftahluti – áskriftir á bilinu 100.000-
49.999.999 kr. að kaupverði
Fjárfestar skrá áskriftir sínar á áskriftarvef
Landsbankans, sem opinn verður á áskriftartíma-
bilinu: www.landsbankinn.is/reginnutbod. Til
að skrá áskriftir sínar verða fjárfestar að hafa að-
gang að netbanka, sem getur verið hvaða íslenski
viðskiptabanki sem er.
Fjárfestar skrá kennitölu sína og panta lykilorð
á áskriftarvefnum sem þeir fá sent sem rafrænt
skjal í netbanka sinn. Fjárfestar geta skilyrt
áskrift sína við það að endanlegt útboðsgengi
fari ekki umfram ákveðið hámarksverð á hlut.
Ef fjárfestir tilgreinir ekkert hámarksverð í
áskrift sinni skoðast áskriftin sem gerð á útboðs-
gengi.
Úthlutun og skerðing áskrifta
Áskriftir undir útboðsgengi verða ekki sam-
þykktar og aðilar sem bjóða verð undir útboðs-
gengi eða tilgreina hámarksverð sem er undir
útboðsgengi fá ekki úthlutað hlutum í útboðinu.
Áskriftir í tilboðsbók sem eru á og yfir útboðs-
gengi verða samþykktar. Ef umframeftirspurn
verður í þessum hluta útboðsins verða áskriftir
í tilboðsbók skertar hlutfallslega, með tilliti til
heildartilboðsfjárhæðar tilboðsgjafa sem buðu
á og yfir útboðsgengi að teknu tilliti til tilboðs-
gengis þeirra.
Áskriftir í áskriftarhluta sem eru á útboðs-
gengi og hámarksgengi yfir útboðsgengi verða
samþykktar. Verði umframáskrift í þessum hluta
útboðsins verða áskriftir ekki skertar niður fyrir
100.000 kr. að kaupverði. Leitast verður við
að skerða ekki áskriftir sem eru allt að 2 m.kr.
að kaupverði. Að öðru leyti verður skerðing
hlutfallsleg.
Seljandi áskilur sér rétt til þess að breyta þeim
fjölda hluta sem eru boðnir til sölu í hvorum hluta
útboðsins fyrir sig og til þess að hafna áskriftum
að heild eða í hluta án frekari rökstuðnings.
Gjalddagi og afhending
Greiðsluseðlar verða sendir í netbanka áskrifenda.
Gjalddagi og eindagi greiðsluseðla er 27. júní
2012. Afhending hluta fer eingöngu fram gegn
greiðslu áskriftarloforða og fer fram 29. júní 2012.
Fyrsti dagur viðskipta í Kauphöll
Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag
með hluti í Regin með eins viðskiptadags fyrir-
vara. Fyrsti dagur viðskipta getur í fyrsta lagi
orðið 2. júlí 2012.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Umsjónar- og söluaðili útboðs
og töku hlutabréfanna til viðskipta
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans, Hafnarstræti 5, 3.
hæð, 155 Reykjavík, sími 410 7340,
fyrirtaekjaradgjof@landsbankinn.is.
Söluaðili útboðs í tilboðsbók
Markaðsviðskipti Landsbankans, Hafnarstræti 5, 3.
hæð, 155 Reykjavík, sími 410 7330,
reginnutbod@landsbankinn.is.
Ráðgjafar Landsbankans veita upplýsingar
um áskriftarhluta útboðsins í síma 410 4040,
fjarmalaradgjof@landsbankinn.is, frá kl. 9-20 meðan
á útboðinu stendur.
Birting lýsingar Regins hf.
Hlutafjárútboð 18. og 19. júní 2012
Í tengslum við hlutafjárútboð í Regin hf. og umsókn um töku allra hlutabréfa í Regin til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX
Iceland hf. (Kauphöllin), hefur Reginn birt lýsingu sem dagsett er 11. júní 2012. Lýsinguna má nálgast rafrænt á vefsíðu Regins,
www.reginn.is, næstu 12 mánuði og útprentuð eintök má nálgast í höfuðstöðvum Regins í Hagasmára 1 í Kópavogi. Áður en fjár-
festar taka ákvörðun um fjárfestingu í hlutabréfum í Regin eru þeir hvattir til þess að kynna sér allar upplýsingar í lýsingunni
og skilmála útboðsins sem þar koma fram.
Hlutafjárútboð í Regin fer fram 18. og 19. júní 2012. Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf. mun bjóða til sölu 975.000.000 áður út-
gefna hluti í Regin, sem samsvarar 75% af heildarhlutafé í Regin. Allir hlutir í útboðinu verða seldir á sama verði sem liggja mun
á verðbilinu 8,1-11,9 kr. á hvern hlut í Regin. Söluandvirði útboðsins getur numið á bilinu 7,9-11,6 ma.kr. Markaðsvirði alls hlutafjár
í Regin miðað við fyrrgreint verðbil er 10,5-15,5 ma.kr.
Útboðið er markaðssett á Íslandi. Skilyrði fyrir þátttöku í útboðinu eru að þátttakendur hafi íslenska kennitölu og séu fjárráða.
Útboðið er tvískipt og skiptist í tilboðsbók og áskriftarhluta. Meginmarkmið seljanda með útboðinu er að Reginn uppfylli
skráningarskilyrði Aðalmarkaðar Kauphallarinnar um dreifingu hlutafjár.
Seljandi mun falla frá útboðinu ef eftirspurn verður ekki nægjanleg til þess að Reginn uppfylli skráningarskilyrði Aðalmarkaðar
Kauphallarinnar um dreifingu hlutafjár eða ef ekki næst að selja yfir 50% af heildarhlutafé í Regin í útboðinu. Seljandi hefur
ákveðið að halda eftir 25% eignarhlut í Regin eftir útboðið og hefur skuldbundið sig til þess að selja þann eignarhlut ekki í 10
mánuði eftir töku hlutabréfa í Regin til viðskipta í Kauphöllinni.