Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012 ✝ Arndís Jör-undsdóttir fæddist að Mið- hrauni í Miklaholts- hreppi 3. febrúar 1931. Hún lést að hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 30. maí 2012. Foreldrar henn- ar voru Jörundur Þórðarson fæddur að Hömluholtum í Eyjahreppi 10. ágúst 1901, d. 19. desember 1988 og María Óla- dóttir, fædd að Hofstöðum í Miklaholtshreppi 18. ágúst 1902, d. 12. desember 1972. Systkini Arndísar eru Kristján, f. 9. nóv- ember 1927, d. 17. febrúar 1962, júlí 2006, Þuríður á þrjú börn og þrjú barnabörn, 2) Emil Óskar, f. 3. maí 1953, eiginkona hans er Hólmfríður Hrönn Valgarðs- dóttir, þau eiga þrjú börn og þrjú barnabörn, 3) María Stein- unn, f. 24. maí 1955, eiginmaður hennar er Þórir Haraldsson, þau eiga þrjá syni og fimm barna- börn, 4) Sigfús Kristinn, f. 23. ágúst 1956, sambýliskona hans er Hrönn Héðinsdóttir, Sigfús á tvo syni og þrjú barnabörn, 5) Hildur Kristín, f. 4. mars 1962, eiginmaður hennar er Steinþór Bragason og eiga þau þrjú börn. Arndís og Þorbjörn slitu sam- vistum 1967. Arndís eða Dísa eins og hún var ávallt kölluð, ólst upp á heimili foreldra sinni að Elliða í Staðarsveit til 13 ára aldurs er fjölskyldan flutti að Vaðstakks- heiði í Neshreppi. Hún gekk í skóla að Ölkeldu og Hellissandi og lærði að matreiða, prjóna og sauma af móður sinni Maríu. Um 16 ára aldur fór hún til Reykja- víkur og réðst til starfa á Elli- heimilinu Grund og var þar um þriggja ára skeið er hún réð sig sem ráðskonu að Skálholtsvík í Hrútafirði þar sem hún kynntist Þorbirni. Þau bjuggu um tíma í Ólafsvík en árið 1961 fluttu þau til Hafnarfjarðar og bjuggu þar til þau skildu en þá flutti Arndís með börnin til Reykjavíkur. Arn- dís vann ávallt utan heimilis, ýmsa verkakvennavinnu eins og í fiskvinnslu, húshjálp og við ræstingar. Síðasti vinnustaður hennar var Sænska sendiráðið sem var vinnuveitandi sem reyndist henni ákaflega vel. Árið 1993 keypti Arndís sér hjólhýsi að Laugarvatni. Þar undi hún sér vel og var þar eins og mikið og hún gat, þar eignaðist hún góða vini. Útför Arndísar verður gerð frá Seljakirkju í dag, 12. júní 2012 og hefst athöfnin klukkan 13. Jón Hildiberg, f. 21. mars 1929, d. 17. febrúar 1962, Óli Guðmundur, f. 23. maí 1933, Helga, f. 8. september 1935, Guðmundur, f. 9. október 1940 og Ester, 26. febrúar 1942. Árið 1957 giftist Arndís Þorbirni Sigmundi Sigfús- syni frá Stóru Hvalsá, Hrúta- firði, f. 26. janúar 1934, d. 16. júlí 2002. Foreldrar hans voru Sigfús Sigfússon og Kristín Gróa Guð- mundsdóttir. Börn Arndísar og Þorbjörns eru: 1) Þuríður Sig- rún, f. 28. desember 1951, d. 20. Það er við hæfi að ég velji móð- ur minni ljóð eftir Davíð Stefáns- son sem var hennar skáld, eins og hún sagði ávallt. Við mæðgur átt- um oft góðar stundir saman við að lesa ljóðin hans Davíðs og nú síð- ast á Skógarbæ nokkrum dögum fyrir andlát hennar, þannig vil ég minnast hennar. Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð barna þinna, þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa, og eykur þeirra afl og trú, en það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum eins og þú. Í augum þínum sá ég fegri sýnir en sólhvít orð og tónar geta lýst, – svo miklir voru móðurdraumar þínir, þó marga þeirra hafi frostið níst. Sem hetja barst þú harmana og sárin, huggaðir aðra – brostir gegnum tárin, viðkvæm í lund, en viljasterk. Þau bregða um þig ljóma, liðnu árin. Nú lofa þig – þín eigin verk. Ég flyt þér, móðir, þakkir þúsundfaldar, og þjóðin öll má heyra kvæðið mitt. Er Íslands bestu mæður verða taldar, þá mun þar hljóma fagurt nafnið þitt. Blessuð sé öll þín barátta og vinna, blessað sé hús þitt, garður feðra minna, sem geymir lengi gömul spor. Haf hjartans þakkir, blessun barna þinna, – og bráðum kemur eilíft vor. (Davíð Stefánsson) Þín dóttir, Hildur Kristín. Minningar mínar um ömmu Dísu eiga það allar sameiginlegt að vera fullar af hlýju og kær- leika. Ég var svo heppin að vera á leikskóla við hliðina á húsinu hennar; amma bjó á Njálsgötu 7 og ég var á Njálsborg. Þetta þótti mér mjög merkilegt og montaði ég mig mikið af þessu við sam- nemendur mína á leikskólanum. Ég vorkenndi þeim að eiga ekki svona frábæra ömmu og það í næsta húsi. Uppáhaldssagan hennar ömmu af þessum árum var þegar ég fékk að labba í fyrsta skipti ein úr leikskólanum og heim til hennar en hún sótti mig oftast nær. Ekki man ég hvað ég var gömul en ég var víst óendan- lega stolt af sjálfri mér, og amma auðvitað líka, af þessu mikla af- reki: að labba ein heim, þessa löngu leið, yfir í næsta hús. Þegar þangað var komið þykir mér afar líklegt að amma hafi boðið mér upp á það sem mér þótti best að fá hjá henni, brauð með mysing og mjólk. Svo hef ég væntanlega klætt mig upp með dyggri aðstoð ömmu í skósítt pils af henni og há- hælaða skó. Síðan leyfði hún mér að spegla mig endalaust í anddyr- inu á Njálsgötunni, enda vorum við sammála um að ég væri voða fín í þessum stóru fötum. Það var líka alltaf mikið fjör á Laugarvatni í hjólhýsinu hjá ömmu Dísu. Þar brölluðum ég og bróðir minn ýmislegt saman enda ævintýrin endalaus, fyrir utan hvað það var nú magnað að amma okkar skyldi eiga hús á hjólum! Mér fannst alltaf jafngaman að koma í hjólhýsið og hitta ömmu þar enda naut hún sín vel á Laug- arvatni og hafði það gott. Líf ömmu Dísu var ekki alltaf auðvelt og veikindi hennar voru mjög erfið. Sjálfri fannst mér erf- itt að sjá hvernig hún tærðist upp af krabbameininu því hún varð svo ólík sjálfri sér, sérstaklega í útliti, ólík þeirri ömmu sem ég man eftir úr æsku. Þjáningum ömmu Dísu er nú lokið. Hún hefur nú hitt fyrir elstu dóttur sína, Þurý, sem einnig lést úr krabbameini. Þó að ég felli tár þá hlýnar mér um hjartarætur við tilhugsunina um að þær tvær, amma og Súsí, passi upp á mig og fjölskylduna mína. Sunna Kristín. Arndís Jörundsdóttir HINSTA KVEÐJA Ég kveð Dísu systur með þessum orðum. Eitt af því fyrsta sem mamma kenndi okkur systkinum var að fara með bænirnar okkar og signa okkur. Bænin má aldrei bresta þig, búin er freisting ýmislig. Þá líf og sál er lúð og þjáð, lykill er hún að Drottins náð. Vaktu, minn Jesús, vaktu’ í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki, þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf (H. Pétursson) Hvíldu í friði. Helga. ✝ Magnús Jóns-son fæddist í Bolungarvík 7. ágúst 1916. Hann lést í Reykjavík 6. júní 2012. Hann var sonur hjónanna Jóns Bjarnasonar lög- regluþjóns, f. 1886 og Margrétar Maríu Pálsdóttur hús- móður, f. 1884. Eiginkona Magnúsar er Sig- rún Jónsdóttir, f. 12. febrúar 1918. Foreldrar hennar voru Jón Ívarsson kaupfélagsstjóri á Höfn í Hornafirði og alþingismaður, f. 1891 og Guðríður Jónsdóttir, f. 1890. Börn þeirra eru: 1) Gyða Magnúsdóttir hjúkrunarfræð- ingur, f. 1942 og 2) Jón Magn- ússon hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður, f. 1946. Gyða er gift Ársæli Jóns- syni lækni, f. 1939 og eiga þau þrjú börn, Þórgunni, Magnús og Árna. Jón á einnig þrjú börn, Jónas Friðrik, Magnús og Sig- rúnu Fanný. Móðir Jónasar Frið- riks og Magnúsar er Halldóra J. Rafnar, kennari og blaðamaður, f. 1947, og móðir Sigrúnar Fann- ýjar er Fanný Jónmundsdóttir, kaupmaður og leiðbeinandi, f. 1945. Barnabarnabörnin eru sex. Systkini Magnúsar voru: Páll, f. 1909, Ragnhildur, f. 1910, kjördóttir séra Ásgeirs Ás- geirssonar prófasts í Hvammi í Dölum og Ragnhildar föð- ursystur sinnar, Bjarni, f. 1911, Ás- geir, f. 1919. Hálf- systkini Magnúsar samfeðra eru Kol- brún og Ármann. Magnús missti móður sína ungur og ólst upp í Æðey við Ísafjarðardjúp hjá Æð- eyjarsystkinunum Sigríði, Bjarna og Ásgeiri. Magnús lauk kennaranámi við Kennaraskóla Íslands, var kennari í Vest- mannaeyjum 1942-1945. Skóla- stjóri Gagnfræðaskólans á Akra- nesi 1945 og Iðnskólans á Akranesi 1946-1951. Magnús kynnti sér verknám á Norð- urlöndum og í Bandaríkjunum. Hann varð skólastjóri Gagn- fræðaskóla verknáms við stofnun hans 1951, sem síðar varð Ár- múlaskóli, og gegndi því starfi til starfsloka. Magnús var virkur í ýmsum félagsstörfum, gegndi m.a. formennsku í félagi kennara á eftirlaunum og skólastjóra- félaginu. Útför Magnúsar fer fram frá Árbæjarkirkju í dag, 12. júní 2012, og hefst athöfnin kl 15. Magnús Jónsson tengdafaðir minn er nýlátinn og er mér ljúft að minnast hans. Ef dóttir hans er undanskilin er hann sá maður af nákomnu fólki, sem ég hef dáðst hvað mest af um dagana. Hann var sívakandi yfir velferð okkar allra; rólyndur, skapandi, hlýr og útsjón- arsamur. Hann ólst upp hjá vanda- lausum. Móðir hans dó á Sjúkra- húsi Ísafjarðar þegar hann var aðeins fimm ára gamall. Hann var það lánsamur að flytjast til Æðeyj- ar þar sem hann ólst upp hjá þeim heiðurssystkinum, sem þar bjuggu. Þar naut hann sín vel í ná- inni snertingu við fólkið, húsdýrin og sjávarfang. Þótt skólamenntun hans væri í alla staði óformleg, þá tókst hon- um á snjallan hátt að komast í Kennaraskólann. Ég heyrði sögur um það þegar hann kom fjallmyndarlegur, stór- vaxinn og sterkur til Reykjavíkur. Stúlkurnar í Landsímahúsinu gerðu sér sérstaka ferð út á Aust- urvöll til að skoða hann betur. Hann kom að mönnum við hús á Njálsgötunni, sem voru að vand- ræðast með þungt síldarkvartil, sem koma þyrfti uppá þriðju hæð og þeir réðu ekki við. Magnús gerði sér lítið fyrir og hélt á kvart- ilinu einn fyrir þá félaga upp stig- ana og þurfti þó að halda tunnunni frá sér, til að óhreinka ekki fötin. Magnús átti gott með að setja saman vísur. Hann orti til dóttur sinnar nokkrar vísur, en þessi er í uppáhaldi hjá mér; Þú hefur aðeins tennur tvær, tyggur samt og borðar flest. Ýsu soðna ástu í gær og afturfót á gúmmíhest. Sigrún passaði svo uppá að á öllum jólakortum og afmæliskort- um til barna okkar fylgdi vísa. „Magnús, nú þarf vísu“. Magnús hafði einstakt lag á ungum börnum. Hann smíðaði fyr- ir þau leikföng og fékk þau til að gera sína eigin leiki sem vakti hjá þeim áhuga og ánægju. Starfsferill Magnúsar var frábær. Hann vann brautryðjendastarf við stofnun verknáms á gagnfræðastigi. Hann fór í námsferðir til Bandaríkjanna og Noregs við undirbúning nám- skrár verknámsins og réði því að verknámið var ekki afgangsstærð heldur valkostur í námsleiðum gagnfræðaskólastigsins. Hann var valinn til forystu á mörgum svið- um. Nemendur hans og samstarfs- fólk dáðu hann og virtu. Hann fann oftast lausnir á erfiðum málum og fylgdi þeim eftir með jákvæðni og uppörvun. Oft var leitað til hans með tækifærisræður. Þau hjónin voru samhent og nægjusöm en jafnframt rausnar- leg við aðra. Þau reistu sér parhús við Tómasarhagann og sá Magnús að mestu sjálfur um þá húsbygg- ingu. Þegar hann fór á eftirlaun nýttist honum sú reynsla þar sem bæði börnin hans stóðu í húsbygg- ingum í Selásnum. Hann mætti þar snemma á morgnana með skrínu- kost frá Sigrúnu og vann fram á kvöld við húsasmíðarnar, ég held hann hafi lést um ein 15 kg það sumar. Fjölskyldan fór nokkrum sinn- um saman í sólarlandaferðir og á seinni árum eignuðust þau Sigrún sumarbústað í Svínadal. Þar átti fjölskyldan margar hamingju- stundir. Fyrir þrem árum helltist ellin yfir hann og hann stóðst „inntöku- próf“ á hjúkrunarheimili. Þar naut hann sín vel í samfylgd eiginkonu sinnar. Hann tjáði sig um það síð- ustu árin; „Það getur ekki verið betra“. Ársæll Jónsson. Þá er elsku afi minn farinn yfir móðuna miklu, en allar góðu minn- ingarnar um hinar fjölmörgu sam- verustundir sem ég var svo hepp- inn að eiga með honum lifa með mér. Þegar ég skrifa þetta sé ég fyrir mér þegar hann kenndi mér að hjóla og við hjóluðum heilt sum- ar um alla Reykjavík saman. Stundum var amma með í för á hjólinu með körfuna sem geymdi nestið okkar. Afi var alltaf meira en til í að að- stoða og hjálpa til, enda hálfgert „Übermensch“ hvað gáfur og handlagni snerti, hann gat allt. Hvort sem það var eitthvað sem þurfti verkkunnáttu til eins og að byggja hús, stærðfræðikunnáttu til að kenna manni námsefni fyrir stúdentspróf á þremur dögum, hvernig átti að yrkja ljóð eða sanna hjartahlýju og skilning, þá bjó hann yfir þeim eiginleikum sem þurfti í hvert sinn. Hann hafði alltaf tíma fyrir mann og alltaf til í að leika við mann enda upplifði ég það aldrei að hann stoppaði eða hætti í leikn- um sem við vorum í. Í afa mínum voru sameinaðir allir þeir bestu kostir sem mann- eskja getur búið yfir. Ég og allir aðrir sem fengum að upplifa það að kynnast honum verðum ævinlega þakklát fyrir það að hann sýndi manni með framkomu sinni hversu einstaklega góð mannveran getur verið. Kannski var hann bara engill í mannsmynd. Vertu sæll elsku afi. Þinn nafni, Magnús Jónsson. Látinn er í hárri elli Magnús Jónsson, fyrrverandi skólastjóri. Magnús var ættaður frá Ármúla við Ísafjarðardjúp en ólst upp í Æðey. Magnús var bróðir móður minnar Ragnhildar en þau systk- inin ólust ekki upp saman og kynntust ekki fyrr en þau voru komin af barnsaldri. Þegar þau kynntust urðu þau strax mjög náin og tel ég að öllum öðrum ólöstuð- um að enginn hafi reynst móður minni og mér eins vel. Magnús var skólamaður af lífi og sál og hann setti þroska og vel- ferð ungmenna í öndvegi. Hann var skólastjóri Gagnfræðaskólans á Akranesi og síðan Iðnskólans þar. Jafnframt þessu var hann námsstjóri í verknámi. Fór hann til námsdvalar á Norðurlöndunum og í Bandaríkjunum til að kynna sér fyrirkomulag og framkvæmd verk- náms. Hugsjón Magnúsar var að auka veg verknámsins svo að hæfi- leikar fólks á hinum ýmsu sviðum, ekki aðeins á bóknámssviðunum, fengju að blómstra. Má því segja að Magnús hafi aðhyllst fjölgreind- arkenninguna í verki löngu áður en hún kom fram. Magnús varð svo skólastjóri Gagnfræðaskóla verknáms frá stofnun, en hann varð síðar Fjöl- brautaskólinn við Ármúla. Þar lauk hann störfum Magnús var einstakur kennari og hafði lag á að kenna á þann hátt að öllum þætti gaman og engum fyndist hann vera að læra. Það var eins og hann fyndi af einhverri eðl- isávísun þann „stað“ í nemandan- um þar sem persónuleikinn og áhugasviðið mættust, og Magnús náði að virkja þann „stað“. Ég þekkti þennan hæfileika Magnúsar vel því þeir voru ófáir stærðfræðitímarnir sem Magnús tók mig í rétt fyrir próf alla mína skólagöngu. Var Magnús besti stærðfræðikennari sem ég hef nokkurn tímann haft. Og sama hversu önnum kafinn Magnús var, ef eitthvað bjátaði á, hvort sem var í námi eða einkalífi, þá kom Magn- ús og var til staðar og veitti stuðn- ing. Magnús var einstakur mannvin- ur og hafði mikinn skilning á að- stæðum fólks. Hann var mjög mildur og ljúfur maður og algjör- lega laus við dómhörku. Hann reyndi alltaf að gera gott úr öllu. Fjöldi nemenda leitaði til hans með ýmiss konar vandamál og hann reyndi alltaf að greiða úr þeim og hjálpaði þeim að finna leiðir. En Magnús var líka fastur fyrir á sinn rólega hátt. Magnús var mjög fríður maður og glæsilegur á velli. Hann hafði mikla kímnigáfu og var orðheppinn en notaði þennan hæfileika ein- göngu á jákvæðan og uppbyggileg- an hátt. Hann sagði líka skemmti- lega frá og án efa hafa þessir hæfileikar átt þátt í því að hann varð svo góður kennari. Ég man alltaf eftir því þegar ég sagði Magnúsi frá því að ég væri sjálf farin að kenna. Hann varð af- ar ánægður og sagði með gleði- hljómi í röddinni: „Já þetta er skemmtilegasta starf sem til er.“ Magnús var nefnilega ekki bara kennari frá kl. 8-4. Hann var kenn- ari allan sólarhringinn og studdi fólkið í umhverfi sínu. Sjálf get ég ekki nógsamlega þakkað að hafa átt slíkan móðurbróður. Við Vilhjálmur sendum fjöl- skyldu Magnúsar okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Drottinn láti hið eilífa ljós lýsa honum. Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir. Magnús Jónsson ✝ Okkar ástkæri PÉTUR BRYNJÓLFSSON, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hólalax, Bakkahlíð 11, Akureyri, lést fimmtudaginn 7. júní. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 15. júní kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Heimahlynningar á Akureyri, MND-félagið og Styrktar- og líknarsjóð Oddfellow- reglunnar. Sigfríður L. Angantýsdóttir, Fríða Pétursdóttir, Bragi Hlíðar Kristinsson, Pétur Pétursson, Vilborg Einarsdóttir, Hjörvar Pétursson, Árný Guðmundsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.