Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.06.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012 einstakt eitthvað alveg Skipholt 50A • sími: 581 4020 www.gallerilist.is úrval einstakra málverka og listmuna eftir íslenska listamenn 1987-2012 SVIÐSLJÓS Texti: Guðni Einarsson Ljósmyndir: Ragnar Axelsson „Kríuvarpið er gríðarlega mikilvægt því krían vísar svo vel á hvar tófan er. Það fer allt kríugerið upp og arg- ast í tófunni þegar hún kemur,“ sagði Hermann Ólafsson, útvegs- bóndi í Grindavík og æðarræktandi á Stað. Undanfarið hefur hann verið vakinn og sofinn við að verja æðar- varpið fyrir ágangi vargs og þar er tófan verst að hans mati. Margir afræningjar Æðarfuglinn verpir á undan krí- unni og tófan kemur strax að ræna eggjum. Minkurinn er líka kræfur eggjaræningi. Eftir að krían er orp- in virðist tófan frekar kjósa kríuegg- in og rænir þeim óspart. Komist tófa í varpið verður mikið uppnám og fuglinn flýr af hreiðr- unum. Það opnar kjóa, mávi og hrafni greiða leið að eggjum eða ungum. Hermann sagði að fengi tóf- an að valsa um óáreitt eyðilegðist varpið því fuglinn héldist ekki á hreiðrunum. Egg og ungar yrðu óvarin fyrir vargi, veðri og vindum. Hætt væri við að eggin klektust ekki eða ungarnir dræpust væru þeir ekki étnir. „Ég var grenjaskytta á árum áður og þegar grenjaleit var hætt hér í Grindavík fór þetta bara á einn veg,“ sagði Hermann. Tófunni stórfjölgaði að hans mati. „Ríkið virðist ekki hafa efni á að halda varginum niðri en mér finnst að eitthvað annað mætti nú missa sín á undan því.“ Hermann sagði nauðsynlegt að sveitarfélögin á Reykjanesi tækju höndum saman um að halda tófunni niðri. Það þýddi ekkert að veiða hana í einu sveitarfélagi ef henni væru gefin grið í hinum. Hann kvaðst viss um að tófan ætti stærstu sökina á því að rjúpan hefði ekki náð sér á strik á Reykjanesi, þrátt fyrir langa friðun fyrir veiðum. Sannur útvegsbóndi Hermann er sannkallaður útvegs- bóndi. Hann rekur ásamt fleirum sjávarútvegsfyrirtækið Stakkavík ehf. sem gerir út og verkar fisk. Þá er hann með um 150 ær á fóðrum á veturna í félagi við aðra og á auk þess hesta. „Ég tók eftir fjúkandi dún um allt þegar ég kom í æðarvarpið fyrir há- degi á föstudaginn var,“ sagði Her- mann. „Svo sá ég svakalegt kríuger við Íslandslax og þar var þá refur klukkan ellefu fyrir hádegi! Mér tókst að ná honum. Ég vann við að tína dún alveg til miðnættis og sá aðra tófu koma. Þá hringdi ég í Jó- hannes Vilbergsson frænda minn og bað hann að koma. Við skutum fimm tófur um nóttina hér í varpinu. Nótt- ina áður höfðu veiðst tvær og aðrar þrjár þar á undan eða átta tófur á einum sólarhring og ellefu tófur alls í síðustu viku.“ Ójafnvægi í náttúrunni Hermann segir að stundum sé tal- að um að náttúran nái jafnvægi en hann telur langt í að tófan komist í jafnvægi. „Fugl uppi í tré eða ókleifu bjargi sleppur við tófuna en ekki fugl sem verpir á jörðinni. Tófurnar koma bara ein af annarri. Ég hélt að tófu- straumurinn ætlaði aldrei að taka enda í síðustu viku,“ sagði Hermann. Byrjað var að hlúa að æðarvarp- inu á Stað eftir að vikur rak þar á fjörur í Surtseyjargosinu. Vorið eftir komu tólf æðarkollur og gerðu sér hreiður í vikrinum í flóðmörkunum. Síðan hefur æðarvarpið verið Her- manni hugleikið. „Mér finnst gaman að kollunum og það er líf mitt og yndi að vasast í þessu á vorin. Ég verð alveg brjál- aður þegar tófan er að eyðileggja þetta,“ sagði Hermann. Hann sagði að æðarkollurnar væru flestar mjög vanafastar og yrpu í sama hreiður- stæðið ár eftir ár. Þó er áberandi að kollan hefur hörfað undan þar sem vargurinn hefur átt greiðastan að- gang og flutt sig á öruggari staði. Hermann hefur fjarlægt hundruð tonna af grjóti sem sjórinn bar inn á gömlu túnin næst sjónum. Kollurnar gera sér gjarnan hreiður í holunum eftir steinana. Hermann segir að sé varpið varið og því sinnt á réttan hátt laðist nýjar kollur að. Æð- arfuglinn sæki í friðinn sem fylgi umhirðunni. Þótti Stanley þaulsætinn Æðarvarpið er afgirt en tófan smýgur undir girðingarnar. Her- mann hefur velt því fyrir sér að setja rafstreng neðst á girðinguna. Hann er með margar fuglahræður og mesta athygli vekur glaðleg og vel búin fuglahræða sem situr í sólstól úti á túni með íslenskar veifur. „Þessi er kallaður Stanley,“ sagði Hermann og hagræddi varðmann- inum sem hafði skekkst í stólnum. „Kunningi minn átti hann og hafði á skemmtistað en Stanley var stolið þaðan. Lögreglan rakst svo á mann um miðja nótt í Keflavík sem var með Stanley á herðunum. Stanley endaði svo hér í varpinu.“ Það er ástæða fyrir því að fugla- hræðan fékk nafnið Stanley eftir einum fyrrverandi starfsmanni Her- manns. „Það kom strákur með mér hingað úteftir þegar ég var að kíkja á varp- ið. Hann tók eftir þessum náunga sem sat hér sallarólegur úti í varpi og spurði hver þetta eiginlega væri. Ég svaraði í hálfkæringi að þetta væri Stanley, en strákurinn kann- aðist vel við hann úr vinnunni. Hann spurði furðu lostinn: Hvernig nennir hann eiginlega að hanga allan daginn þarna úti í varpi? Ég átti ekkert almennilegt svar við því,“ sagði Hermann og hló. Tófustraumurinn ætlaði aldrei að enda  Krían er góður nágranni æðarvarps og varar við tófunni Morgunblaðið/RAX Varðmenn varpsins Fuglahræðan Stanley og Hermann æðarbóndi. Æðarbóndi Hermann talaði við æðarkollurnar og þær virtust þekkja hann. Æðarfugl Blikarnir halda sig nálægt kollunum á meðan þær liggja á. Vargar Mörg egg og ungar enda í gini óboðinna gesta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.