Morgunblaðið - 12.06.2012, Page 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2012
ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG!
ENDURSKINS
VESTI
Á TILBOÐI
Í JÚNÍ
Ýmsar vörur á tilboði í júní.
Kíktu á heimasíðu okkar,
dynjandi.is og skoðaðu úrvalið.
Dynjandi örugglega fyrir þig!
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú finnur á þér að eitthvað er í upp-
siglingu milli þín og ástvinar þíns. Gefðu þér
því góðan tíma til að skoða hlutina. Láttu þér
ekkert bregða þótt útlitið hafi breyst.
20. apríl - 20. maí
Naut Þín sterka hlið er skipulagningin og þú
átt að nýta þér það til hins ítrasta. Hættu allri
góðsemi og hristu hana af þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Samstarfsmenn þínir eru hvorki
hjálplegir né koma með uppbyggilegar hug-
myndir. Taktu því aðfinnslum vinar þíns vel,
en mundu hverjir eru viðhlæjendur og bíða
þess eins að þér mistakist.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að gera það upp við þig
hvaða stefnu þú vilt taka í lífinu. Nokkur orð
frá góðum vini geta gefið þér meira heldur en
einhver skartklæði.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér hættir til þess að gera of mikið úr
hlutunum. Spurðu krefjandi spurninga svo
hægt sé að varpa ljósi á málið. Vertu eins
kurteis og þú getur við ástvinina.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Haltu áfram að lesa og ræða það sem
þú lærir, þannig síast þekkingin inn. Þú hefur
til að mynda fengið í vöggugjöf áhuga á hlut-
um sem þú hefur hæfileika til.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þig langar til að gera heimili þitt vist-
legra. Aðstæður eru þannig að þú þarft á öllu
þínu að halda til daglegs brúks.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það getur verið erfitt að stand-
ast freistinguna þegar löngunin til að eignast
eitthvað er sterk. Það er ekkert samsæri í
gangi gegn þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Leyndarmál gætu verið afhjúpuð
fyrir þig í dag. Komdu sjónarmiðum þínum á
framfæri í samtölum, það gengur vel því þú
útskýrir mál þitt skilmerkilega.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér er óhætt að láta hugboð þitt
ráða, því oftar en ekki dettur þú ofan á réttu
lausnina svona fyrirhafnarlaust. Njóttu þess
vel að slappa af og jafnvel vera eirðarlaus.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Viss iðja á hjarta þitt og huga, og
það er kominn tími á að þú eignist kennara
sem leiðbeinir þér í gegnum næsta skref. Nú
er kominn tími til aðgerða svo þú skalt bretta
upp ermarnar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt þér þyki gott að viðra hugmyndir
þínar við aðra skaltu fara varlega í þeim efn-
um núna svo þeim verði ekki stolið frá þér.
Sinntu peningamálunum.
Skáldið Þórarinn Eldjárn skrif-aði að gefnu tilefni í fésbókina í
september árið 2007:
Hér fáið þið loksins einn fréttabút
fésbókarvinir prúðir:
Nú er Lér konungur kominn út
og kominn í búðir.
Eins og kunnugt er gerði Þór-
arinn þýðinguna á Lé konungi af al-
kunnri snilld. Hann greinir frá því á
fésbókarsíðunni að birst hafi aug-
lýsing í Fréttatímanum frá Forlag-
inu um Hundrað ára einsemd og Lé
konung: „Verk sem allir ættu að
eiga, lesa og njóta.“ Og segir um
það: „Tilvitnuð orð eru tilvalinn
botn í vísu sem gæti verið svona:
Shakespeare og Marquez búning
sinn bættu
hjá Begga og Tóta.
Verk sem allir ættu
að eiga, lesa og njóta.“
Bjarki M. Karlsson orti við fráfall
einræðisherrans Kim Jong-il:
Synir og dætur ei sofið fá nú
sorgin á mannsbarn hvert knúði,
horfin og dáin, er hamingja sú
sem heimurinn elskaði og trúði.
Kórea gervöll er grátandi nú,
genginn er leiðtoginn prúði,
höfðingi, valmenni, velferðarbrú
vinur, sem ræktaði og hlúði.
(Þó var hann heldur, ég hef þessa trú:
helvítis skíthæll og lúði.)
Björgvin R. Leifsson fékk yrk-
isefnið „hatrið“ á harmóníkuballi á
Breiðumýri í janúar:
Hatrið tætir huga manns,
hristir, rífur, skekur.
Alla púka andskotans
upp með þessu vekur.
Er Björgvin var spurður hvað
hann gerði á andvökunóttum, þá
svaraði hann:
Andvaka’ á nóttunni eigi ég slugsa
og ekki er hugur að dofna:
Bylti mér stöðugt og hugsa og hugsa:
Helvíti’ er erfitt að sofna.
Pétur Þorsteinsson varð vitni að
því er vísa hrökk upp úr hvolpinum
Basil fursta, sem vafalítið er um
kínverska auðjöfurinn Nubo:
Efað fær hann Ísaland
auðmjúklega að þiggja
yfir kaldan eyðisand
ætlar hann að byggja.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Basil fursta, Kim
Jong-il og Lé konungi
Víkverji gerði sér lítið fyrir umhelgina og arkaði á Úlfarsfell
með fjölskylduna. Farið var upp að
norðanverðu, á merktum gönguslóða
að sjálfsögðu. Fyrir barnafólk er
þetta hæfileg ganga og bratti ekki
svo mikill, góður grunnur til að hefja
frekari fjallgöngur síðar meir. Esjan
bíður alltaf eftir Víkverja og hann
hugsar sem svo að fjallið muni ekki
fara langt.
Allt fór þetta vel af stað upp
bæjarfjall Mosfellinga, veðrið gott
og útsýni þokkalegt, ef undan er
skilið öskumistrið sem lá yfir höfuð-
borgarsvæðinu eins og mara. Þegar
ofar dró, nálægt hæsta punkti, blasti
hins vegar við ófögur sjón. Úlfars-
fellið ofanvert er orðið útstrikað í
alls konar vegslóðum og tók steininn
úr að sjá allt raskið sem nýlegar
framkvæmdir við fjarskiptamastur
skilur eftir sig. Nokkuð var um
göngufólk á svæðinu, sem átti fótum
sínum fjör að launa undan jeppa sem
kom þarna akandi upp fellið, að því
er virtist bara á sunnudags-
bíltúrnum að spóka sig um.
Ekki veit Víkverji hver sér um
traffíkina upp á Úlfarsfell en það er
lágmark að lokað sé alfarið fyrir
bílaumferð þarna upp. Blikkbeljur
eiga þangað ekkert erindi, nema þá í
undantekningartilvikum með starfs-
menn til að gera við þessi möstur.
Það eyðilagði eiginlega alveg stemn-
inguna fyrir Víkverja og hans fólk að
sjá þessa jeppadruslu og lá við að
göngustafnum yrði grýtt í ökutækið.
Vonandi verður þetta lagað sem
fyrst, Víkverji hefur enga löngun til
að fara þarna upp í bráð.
x x x
Víkverji gat ekki annað en brosaðer hann sá auglýsingu um ein-
hverja heiðurstónleika í Hörpu í
ágúst í tilefni þess að 40 ár eru síðan
sænski ABBA-söngflokkurinn kom
fyrst saman. Ekki er það svo gott að
ABBA komi hingað holdi klædd
heldur munu fjórar íslenskar söng-
konur stíga á svið og syngja öll vin-
sælustu lögin. Hvers eiga Björn og
Benny að gjalda? Víkverji fagnar
framgangi kvenna á flestum sviðum
þjóðlífsins en er þetta ekki einum of
langt gengið? Réttara væri þá að
auglýsinga tónleika með AA-
söngflokknum. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Daníel tók til máls og
sagði: „Lofað verði nafn Guðs frá eilífð
til eilífðar, því hans er viskan og
mátturinn.“ (Daníel 2, 20.)
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
F
er
d
in
a
n
d
MJÁ
ÞÚ
„MJÁ-AR” UPP
ÚR SVEFNI
ÞÁ SÉ ÉG
ENGA
ÁSTÆÐU TIL
ÞESS AÐ VERA
VAKANDI
HELGA?
HVAÐ ERT
ÞÚ AÐ GERA
HÉRNA!?
MIG LANGAÐI BARA
AÐ SEGJA ÞÉR AÐ MAMMA
VILL AÐ ÉG SELJI
BÁTINN ÞINN
ÉG ER
ÞREYTTUR OG
ÚTKEYRÐUR
KALLI, ÞÚ ÞYRFTIR AÐ
KOMAST Í FRÍ
ÞAÐ ER GÓÐ HUGMYND...
SEGÐU MÖMMU MINNI,
KENNARANUM OG SKÓLA-
STJÓRANUM FRÁ ÞVÍ
ÉG VEIT ALDREI HVENÆR
HANN ER AÐ VERA
KALDHÆÐINN
KLÓSETT?!
HVAR VARST
ÞÚ EIGINLEGA
ALINN UPP, Í
HÚSI?