Morgunblaðið - 12.06.2012, Qupperneq 44
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 164. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Seldi íbúð, sagði upp vinnu og …
2. Alvarleg líkamsárás í sumarhúsi
3. Bjarki: Þakka guði fyrir að …
4. „Það er búið að rífa úr mér hjartað“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Galleríið Kling & Bang hefur opnað
útibú á skiptistöð Strætó á Hlemmi í
Reykjavík, sýningarkassa sem nefn-
ist Kling & Bang útibú – Public Art
Center. Fyrstur til að sýna í útibúinu
er Ragnar Már Nikulásson.
Kling og Bang með
útibú á Hlemmi
Safnplata er
væntanleg frá
hljómsveitinni
Brimkló sem hef-
ur upp á síðkastið
verið iðin við kol-
ann í hljóðverinu
Hljóðrita í Hafn-
arfirði og tekið
þar upp nýtt efni
sem verður að finna á plötunni.
Söngvarinn Björgvin Halldórsson fer
sem fyrr fyrir hljómsveitinni góð-
kunnu.
Nýtt efni væntanlegt
með Brimkló
Hljómsveitin Mannakorn heldur
tvenna tónleika um næstu helgi, í
Hofi á Akureyri 16. júní kl. 20 og í
Rauðku á Siglufirði 17. júní kl. 21.
Hljómsveitina skipa þau Pálmi Gunn-
arsson, Magnús Eiríks-
son, Ellen Kristjáns-
dóttir, Eyþór
Gunnarsson, Benedikt
Brynleifsson og
Stefán Már Magn-
ússon.
Mannakorn leikur á
Norðurlandi
Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag Hæg breytileg átt og
víða bjartviðri. Horfur á síðdegisskúrum á sunnanverðu landinu.
Hiti 5 til 15 stig, svalast með A-ströndinni.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg breytileg átt eða hafgola. Víða bjart
veður, en sums staðar skýjað með ströndinni og stöku síðdeg-
isskúrir S-til á landinu. Hiti 4 til 16 stig, hlýjast SV-lands.
VEÐUR
Breiðablik og Stjarnan
gerðu 2:2-jafntefli í stórleik
6. umferðar Pepsideildar
kvenna í gær. Gula spjaldið
fór tíu sinnum á loft og það
rauða tvisvar í bráðfjör-
ugum leik. Þór/KA er því
með þriggja stiga forskot á
toppnum. ÍBV vann stór-
sigur gegn Selfossi í Eyjum,
7:1, Valur vann Fylki 4:0 í Ár-
bænum og nýliðar FH lögðu
KR að velli í Kapla-
krikanum, 2:1. »2
Spjaldaregn í
stórleiknum
Jón Arnar Magnússon var fjórum ár-
um eldri en Einar Daði Lárusson er í
dag þegar hann náði 8.000 stigum í
tugþraut í fyrsta skiptið af
þrettán. Einar Daði
náði betri árangri í
Tékklandi um
helgina en þegar
Jón Arnar sló
Íslandsmetið í
fyrsta sinn
fyrir átján ár-
um. »2
Einar Daði með fjögurra
ára forskot á Jón Arnar
Andrei Shevchenko, framherji
Úkraínumanna, stal senunni á
Evrópumótinu í knattspyrnu í
gær. Þessi hálffertugi leikmaður
var hetja Úkraínumanna en hann
skoraði bæði mörk sinna manna í
2:1-sigri gegn Svíum. Í hinum leik
D-riðilsins skildu Englendingar og
Frakkar jafnir í tilþrifalitum leik,
1:1. »3
Shevchenko stal sen-
unni í Kænugarði
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Ég er nú bara eins og aðrir, get
hoppað með,“ segir Aðalheiður
Snorradóttir sem tók þátt í danssýn-
ingu á Landsmóti UMFÍ 50+ í
íþróttahúsinu við Varmá í Mos-
fellsbæ um helgina. Hún var elsti
þátttakandinn, verður 98 ára í haust.
„Ég var öruggur forseti, það er ald-
ursforseti,“ heldur hún áfram.
Aðalheiður hefur verið í leikfimi
hjá Margréti Bjarnadóttur hjá
Íþróttafélaginu Glóð í Kópavogi
tvisvar í viku í um 18 ár en hún byrj-
aði að æfa með fólki í Digranessöfn-
uði þegar hún var um sjötugt. „Við
byrjuðum með leikfimi fyrir aldraða
í söfnuðinum en ég hafði nóg að gera
við húsverkin og heimilisstörfin
fram að því,“ segir hún. „Mér finnst
hlægilegt þegar spurt er hvað konan
geri og svarið er: „Ekkert. Hún er
bara heima.“ Kannski með sjö til
átta manns í heimili og enga hjálp!“
Dansinn með leikfiminni
Prestshjónin Aðalheiður og séra
Jóhannes Pálmason bjuggu á Stað í
Súgandafirði frá 1942 til 1972, en
þaðan lá leiðin í Reykholt og loks í
Kópavog. „Ég er annars Vest-
mannaeyingur, fædd og uppalin
þar,“ segir hún, en hún hitti verð-
andi eiginmann sinn í Eyjafirði þar
sem hún var í kaupavinnu í tvö sum-
ur. „Það var tilviljun að okkar kynni
héldu áfram. Hann tók mynd í óleyfi
af mér en okkur kaupakonunum
þremur fannst myndin svo góð að
hann lofaði að láta framkalla fleiri
myndir og senda mér. Þegar ég ætl-
aði að borga sagði hann að það kost-
aði 20 blaðsíðna bréf og úr varð að
við skrifuðumst á í fleiri ár, einu
sinni til tvisvar á ári. Ég flakkaði
svolítið í útlöndum en svo þurfti ég
að koma heim af því að móðir mín
var orðin veik og við Jóhannes hitt-
umst í Reykjavík. Úr varð hjóna-
band og eftir það var ég í húsverkum
og heyskapnum. En dansinn kom
bara með leikfiminni. Það lenti oft á
Jóhannesi að spila og sjá um músík-
ina í sveitinni. Ég fékk því ekki æf-
ingu í dansinum. Það er alveg víst.“
Hún þvertekur þó ekki fyrir að hafa
tekið sporið í Eyjum á yngri árum.
„Maður fór á ball í Vestmannaeyjum
þegar gafst án þess að hafa nokkra
kunnáttu sérstaklega.“
Jóhannes féll frá 1978 og nokkr-
um árum síðar byrjaði Aðalheiður í
leikfimi. „Ég þurfti að styrkja líkam-
ann og svo var þetta líka félags-
skapur. Í júlí í fyrra rak ég tána
hérna í stéttina, datt og lærbrotnaði,
en ég er hætt að ganga með hækjur
og göngugrind. Ég þakka það leik-
fiminni. Ef það er ekkert sem kallar
á liggur maður bara í leti.“
Byrjaði sjötug í leikfiminni
„Ég var örugg-
ur forseti, það er
aldursforseti“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fyrirmynd Aðalheiður Snorradóttir byrjaði í leikfimi um sjötugt og sýnir að lengi lifir í gömlum glæðum.
Ljósmynd/Sigurður Guðmundsson
Viðurkenning Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, færir Aðal-
heiði blóm eftir sýninguna í Mosfellsbæ um helgina.