Morgunblaðið - 07.08.2012, Page 4

Morgunblaðið - 07.08.2012, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2012 Tilboð : Fólksbíll – 6500,- (fullt verð 9000,-) Jepplingur – 8000,- (fullt verð 12.000,-) Pantaðu alþrif strax í dag Handþvottur / Handbón Er bíllinn þinn skítugur eftir helgina? BÓNSTÖÐIN DALVEGI 16C Sími 571-9900 / 695-9909 Skúli Hansen Björn Jóhann Björnsson Tillaga að breyttu aðalskipulagi á miðsvæði austan og vestan Vest- urlandsvegar hefur verið samþykkt af borgarráði. Tillagan hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfest- ingar og er þar nú í umsagnarferli. Er tillagan tilkomin vegna hug- mynda um gagnaver á Korputorgi, þar sem nú er rekin verslanamið- stöð. Þá gerir hún einnig ráð fyrir að í aðalskipulagi Reykjavíkur sé reiknað með vörugeymslum auk verslunarstarfsemi. Skráður eigandi fasteignarinnar á Korputorgi er félagið Stekkjar- brekkur, sem er í 100% eigu SMI- fjárfestinga. Það fasteignafélag er m.a. í eigu Færeyingsins Jakubs Jakobsens, eiganda Rúmfatalagers- ins og fleiri fyrirtækja. Arnar Hallsson hjá SMI segir málið skammt á veg komið. Ákveðið hafi verið að óska eftir breytingu á deili- og aðalskipulagi til að hafa mögu- leika opinn á gagnaveri í hluta af húsnæðinu, sem er alls um 40 þús- und fermetrar og hátt til lofts. Breskir ráðgjafar Breskt ráðgjafarfyrirtæki, GVA Connect, hefur verið fengið til að kynna verkefnið fyrir áhugasömum erlendum fjárfestum. Nefnist verk- efnið Titan Tech Park. „Þetta snýst um að svara spurningunni hvort þetta sé hægt og hvað þurfi að gera til þess. Þess vegna var breska fyr- irtækið fengið til að veita okkur ráðgjöf. Engir samningar liggja fyr- ir ennþá. Við bíðum bara eftir svari frá borginni um hvort þetta sé hægt á þessum stað. Ef heimild fæst er hægt að setja aukinn þunga í verk- efnið,“ segir Arnar. Stutt er í spennuvirki við Korpu- torg en Arnar segir það ekki skipta mestu máli fyrir gagnaver eða net- þjónabú. Gera þyrfti ráð fyrir frek- ari mannvirkjum á lóðinni ef gagna- ver yrði að veruleika. Taka vel í hugmyndina „Okkur líst prýðilega á þetta. Þetta er að mörgu leyti áhugaverð staðsetning fyrir gagnaver enda er þetta stutt frá spennuvirki,“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, aðspurður hvernig hon- um lítist á þá hugmynd að setja upp gagnaver á Korputorgi og bætir við: „Það er auðvitað eiganda húss- ins að meta hvernig hann telur það best nýtt en við sáum enga skipu- lagslega vankanta á þessari hug- mynd.“ Að sögn Júlíusar Vífils Ingvars- sonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins, byggðust rekstraráætlan- ir fyrir Korputorg á öðrum for- sendum en eru í gildi núna. „Reksturinn þar virðist ekki hafa gengið með sama hætti og vonir stóðu til og því er ekki óeðlilegt að verið sé að finna þessu húsnæði nýtt hlutverk,“ segir Júlíus Vífill aðspurður hvaða skoðun hann hafi á því að þarna verði sett upp gagna- ver. „Auðvitað verður að vera opið fyrir því og sveigjanleiki varðandi það að heimila rekstur sem getur komið meiri starfsemi inn í húsið, því að ennþá stendur það að hluta til autt. Við t.d. opnuðum fyrir það að þarna gæti verið bíósalur en það var ekki gert ráð fyrir því í fyrsta skipulaginu að húsinu,“ segir Júlíus Vífill ennfremur. Þá hefur erindi arkitektastofunnar Arkís um breyt- ingu á deiliskipulagi á Blikastaða- vegi 2-8, þ.e. Korputorgi, verið kynnt í skipulagsráði, en það var gert á fundi ráðsins hinn 13. júní síðastliðinn. Í erindinu er fólgin sú breyting á deiliskipulagi að lóðin verði skilgreind sem verslunar-, þjónustu- og athafnasvæði og jafn- framt að þrír nýir byggingarreitir verði afmarkaðir á henni. Skoða rekstur gagnavers  Eigendur Korputorgs íhuga nú að koma þar fyrir gagnaveri  Borgarráð hefur nú þegar samþykkt breytingu á aðalskipulagi  Borgarfulltrúar eru jákvæðir Morgunblaðið/Sigurgeir S. Korputorg Eigendur Korputorgs íhuga nú að setja þar upp gagnaver. Breyting á aðalskipulagi þess efnis hefur nú þegar verið samþykkt í borgarráði en jafnframt hefur breyting á deiliskipulagi verið kynnt í skipulagsráði. Heimild: Reykjavíkurborg/Arkís Breyting á aðalskipulagi nú þegar samþykkt í borgarráði Hugmynd að gagnaveri á Korputorgi Korputorg Spennuvirki „Frídagur versl- unarmanna er að útvatnast í ekki neitt,“ segir Stef- án Einar Stef- ánsson, formaður VR. Hann segir það áhyggjuefni hvað það eru margir sem vinna á frí- degi verslunar- manna og vill að þeir geti tekið aukafrídag á móti. „Miklar breytingar eru að verða á afgreiðslutíma sem við höfum ekki séð áður, má þar nefna allar búðir sem hafa opið á nóttunni. Okkur taldist til að 40 verslanir á höf- uðborgarsvæðinu væru opnar á nóttunni.“ Verslunarmannahelgin er aðal- ferðahelgi ársins og Stefán sagði að vissulega þyrfti að halda uppi þjón- ustu við alla þá sem væru að ferðast. „Þessir dagar hafa mjög mikil efna- hagsleg áhrif inn á svæðin sem halda þessar hátíðir. Ég tel að það þurfi að koma meira til móts við fólkið sem stendur vaktina á þessum dögum, ekki bara með álagsgreiðslum. Það þarf að tryggja að fólk hvílist, skemmti sér og njóti samvista við fólkið sitt.“ Nokkrar verslanir voru með lokað en ekki voru tiltæk gögn um hverjar þær voru nákvæmlega. Stóru versl- unarmiðstöðvarnar voru lokaðar auk Bónuss, Byko, Ikea og Fjarðar- kaupa. Breytilegt var hvaða Nettó- og Krónuverslanir höfðu opið í gær. thorunn@mbl.is Útþynntur frídagur Stefán Einar Stefánsson  Vill aukafrídag fyrir verslunarmenn Morgunblaðið/Eggert Verslað Formaður VR segir marga vinna á frídegi verslunarmanna. Mörgum létti við milt loftslagið sem víðast hvar var ríkjandi um land allt nýafstaðna verslunarmannahelgi. Að sögn Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræðings hjá Veðurvaktinni, var óvenjulegt hvað bæði var hæg- viðrasamt, þ.e. lítill vindur á landinu öllu, auk þess sem úrkoma var með minnsta móti og víðast hvar alveg þurrt, með örfáum undantekn- ingum. Með hæglátari sumrum í höfuðborginni Fyrir helgi benti Einar á heima- síðu sinni á að það sem af er sumri virðist sem meðalvindur í Reykjavík hafi verið lægri en nokkru sinni áður eða 2,4 m/s. Þykir meðalvindur hæg- ur þegar hann mælist undir eða við 3 m/s. Í júlí 2007 mældist meðalvindur í höfuðborginni 2,5 m/s og sé farið til aftur til ársins 2003 mældist hann 2,6 m/s. „Sumarið í sumar hefur klárlega verið með hæglátari sumrum í borg- inni,“ segir Einar. Minni vindur í lofti í bland við aukinn gróður og þéttari byggð hefur stuðlað að meira skjóli og hægari vindum í lægstu lögum. Skýrt afsprengi þessarar þróunar má m.a. sjá í auknu fram- boði og vinsældum útikaffihúsa í miðbænum. Besta sumar í 150 ár? „Við erum bara rétt rúmlega hálfnuð á þeirri vegferð,“ svarar Einar aðspurður hvort útlit sé fyrir besta sumar í 150 ár, en velt hefur verið vöngum yfir hvort sú verði raunin á vefsíðu Einars. Að hans sögn er sumarið reiknað frá júní- byrjun til septemberloka og því enn of snemmt að spá. Bestu sumur sem mælst hafa hér á landi, árin 1939, 2003 og 2010, hafa öll einkennst af einstaklega góðum septembermán- uði. „Í upphafi skyldi því endinn skoða,“ segir Einar. Vindafar í höfuðborginni óvenjuhagfellt í sumar  Hæglætisveður var í borginni og á landinu öllu um helgina Morgunblaðið/Golli Hægviðri Aukið framboð og vin- sældir útikaffihúsa fylgja blíðunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.