Morgunblaðið - 07.08.2012, Page 9

Morgunblaðið - 07.08.2012, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2012 Háþrýstidælur Teg: K 3.500 120 bör max 460 ltr/klst Teg: K 7.400 160 bör max 600 ltr/klst Þegar gerðar eru hámarkskröfur F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is makes a difference Bíla- og vélavörur ...sem þola álagið! Það borgar sig að nota það besta! Viftur HjólalegusettKúlu- og rúllulegur Hemlahlutir Hjöru- og öxulliðir Stýrisendar og spindilkúlurViftu- og tímareimar Kúplingar- og höggdeyfar th or ri@ 12 og 3. is /3 1. 31 3 www.falkinn.is Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is Það eru alltaf þjálfarar þér til aðstoðar … Heilsurækt fyrir konur Æfingin hjá okkur tekur aðeins 30 mínútur Sumarið er tíminn! Ég heiti Ásta Björt Thoroddsen, tannlæknir. Ég verð 70 ára 17. maí næstkomandi. Ég greindist með parkinsonveiki 2003 og var þá orðin stíf þrátt fyrir ýmiskonar leikfimi. Ég kynntist Curves 2 mánuðum eftir að að það hóf starfsemi árið 2005 og hef æft hér síðan 6x í viku. Þessar æfingar koma vöðvunum í gang og virka þannig að lyfin virka betur. Svona gat ég unnið áfram með því að byrja í Curves kl. 07:00 á morgnana. Curves heldur mér gangandi, mín blessun. Takk fyrir. Ásta Björt Ásta Björt Thoroddsen Samstarfshópur friðarhreyfinga stendur fyrir árlegri kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn nk. fimmtu- dagskvöld til að minnast fórn- arlamba kjarnorkuárásanna á Hi- roshima og Nagasaki í Japan í ágúst árið 1946. Friðarsinnar hafa komið saman á þessum stað frá árinu 1985 og er þetta því í 28. sinn sem kertafleytingin fer fram. Um er að ræða hefð sem upprunnin er í Japan en athafnir af þessu tagi fara fram víða um heim. Athöfnin hefst kl. 22:30 við suð- vesturbakka Tjarnarinnar. Fund- arstjóri verður Silja Bára Ómars- dóttir, aðjúnkt við HÍ. Morgunblaðið/Ómar Kertafleyting Frá athöfninni árið 2010. Kertafleyting að kvöldi fimmtudags „Tjónið hleypur að minnsta kosti á nokkrum milljónum,“ sagði Ár- mann Einarsson, útgerðarstjóri Auðbjargar ehf. Eldur kom upp í skipinu Arnari ÁR 55 sem var við bryggju í Þor- lákshöfn í gær. Skipið er 250 tonn og hefur verið á makrílveiðum. Nokkuð greiðlega gekk að slökkva eldinn. Búið var að slökkva hann um tíuleytið í gærmorgun, tveimur tímum eftir að tilkynnt var um eldinn. Ljóst er að stopp verður í útgerð- inni að minnsta kosti nokkrar vik- ur. Ekkert skip mun leysa Arnar af í makrílveiðunum. Lögreglan á Selfossi rannsakar eldsupptökin en millidekkið var nokkuð illa útleikið. Milljónatjón vegna elds í Arnari ÁR Umferðarstofa vill brýna fyrir öku- mönnum að bregðist ekki við óvæntum og jafnvel fleygum veg- farendum þannig að hætta skapist á að þeir fari yfir á öfugan veg- arhelming, missi stjórn á bílnum eða velti honum. Slíkt óhapp átti sér stað að morgni laugardags á Ólafsfjarð- arvegi. Ökumaður reyndi að sveigja framhjá fuglum sem voru á veginum. Þessi viðbrögð höfðu þær afleiðingar í för með sér að hann missti stjórn á bílnum og velti hon- um. Engin slys urðu á fólki. Ekki er þó ætlunin að gera lítið úr þeirri viðleitni ökumanna að vernda og verja líf fugla sem á vegi þeirra verða, segir Umferðarstofa. Ökumenn verða að bregðast rétt við Rúmlega 9% meiri áfengissala var í vikunni fyr- ir verslunar- mannahelgi í ár en sama tímabil í fyrra. Verslunar- mynstrið ein- kenndist af meiri fyrirhyggjusemi en í fyrra, því fleiri lögðu leið sína í Vínbúðir fyrri hluta vikunnar og sala föstudagsins var 10% minni en 2011, að sögn Sigrúnar Óskar Sig- urðardóttur, aðstoðarforstjóra ÁTVR. Alls lögðu 105.643 viðskiptavinir leið sína í Vínbúðirnar í vikunni og keyptu 620 þúsund lítra af áfengi. 105 þúsund manns fóru í vínbúðirnar STUTT Frystitogarinn Höfrungur III AK-250 lagðist í gær að bryggju í Reykjavíkurhöfn með mikinn afla, einn þann mesta sem skipið hefur komið með að landi. „Ég held að þetta geti nú verið ein stærsta löndunin. Þetta er ágætt í tonnum, svona í einni löndun. Ætli við séum ekki með um 900 tonn upp úr sjó á 30 dögum. 500 tonn af ufsa. Hitt er karfi, þorskur, ýsa og makríll,“ sagði Ævar Smári Jó- hannsson skipstjóri, en skipið siglir aftur út á föstudaginn á makrílveið- ar. Höfrungur III AK-250 er um 1.500 brúttótonna skip, smíðað í Kristjánssundi í Noregi árið 1988. Skipið hefur rúmlega þúsund tonna aflamark í þorski, um 935 tonn af karfa og tæp ellefu hundruð tonn af ufsa auk fleiri tegunda . ipg@mbl.is Ljósmynd/HB Grandi Fengsæll Höfrungur III AK-250 er 1.000 tonna skip smíðað í Noregi. Kom með 900 tonna afla í land

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.