Morgunblaðið - 07.08.2012, Side 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2012
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
V
ið göngum fjóra til
fimm tíma á dag, allt í
miklum rólegheitum
og við tökum líka tillit
til þess að þarna er
frekar heitt. Ef fólk vill ekki að
koma með í labbið einhvern dag-
inn, þá má það alveg dvelja í garð-
inum eða gera hvað annað sem
það vill. Þetta verður allt mjög
frjálst. Við göngum alltaf frá hót-
elinu og þurfum ekki að láta
skutla okkur og ekki burðast með
neitt. Við tökum bara með okkur
fallegan dúk, brjótum brauð og
borðum. Við ætlum að horfa að-
eins fram fyrir tærnar á okkur, á
það sem er nálægt okkur, en ekki
horfa einvörðungu langt út í busk-
ann,“ segir Anna Dóra Her-
mannsdóttir sem ætlar að fara
fyrir hópi Íslendinga í göngu- og
jógaferð til Tyrklands í haust, á
vegum Göngu Hrólfs og Vida-
ferða.
Námskeið í
tyrkneskri matargerð
Anna Dóra hefur starfað sem
jógakennari í tæp tuttugu ár og
því fléttaði hún inn í ferðirnar
jóga og hugleiðslu.
„Við dveljum á jógahóteli
uppi í fjöllunum og byrjum hvern
dag með jóga úti í garði undir
laufskrúði trjánna. Í allri mat-
argerð á hótelinu er lögð áhersla á
lífrænt hráefni og hráefni úr hér-
aði, en tyrkneskur matur er
þekktur fyrir gæði og hvergi er
eins mikið af lífrænt vottuðum bú-
um en á Tyrklandi. Við verðum
með tyrkneskan leiðsögumann
með okkur en ég fæ líka að
stjórna,“ segir Anna Dóra og
hlær. „Leiðsögumaðurinn og hans
kona eru miklir matgæðingar og
þau ætla að bjóða okkur heim einn
morguninn á mini-námskeið í
tyrkneskri matargerð. Svo borð-
um við að sjálfsögðu afrakst-
urinn.“
Heimsækjum m.a
skjaldbökuverndarsvæði
„Við þræðum okkur um fjöllin
og þetta dásamlega svæði í dag-
legum gönguferðum og siglum
bæði á vötnum og sjó. Og við ætl-
Að njóta frekar
en að þjóta
Hún ætlar að leiða fólk í gönguferð þar sem dvalið verður á jógahóteli í tyrk-
neskum fjöllum. Hver dagur byrjar með jóga úti í garði og göngugarpar þræða sig
um fjöllin í daglegum göngum, sigla bæði á vötnum og sjó og borða góðan mat.
Lótus Anna Dóra í jógastellingu að hugleiða úti í náttúrunni.
Á vefsíðunni motleyhealth.com
undir fitness má finna leiðarvísi að
20 mínútna löngu æfingapró-
grammi til að fylgja eftir heima
fyrir. Hitað er upp með léttu skokki
og síðan taka við átta æfingar sem
ætlaðar eru til brennslu og að
styrkja líkamann. Er um að ræða
klassískar æfingar sem útskýrðar
eru skref fyrir skref. Þeim er ætlað
að styrkja sem flesta staði lík-
amans enda ómögulegt annað en
að æfa flest nokkurn veginn jafnt.
Ef þú ert orðinn leið/ur á æf-
ingaprógramminu þínu eða vilt
rifja upp hvaða æfingar sé sniðugt
að gera er sniðugt að kíkja á þessa
vefsíðu. Ef veður er gott geturðu
líka breytt til og gert æfingarnar
utandyra. Það er jú enn betra að
æfa í frísku lofti og þá hægt að
bæta jafnvel aðeins við prógramm-
ið skokki eða röskri göngu.
Vefsíðan www.motleyhealth.com
Morgunblaðið/Frikki
Heimaleikfimi Ýmsar æfingar fyrir líkamann er auðvelt að gera heima fyrir.
Hressandi heimaleikfimi
Jökulsárhlaupið fer fram í stórkost-
legu umhverfi Jökulsárgljúfra í
Vatnajökuls-þjóðgarði. Hlaupið hent-
ar hvort sem er reynslumiklum lang-
hlaupurum sem og þeim sem vilja
takast á við utanvegahlaup í fyrsta
sinn, þar sem í boði er að hlaupa
þrjár mismunandi vegalengdir: 32,7
km, 21,2 km og 13 km.
Lagt er af stað frá mismunandi
stöðum fyrir hverja vegalengd en öll
hlaupin enda í Ásbyrgi. Jökulsár-
hlaupið hefur verið haldið árlega síð-
an 2004 og hefur fjöldi þátttakenda
vaxið jafnt og þétt. Nú hafa verið
settar fjöldatakmarkanir við 350
þátttakendur. Þetta er talið nauðsyn-
legt til að vernda viðkvæma náttúru,
stuðla að betra öryggi þátttakenda
og viðhalda góðu þjónustustigi við
hlaupara. Skráning fer fram á vefsíð-
unni www.jokulsarhlaup.is og þar má
nálgast allar frekari upplýsingar um
hlaupið.
Endilega…
…skráðu þig í Jökulsárhlaupið
Ljósmynd/Þór Gíslason
Jökulsárhlaup Hlaupið er í stórkostlegu umhverfi Jökulsárgljúfra.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Yndisferð Hér er Anna Dóra með ferðahóp í Jökulsárgljúfrum.
Strönd Tyrkneskar strendur eru fallegar og liturinn túrkísblár.