Morgunblaðið - 07.08.2012, Blaðsíða 11
um að borða heilmikið af góðum
mat. Inn í ferðina er fléttað þess-
ari hugmyndafræði, að njóta frek-
ar en þjóta. Að njóta augnabliks-
ins og dvelja í núinu. Þetta er
ákaflega fagurt svæði og í kring-
um jógahótelið hefur byggðarlagið
sameinast um að leyfa ekki bygg-
ingar sumarhúsa erlendra ferða-
mann né hótelkeðja, til að halda
svæðinu sem ósnortnustu. Við
verðum í fjöllunum í sjö nætur en
færum okkur svo síðustu þrjá dag-
ana niður í lítið þorp við strönd-
ina, þaðan sem við getum gengið
niður á strönd og heimsótt meðal
annars skjaldbökuverndarsvæði,
en ströndin er þekkt fyrir að þar
verpir ákveðin skjaldbökutegund
eggjum og kemur upp ungum sín-
um. Af þessum sökum má ekki
byggja hús eða hótel á þessari
strönd. Á torgum litlu þorpanna
sem við göngum í gegnum, úir og
grúir af handverksmörkuðum og
við látum það ekki framhjá okkur
fara frekar en annað áhugavert.“
Í Yndisferðum fá allir sína
persónulegu nálgun
Anna Dóra hefur verið með
svokallaðar Yndisferðir á eigin
vegum í þónokkuð mörg ár hér
heima á Íslandi. „Ég þróaði Ynd-
isferðir alveg sjálf, en eftir að ég
hafði verið leiðsögumaður og land-
vörður í áraraðir, þá fannst mér
tími til komin að ég gerði eitthvað
sjálf. Ég hætti að starfa sem land-
vörður í kjölfarið af því að ég
flutti aftur í sveitina hér á
Klængshóli sem er fremsti bær í
Skíðadal. Ég byrjaði með stuttar
dagsferðir sem snerust aðallega
um fræðslu um íslenskar plöntur,
hverjar þeirra við getum notað
okkur úr náttúrunni til góðs, hvort
sem það er til að krydda mat, nota
í te eða eitthvað annað. Ég flétta
inn í fróðleik um lækningajurtir
og hvernig þær hafa verið nýttar í
gegnum aldirnar. Ég spinn þetta
út frá hugmyndafræði sem er not-
uð mikið í þjóðgörðum og kallast
náttúrutúlkun, en þá er fólk leitt
áfram á aðeins annan hátt en
venjulegur leiðsögumaður gerir.
En vissulega spilar jógað og hug-
leiðslan stóran þátt sem og ást
mín á landinu. Ég takmarka
fjöldann í Yndisferðum við tólf
manns, því mér finnst ákveðin
gæði felast í því að vera með litla
hópa. Þá fá allir sína persónulegu
nálgun, hægt er að sinna öllum og
allir hafa sitt rými. Þá næ ég líka
að læra nöfn allra í ferðinni,“ seg-
ir Anna Dóra og bætir við að hún
hafi ekki aðeins verið með Ynd-
isferðir á Tröllaskaga heldur líka
við Jökulsárgljúfur, í Kerling-
arfjöllum, í Ódáðahrauni og víða
annars staðar.
Siglt Í ferðinni verður siglt í fögru umhverfi á hafi og vötnum.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2012
Tilvalið fyrir heimilið og sumarbústaðinn
PLÍ-SÓL
GARDÍNUR
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
Ef þú staðg
reiðir
sendum vi
ð frítt
hvert á lan
d sem er
H
jólastólahandbolta-
deild HK var stofn-
uð haustið 2010 af
tveimur áhugamönn-
um um handbolta
sem vildu að fatlaðir gætu stundað
hópíþrótt. Það voru þeir Friðrik
Þór Ólason, formaður félagsins, og
Gunnar Guðmundsson sem áttu
hugmyndina
en með þeim í stjórn situr einnig
Alexander Harðarson. Hann hefur
skráð sig til leiks í Reykjavíkur
maraþoninu þann 18. ágúst næst-
komandi þar sem hann ætlar að
fara tíu kílómetrana á hjólastóln-
um sínum en áheit munu renna til
deildarinnar.
Jákvætt skref fram á við
„Ákveðið var að skella í hjóla-
stólahandboltahóp sem var stofn-
aður árið 2010 en áður höfðum við
nokkrir verið að leika okkur sjálfir
í þessu. Við vildum fara í samstarf
við íþróttafélag og þá steig HK
óvænt fram og við slógum til með
að æfa hjá þeim.
HK tók stórt skref með þessu
og er í raun fyrsta almenna
íþróttafélagið þar sem fötluðum
íþróttamönnum býðst að æfa einir
og sér. Hjá mörgum félögum t.d. í
sundi fá fatlaðir íþróttamenn að
æfa með ófötluðum og eins eru til
íþróttafélög fatlaðra. En nú höfum
við í fyrsta sinn val um að fatlaðir
íþróttamenn geti æft í sér liði inn-
an almenns íþróttafélags. sem er
mjög jákvætt skref. Síðasta tíma-
bil fengum við þjálfara til liðs við
okkur, þá Darra McMahon og
Magnús Magnússon, svo þetta er
orðið að alvöru hjá okkur. Nú væri
frábært að hafa lið til að keppa við
en þessi markaður hér er svo lít-
ill,“ segir Alexander.
Hamagangur á vellinum
Alexander segir nauðsynlegt að
vera svolítið hraustur í þessari
íþrótt þar sem reynir mikið á
hendurnar en þeir félagarnir komi
þó úr ólíkum bakgrunni. Sumir
hafi æft íþróttir frá unga aldri en
aðrir séu rétt að byrja.
„Þetta er gróf íþrótt enda
snertiíþrótt og því ekkert fyrir
alla. Maður þarf að hafa svolitlar
taugar í þetta enda er oft mikill
hamagangur á vellinum,“ segir Al-
exander.
Í hópnum eru um 20 manns og
var æft tvisvar sinnum í viku síð-
astliðinn vetur en Alexander segir
líka nokkurn samgang vera utan
vallar hjá hópnum. Enda hafi þeir
sumir hverjir þekkst lengi. Nú
stendur fyrir dyrum keppnisferð
hjá hópnum í desember til Svíþjóð-
ar. Ákvað Alexander því að láta
verða af því að skrá sig í Reykja-
víkur maraþonið og nýta það sem
fjáröflun fyrir ferðina.
„Ég hef velt því fyrir mér í
nokkur ár að taka þátt í maraþon-
inu og ákvað nú að slá tvær flugur
í einu höggi. Ég vona bara að
minn náttúrulegi styrkur dugi í
þetta,“ segir Alexander sem fór
Hellisheiðina á hjólastól fyrir
nokkrum árum, upp Kambana og
niður hinu megin. Ágóðinn af þeim
áheitum rann til Barnaspítala
hringsins en fyrir þá sem vilja
heita á Alexander í þetta sinn er
bent á vefsíðuna www.hlaupastyrk-
ur.is, áheitanúmer hans er 2267.
Hjólastólahandboltadeild HK
Hópur Mikill hamagangur vill verða á vellinum þegar menn takast á.
Fer tíu kílómetra
maraþon í hjólastól
Hraustur Alexander Harðarson.
Jóga og ganga í Vestur-Lýkíu:
4. – 14. september 2012.
Dvalið verður 7 nætur á Hótel
Faralya sem er rétt hjá hinu
rómaða Bláa lóni Oludeniz.
Lýkíuleiðin liggur eftir endi-
langri Lýkíuströndinni, land-
svæði þar sem Lýkíar bjuggu á
öldunum fyrir Krist. Lagt er af
stað í ca 800 metra hæð á öxl
‘Baba Dag’ fjallsins sem er
1.960 m hátt. Bátsferð m.a frá
Oludeniz ströndinni, sem er
með snjóhvítum sandi við
túrkisblátt haf.
Jóga í Vestur-Lýkíu
TÚRKISBLÁTT HAF
www.gonguhrolfur.is
www.skidadalur.is
Ganga Gönguleiðirnar eru stórbrotnar og hér sér yfir Öludenizströnd.
Vatnsmýrarhlaupið verður haldið í 18.
sinn fimmtudaginn 9. ágúst næst-
komandi. Hlaupið er frá Ráðhúsi
Reykjavíkur og út að Reykjavík-
urflugvelli og þaðan aftur að Ráðhús-
inu. Er vegalengdin 5 km með tíma-
töku og hefst hlaupið kl. 20.
Flokkaskipting fyrir bæði kyn er:
14 ára og yngri
15-49 ára
50 ára og eldri. Hægt er að forskrá
sig á hlaup.is til kl. 15 á keppnisdag
og í Ráðhúsinu eftir kl. 17 á keppn-
isdag. Skráningargjöld eru 1.000 kr .
Vatnsmýrarhlaupið
Hlaup 5 km langt með tímatöku.
Hlaupið frá
Ráðhúsinu