Morgunblaðið - 07.08.2012, Page 16

Morgunblaðið - 07.08.2012, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2012 Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is Íslensk hönnun og framleiðsla A81 Hönnuðir: Atli Jensen og Kristinn Guðmundsson Verð frá: 27.800,- www.facebook.com/solohusgogn Bíldshöfði 14 » 110 Reykjavík » Sími 567 6744 » gsvarahlutir.is Triscan gormar, bremsu- og stýrishlutir Pöntum á fimmtudögum, varan komin á mánudegi Harðar deilur standa nú yfir í Bandaríkjunum um skyndi- bitastaðakeðjuna Chick-fil-A. Keðjan, eða öllu heldur eig- andi hennar og stjórnandi, hefur tekið eindregna afstöðu gegn hjúskaparréttindum samkynhneigðra og m.a. stutt fjárhagslega kristin samtök sem beita sér í málaflokknum. Fyrir vikið hafa samkynhneigðir og stuðningsmenn þeirra reynt að fá sem flesta til að sneiða hjá kjúklinga- keðjunni. Sem mótvægi við þeim aðgerðum hafa þeir sem aðhyllast íhaldssamari fjölskyldu- og trúargildi þjappað sér á bak við Chick-fil-A og lagt sig fram við að versla við fyrirtækið. Nú hefur framtakssamur lögfræðingur í Washington, Ted Frank, tekið upp á að bjóða það sem kalla mætti syndaaflátsbréf kjúklingaunnandans (e. Chicken Offsets). Wall Street Journal greinir frá að þar geti þeir sem ekki geta staðist kjúklingasamlokurnar skapað mótvægi við stefnu veitingastaðarins og keypt peningagjöf sem send er til samtaka sem berjast fyrir réttindum samkynhneigðra. Á kerfið að verka með svipuðum hætti og kolefnis- jöfnun sem sum flugfélög bjóða farþegum sínum að kaupa. Fyrir einn bandaríkjadal má siðferðis-jafna kjúklinga- máltíð fyrir einn, en hagkvæmara er að siðferðisjafna tíu máltíðir fyrir sex dali. ai@mbl.is Unnendur kjúklingasamloka geta friðað samviskuna  Uppátæki lögfræðings mótvægi við stefnu banda- rískrar skyndibitakeðju AFP Deilur Frá mótmælum við Chick-fil-A. Bandaríska fjármálafyrirtækið Knight Capital Group fékk hjálp frá fjárfestum á mánudag og inn- spýtingu sem jafngildir 400 millj- ónum dala. Bloomberg-fréttaveitan greinir frá að Knight Capital hafði fengið á sig nær banvænt högg á miðviku- daginn þegar tæknibilun í fjárfest- ingartölvum fyrirtækisins fram- kallaði söluagerðir sem kostuðu fyrirtækið á örstuttum tíma um 440 milljónir dala, jafngildi 53 milljarða króna. Tilraunaforriti sleppt lausu? Markaðssérfræðingur Yahoo! Finance segir ekki enn að fullu ljóst i hverju tæknibilunin fólst. Þó er óstaðfestur orðrómur á kreiki um að Knight hafi fyrir mistök sleppt tilraunaforriti lausu á mark- aðinum. Meðal þeirra sem fjárfest hafa í flaki Knight Capital eru Getco, Blackstone Group, Stifel Nicolaus & Co. og Jeffries Group. Þótt fyr- irtækið muni halda áfram starf- semi sitja hluthafar Knight eftir með sárt ennið en hlutir féllu um 61% í síðustu viku og fjórðung til viðbótar í viðskiptum á mánudag. Þótt tæknibilunin og björgunar- aðgerðin virðist ekki hafa skekið markaðinn gæti atburðarásin dregið dilk á eftir sér. Atvikið hef- ur orðið til þess að líklegt þykir að bandaríska þingið vilji fara nánar í saumana á sjálfvirkum viðskiptum í kauphöllum. ai@mbl.is AFP Spenna Sölumaður á hlutabréfamarkaði NYSE nagar neglurnar. Markaðir virðast hafa tekið fréttum af Knight Capital af yfirvegun. Fjárfestar koma Knight Capital til bjargar  Hluthafar sitja uppi með tapið Sænski bílaframleiðandinn Saab fór á hausinn í desember en lætur samt enn að sér kveða. Núverandi eig- endur Saab, hollenski bílaframleið- andinn Spyker Cars, hafa höfðað mál á hendur bandaríska risanum General Motors og krefjast bóta að upphæð þrír milljarðar evra, um 448 milljarðar króna. Hefðu komist í tæknileyfi Að sögn fréttastofu BBC hefur Spyker sakað GM um að hafa þving- að Saab í þrot með afskiptum af mögulegri sölu á fyrirtækinu til kín- verska framleiðandans Zhejiang Yo- ungman Lotus Automobile. Saab var lýst gjaldþrota í desember eftir að samningaviðræður við Zhejiang Yo- ungman sigldu í strand. General Motors átti hlut í Saab og á að hafa beitt sér gegn sölunni, m.a. vegna þess að hún hefði veitt kín- verska fyrirtækinu aðgang að tækni- leyfum sem Saab hefur fengið hjá GM. Eigur hins gjaldþrota Saab voru seldar til kínversk-sænsks fjárfest- ingafyrirtækis í júní en „lögaðilinn“ Saab er enn í eigu Spyker. ai@mbl.is Eigandi Saab í milljarðamál við GM  Stryker segir af- skipti GM hafa þvingað Saab í þrot AFP Milljarðar Victor Muller, stjórnandi Spyker Cars. Fyrirtækið segir að- gerðir GM hafa neytt Saab í þrot.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.