Morgunblaðið - 07.08.2012, Blaðsíða 19
Herskáir síkar í Indlandi mótmæltu
í gær fjöldamorði á síkum í Banda-
ríkjunum á laugardag, hér skera
þeir í sundur bandarískan fána við
bandaríska sendiráðið í Nýju Delí.
Wade Michael Page, sem grunaður
er um að hafa myrt sex manns í
skotárás á síkamusteri í Wisconsin,
var fertugur og fyrrverandi liðs-
maður bandaríska hersins, hann var
þar titlaður „sérfræðingur í sál-
fræðiaðgerðum“. Lögreglan skaut
Page til bana. Hann er sagður hafa
verið liðsmaður nýnasistasamtaka
og stýrt rokksveit rasista er nefndist
End Apathy.
Síkatrú er um 500 ára gömul ein-
gyðistrú með eigið tímatal og tungu,
um 27 milljón síkar eru í heiminum,
flestir í Indlandi en hálf milljón í
Bandaríkjunum. Síkum hefur stund-
um verið ruglað saman við múslíma
en karlar sem aðhyllast síkatrú
skerða ekki skegg sitt og ganga að
jafnaði með túrban. AFP
Síkamorð-
ingi var
nýnasisti
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2012
T
A
K
T
IK
_
ju
n
1
2
-
_
3
8
2
3
Pöntunarsími: 535 1300
Isa kælir Telion
veggkælir sem er með góðu söluplássi, botn 4
hillur og til í fimm breiddum Litur: Ljósgrár -
Ljós í hillum Hæð á söluplássi 1357mm -
Bogadregið hliðargler
Stæðir:
Stærð (b/d/h) mm: 706x725x2049
Stærð (b/d/h) mm: 1006x725x2049
Stærð (b/d/h) mm: 1306x725x2049
Stærð (b/d/h) mm: 1906x725x2049
Stærð (b/d/h) mm: 2506x725x2049
Til í 5 stærðum
Isa Econesos
kista sem er
bæði frystir og
kælir í sama tæki
3 lengdir - 150
cm - 200 cm og
250 cm
Kælir og frystir í sama tæki
Isa Slim veggkælir
Fáanlegur
í 3 stærðum:
70 cm - 100 cm -
130 cm
Til í 3 stærðum
Isa Fos
Inox er allur
úr stáli að
utan sem
innan. Flottur
og sölulegur
kælir sem
einnig er hægt
að fá sem blómakælir með 6
fötum.
Isa Frystiskápur
Mistral
Isa glerhurða
frystiskápur
bogadregin að
framan með
ljóasaskilti að
ofan.
Líka góður blómakælir
með 6 fötum
Isa Fos
ISA kælar og frystar
Draghálsi 4 - 110 Reykajvík
Sími: 535 1300 - Fax: 535 1305 - verslun@verslun.is
Frystiskápur
Ákveðið hefur verið að Condoleezza
Rice, fyrrverandi utanríkisráðherra,
verði meðal aðalræðumanna á
flokksþingi bandarískra repúblikana
þar sem forsetaefnið verður útnefnt.
Mitt Romney, sem verður forseta-
efni flokksins, hefur ekki enn valið
sér varaforsetaefni, Rice hefur að
undanförnu verið nefnd til sögunnar.
Yfirlýsingin um ræðumennina er
túlkuð misjafnlega. Sumir frétta-
skýrendur segja að með henni sé
Rice að segja skýrt að hún gefi ekki
kost á sér sem varaforsetaefni. Aðrir
komast að þveröfugri niðurstöðu.
Bent er á að Rice hafi mikla reynslu
og muni því ekki valda Romney álíka
vanda og Sarah Palin olli John
McCain 2008. Hún yrði fyrsta vara-
forsetaefni repúblikana úr röðum
blökkumanna.
Rice var þjóðaröryggisráðgjafi
George W. Bush, fyrrverandi for-
seta, og síðar utanríkisráðherra
hans. Kannanir hafa sýnt að um
tveir af hverjum þremur Banda-
ríkjamönnum hafa mikið álit á henni.
kjon@mbl.is
Verður Rice vara-
forsetaefni Romneys?
Í hópi aðalræðumanna á flokksþingi
Komið hefur á ný til blóðugra átaka milli búdda-
trúarmanna og múslíma af þjóðerni Rohingya í
Rakhine-héraði í vestanverðu Búrma, þrír voru
sagðir fallnir í gær. Alls hafa um 80 manns fallið
síðan í júní. Frakkar skoruðu í gær á stjórnvöld í
Búrma að tryggja öryggi allra íbúa á svæðinu, án
tillits til þjóðernis.
Mannréttindasamtök segja að búrmískir her-
menn hafi skotið á múslímana og yfirvöld ekki
reynt að grípa inn þegar múslímakonum hafi ver-
ið nauðgað. Múslímar í Rakhine eru ættaðir frá
Bangladess, grannlandi Búrma, en hefur verið meinað að fá ríkisborg-
ararétt. Þorri landsmanna lítur á þá sem útlendinga; langflestir Búrma-
menn eru búddistar. Bangladess reynir að hindra fólkið í að flýja yfir
landamærin og vill ekki taka ábyrgð á því. En múslímar víða um heim mót-
mæla nú meintum ofsóknum gegn Rohingya. kjon@mbl.is
Mannskæð átök milli búddista og múslíma
Mótmælt í Indónesíu.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Bandarískir vísindamenn hjá geim-
ferðastofnuninni, NASA, unnu mikið
afrek um hálfsexleytið í gærmorgun
að íslenskum tíma þegar þeim tókst
að lenda nýjasta Marsjeppanum, Cur-
iosity, heilu og höldnu á reikistjörn-
unni. Allt benti til þess að verkefnið,
sem kallað hefur verið ein flóknasta
tilraun í sögu geimvísindanna, hefði
heppnast fullkomlega. Hefur jeppinn
þegar sent frá sér tvær myndir.
Curiosity er sex hjóla ómönnuð
rannsóknarstöð, hlaðin tækjabúnaði,
og mun innan nokkurra vikna hefja
ferðalag um nágrennið, taka sýni og
greina þau. Fyrst þarf að kanna vand-
lega hvort allur búnaður sé í lagi. Far-
artækið lenti í Gale-gígnum svo-
nefnda sem er geysilega djúpur, þar
eru jarðlög sem eru allt að þúsund
milljón ára gömul.
Með rannsóknum jeppans vonast
menn til þess að hægt verði að varpa
ljósi á aðstæður á Mars fyrir nokkrum
milljörðum ára, hvort þar hafi eitt
sinn verið mögulegt að líf gæti þróast.
Jeppanum var skotið á loft 26. nóv-
ember í fyrra en vegalengdin til Mars
var um 563 milljón kílómetrar. Síð-
ustu sjö mínúturnar í ferðinni var
spennan mest hjá vísindamönnum
NASA, „sjö ógnarmínútur“. Ef eitt-
hvað færi úrskeiðis gæti það haft
slæm áhrif á stöðu NASA en margir
vilja skera niður framlög til geimvís-
inda á krepputímum. Beitt var nýrri
aðferð við að lenda farinu, ekki var
gerlegt að kanna fyrst með tilraunum
hvort hún gengi eftir. Eins konar
krani með rakettum lét jeppann síga
niður á yfirborðið þegar það nálgaðist,
ekki var hægt að nota loftpúða til að
minnka höggið eins og á eldri jepp-
unum 2004. Raketturnar voru notaðar
til að draga úr lendingarhraðanum
sem var undir lokin innan við einn
metri á sekúndu.
Nýtt stórafrek í geimvísindum
Bandaríkjamenn lentu afar öflugri
rannsóknastöð á hjólum á Mars
AFP
Léttir Fjarskiptafræðingurinn Peter Ilott (fyrir miðju) faðmar kollega í
stjórnstöð NASA þegar ljóst var að lending Curiosity hafði heppnast.
Dýrt ferðalag
» Ferð Curiosity hefur kostað
um 300 milljarða ísl. kr. og
þegar er búið að tryggja fé til
rannsókna næstu tvö árin. Lík-
legt er þó talið að farartækið
muni endast mun lengur.
» Curiosity er eitt tonn að
þyngd og á stærð við lítinn bíl.
Jeppinn er því mun stærri en
fyrirrennararnir Spirit og Opp-
ortunity sem lentu á Mars
2004.