Morgunblaðið - 07.08.2012, Page 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2012
Elsku Lárus, takk fyrir allt.
Ég kveð þig með fallega ljóðinu
frá Eyjum, „Góða nótt“.
Dagurinn kveður, mánans bjarta brá
blikar í skýja sundi.
Lokkar í blænum, leiftur augum frá,
loforð um endurfundi.
Góða nótt, góða nótt,
gamanið líður fljótt,
brosin þín bíða mín,
er birtan úr austri skín.
Dreymi þig sólskin og sumarfrið,
syngjandi fugla og lækjarnið.
Allt er hljótt, allt er hljótt
ástin mín, góða nótt.
(Ási í Bæ)
Lárus
Kristjánsson
✝ Lárus Krist-jánsson fæddist
á Heiðarbrún, Vest-
mannabraut 59,
Vestmannaeyjum,
28. ágúst 1929.
Hann lést 19. júlí
2012.
Úför Lárusar fór
fram frá Landa-
kirkju í Vest-
mannaeyjum 28.
júlí 2012.
Hvíl í friði, elska
þig. Knúsaðu Gunnu
þína frá mér.
Þín spariten-
gadadóttir,
Emma Vídó.
Elsku Lárus
tengdafaðir minn,
takk fyrir allt. Ég
kveð þig með fallega
ljóðinu frá Eyjum,
„Góða nótt“.
Dagurinn kveður, mánans bjarta brá
blikar í skýja sundi.
Lokkar í blænum, leiftur augum frá,
loforð um endurfundi.
Góða nótt, góða nótt,
gamanið líður fljótt,
brosin þín bíða mín,
er birtan úr austri skín.
Dreymi þig sólskin og sumarfrið,
syngjandi fugla og lækjarnið.
Allt er hljótt, allt er hljótt
ástin mín, góða nótt.
(Ási í Bæ)
Knúsaðu Gunnu þína frá mér.
Hvíl þú í friði, elska þig.
Þín sparitengdadóttir,
Emma Hinrika.
Ég var á tólfta
ári þegar ég kom á
kosningaskrifstofu Alþýðu-
bandalagsins í Kópavogi og
bauð fram liðsinni. Það var upp-
haf á pólitískri vegferð sem
ekki sér enn fyrir endann á.
Það sem heillaði mig allt frá
byrjun var óeigingjarnt og fórn-
fúst starf þess hugsjónafólks
sem þarna kom saman og sá
mikli einhugur sem var um
verkefnin í hinni pólitísku bar-
áttu. Alþýðubandalagsmenn í
Kópavogi spönnuðu rétt eins og
annars staðar allt litróf ólíkra
skoðana, en þeir voru ekki
kreddukommar. Þeir höfðu um
langt árabil haft lykiláhrif á
stjórn og rekstur bæjarfélags-
ins og höfðu næman skilning á
því hvernig ætti að tengja hug-
sjónir um jöfnuð og félagslegt
Hallvarður Sigurð-
ur Guðlaugsson
✝ HallvarðurSigurður Guð-
laugsson fæddist
16. október 1919.
Hann lést 18. júlí
2012.
Útför Hallvarðar
fór fram frá
Digraneskirkju 31.
júlí 2012.
réttlæti eðlilegum
löngunum venju-
legs fólks um betri
kjör og aðstæður
fyrir sig og sína.
Hallvarður Guð-
laugsson var einn
tryggasti liðsmað-
urinn í þessum
hópi. Hann var ein-
dreginn sósíalisti
frá unga aldri. Ófá-
ar eru sögurnar af
fórnfýsi hans í þágu hreyfing-
arinnar – ef eitthvað þurfti að
smíða eða gera var hann fyrstur
á vettvang. Þáttur hans í bygg-
ingarsögu húss yfir Þjóðviljann
er margfrægur. Hann varð liðs-
maður Samfylkingarinnar þegar
við stofnun hennar og tók virk-
an þátt í starfi okkar allt til
loka. Hann var almennt talinn
til vinstri í Alþýðubandalaginu
og því voru margir hissa á að
hann skyldi taka þátt í Samfylk-
ingunni. Afstaða hans var hins
vegar skýr: Flokkurinn hafði
tekið ákvörðun um að taka þátt
í þessari tilraun og hann var
hluti af þeirri ákvörðun. Það er
þetta jákvæða flokksholla við-
horf fólks eins og Hallvarðar
sem skýrir stærð og fjölbreyti-
leika Samfylkingarinnar. Við
njótum þess að eiga rætur víða,
hjá ólíku fólki með fjölbreyttar
skoðanir, sem á það sameigin-
legt að hafa ákveðið að leggja
meiri áherslu á það sem sam-
einar það, en hitt sem skilur að.
Ég fékk byggingarvinnu hjá
Hallvarði í einu jólafríi á
menntaskólaárum og endurnýj-
aði þá við hann kynnin úr æsku.
Þegar í pólitík var komið varð
hann einn minn dyggasti stuðn-
ingsmaður og veitti mér liðsinni
í hvert sinn sem óskað var. Sá
stuðningur var jafnt í blíðu sem
stríðu, enda Hallvarður hvorki
huglaus maður né maður mála-
lenginga. Þegar ég varð ráð-
herra kom í minn hlut það óvin-
sæla og erfiða verkefni að
draga saman í útgjöldum til við-
kvæmra málaflokka velferðar-
mála. Þá var Hallvarður fullur
stuðnings, sýndi skilning á
nauðsyn þessa erfiða verkefnis
og hrósaði mér í bak og fyrir.
Fyrir allt starf Hallvarðar í
þágu hreyfingar jafnaðarmanna
í kjördæminu um áratugi er
vert að þakka. Sjálfur þakka ég
að leiðarlokum stuðning, upp-
örvun og skemmtilega sam-
fylgd. Fjölskyldu Hallvarðar
sendi ég mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Árni Páll Árnason.
„Sæll, frændi. Gakktu í bæ-
inn.“
Ég er kominn heim til Hall-
varðar frænda míns í Kópavog-
inum. Hann hafði beðið mig að
aðstoða sig við frágang bækl-
ings sem innihélt fróðleik um
örnefni í Hælavík og Hælavík-
urbjargi, auk nokkurra mola
um fólk og mannlíf norður í
Víkum á Hornströndum. Fram
til þessa hef ég vel vitað af
Hallavarði frænda mínum, það
hafa allir í ættinni, hitt hann á
mannamótum og við ýmsa við-
burði í fjölskyldunni, við höfum
spjallað saman en ég hef ekki
kynnst honum að neinu ráði.
Um nokkurt skeið hittumst
við oft og ég er auðugri eftir.
Hallvarður Guðlaugsson var
maður stórfróður og sagði
skemmtilega frá. Hann var upp-
alinn í Hlöðuvík á Hornströnd-
um og þar norður frá dvaldist
hugur hans löngum. Hann var
fastur fyrir og einarður í skoð-
unum og lá ekkert á áliti sínu á
mönnum og málefnum – en þeg-
ar kom að tengslunum við
björgin og mannlífið á gömlum
heimaslóðum varð tónninn mild-
ur, augun fjarræn og úr þeim
streymdi blíða og væntum-
þykja.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
fengið að kynnast Hallvarði bet-
ur núna síðustu árin og votta
Guðmundi syni hans og fjöl-
skyldu, og öðrum aðstandend-
um, samúð mína vegna fráfalls
þessa síunga öldungs.
Guðni Kolbeinsson.
✝ Antonía JúlíaKristjánsdóttir
(Júlla í Brautarhóli),
fæddist 7. ágúst
1926 í Ási, Gler-
árþorpi, Akureyri.
Júlía lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri, 22. júlí
2012.
Foreldrar Júlíu
voru hjónin Kristján
Jóhann Jónsson, f. 3.
október 1897, d. 4. mars 1960 og
Anna Jónsdóttir, f. 16. júlí 1897,
d. 9. september 1974. Systkini
Þorsteinn Jónsson, f. 25 mars
1898, d. 6. janúar 1968 og Sigrún
Ingibjörg Björnsdóttir, f. 13. des-
ember 1902, d. 26. maí 1984. Júlía
og Jón eignuðust saman fjögur
börn. 1) Þorsteinn Heiðar, f. 30.
nóvember 1946. Börn a) Jón
Heiðar, f. 30. október 1972, sam-
býliskona Hallveig Rúnarsdóttir,
f. 8. júlí 1974, b) Birgitta Lára, f.
18. desember 1983, c) Ragna
Steina, f. 16, júní 1986, maki Er-
lingur Guðbjörnsson, f. 27. nóv-
ember 1972. 2) Sigrún Fanney, f.
26. júní 1948. Sambýlismaður Sig-
urður Stefánsson. Börn þeirra
eru a) Jónheiður Kristín, f. 1.
október 1970, b) Júlía, f. 28. júní
1975, c) Stefán Ingi, f. 4. júlí 1976,
sambýliskona Hilma Eiðsdóttir, f.
12. janúar 1982, d) Jón Pétur, f.
17. mars 1978, sambýliskona Bel-
inda Ýr Hilmarsdóttir, f. 13. apríl
Júlíu voru Jón Ingi-
mar, f. 8. nóvember
1919, d. 21. mars
1992, Alda, f. 22.
nóvember 1920, d.
14. janúar 2006,
Laufey, f. 26. nóv-
ember 1921, d. 6.
maí 1990 og Þor-
gerður, f. 17. febr-
úar 1924, d. 1. mars
2004.
Júlía giftist 20.
apríl 1945 Jóni Heiðari Þorsteins-
syni, f. 4. mars 1926, d. 15. maí
1999. Foreldrar Jóns voru hjónin
Elsku amma, nú ert þú farin.
Það er erfitt að hugsa til þess að
þú sért ekki hér með okkur
lengur, tilbúin til að taka á móti
okkur þegar við komum í heim-
sókn, eins og þú gerðir alltaf
með bros á vör. Þú sem varst
svo góð við allt og alla og sýndir
okkur alltaf stuðning í öllu sem
við gerðum. Já, það er skrýtið
að hugsa til þess að þú sért ekki
lengur að gæða Brautarhól ilmi
með pönnukökunum þínum.
Skrýtið að geta ekki talað við
þig um allt milli himins og jarð-
ar. Um gömlu tímana og þá
nýju. Já amma, ég naut allra
þeirra stunda sem ég var með
þér og nýt þeirra enn í minning-
unni. Ég minnst þín með sökn-
uði elsku amma en ég veit að þú
ert komin á góðan stað. Takk
fyrir allt.
Sigmar Arnarsson.
Antonía Júlía
Kristjánsdóttir
1978. 3) Kristján Heiðar Jóhann
Jónsson, f. 13. apríl 1950, d. 24.
janúar 1992. 4) Arnar Heiðar, f.
26. júní 1958. Börn a) Brynjar, f.
13. maí 1977, sambýliskona
Harpa Reynisdóttir, f. 2. október
1971, b) Sigmar, f. 29. ágúst 1981,
sambýliskona Eva Beekman, f.
24. febrúar 1984. Barnabörn Júl-
íu og Jóns eru tólf talsins.
Fyrstu tvö árin bjó Júlía í Ási,
Glerárþorpi og fluttist í Braut-
arhól tveggja ára gömul og bjó
þar um aldur og ævi. Hún var í
sveit ung að árum ásamt því að
starfa við síldarsöltun í nokkur
sumur. Júlía vann við ræstingar í
Glerárskóla í hartnær 30 ár
ásamt því að vera heimavinnandi
húsmóðir, þar sem heimilið og
fjölskyldan átti hug hennar allan.
Útför Júlíu var gerð frá
Glerárkirkju 31. júlí
Mig langar að skrifa nokkur
minningarorð um elsku afa minn
sem mér þótti svo mikið vænt um.
Ég man þegar afi og amma
bjuggu í Engihjallanum og við sát-
um inni á skrifstofunni hans afa þar
sem við vorum að tala saman, afi
sagði mér sögur og ég reyndi að
segja honum nokkra brandara.
Mér fannst mjög gaman að spila
og afi kenndi mér mörg spil og
einnig kenndi hann mér á klukku.
Afi fór oft með mér út að ganga
og mér fannst það alltaf jafn-
skemmtilegt. Ég man þegar afi
spurði mig hvort ég mundi ekki
örugglega rata í heimsókn í Engi-
hjallann þegar ég yrði stór, ég var
alveg ákveðinn í að læra leiðina og
✝ Guðjón Andr-ésson fæddist í
Kálfshamarsvík í
Skagahreppi í
Austur-Húnavatns-
sýslu 24. október
1920. Hann lést á
Hjúkrunar- og
dvalarheimilinu
Hrafnistu í Hafn-
arfirði 20. júní
2012.
Útför Guðjóns
fór fram í kyrrþey 27. júní 2012.
keyra þangað þegar
ég yrði stór. Hann
hafði gaman af ljóð-
um og hann kenndi
mér mörg ljóð og vís-
ur og sumt af þeim
samdi hann sjálfur.
Ég hlakkaði alltaf til
að heimsækja ömmu
og afa, við afi vorum
miklir vinir og mér
leið alltaf svo vel í ná-
vist hans, það var svo
gott að eiga svona góðan afa.
Þegar afi og amma fluttu á
Hraunvang í Hafnafirði fórum við
oft og heimsóttum þau og afi var
alltaf jafnglaður að sjá okkur. Ég
er mjög þakklátur fyrir það að við
fengum að eyða síðustu jólunum
hans afa með honum og ömmu.
Elsku afi minn, ég vil þakka þér
fyrir allt sem þú hefur gert fyrir
mig og mína, þið amma hafið alltaf
verið til staðar fyrir okkur. Ég
elska þig og ég hlakka til að hitta
þig aftur.
Um undra-geim, í himinveldi háu,
nú hverfur sól og kveður jarðarglaum;
á fegra landi gróa blómin bláu
í bjartri dögg við lífsins helgan straum.
(Benedikt Gröndal)
Victor Blær Jensen.
Guðjón Andrésson
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
BORGHILDUR KJARTANSDÓTTIR,
Langagerði 94, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 2. ágúst sl.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 10. ágúst kl. 13:00.
Ólafur Jóhannesson,
Unnur Ólafsdóttir, Pálmi Matthíasson,
Kjartan Jóhannes Ólafsson, Bára Björgvinsdóttir,
Þór Ólafsson, Linda Björg Þorgilsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir
okkar,
KRISTÍN HALLVARÐSDÓTTIR ENGEL,
lést á heimili sínu í Kaliforníu 23. maí sl.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 9. ágúst kl. 15:00.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur hlýhug og samúð vegna
fráfalls okkar ástkæra
HALLDÓRS JÓNSSONAR ASPARS,
Hafnarstræti 16, Akureyri.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför
VIGDÍSAR JÚLÍÖNU BJÖRNSDÓTTUR,
Strandgötu 89, Eskifirði.
Edda Björnsdóttir, Hlynur Halldórsson,
Helga Björnsdóttir, Hilmar Hilmarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýnt hafa okkur samúð og hlýhug vegna
fráfalls
SIGURÐAR GUNNARSSONAR,
fyrrverandi sýslumanns.
Að skrifa minningagrein
Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina.
Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar.
Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum
dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til
birtingar á mánudag og þriðjudag.
Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins
hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt
sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000
tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum,
þar sem þær eru öllum opnar.