Morgunblaðið - 07.08.2012, Síða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér kann að finnast þú umsetinn
svo þú eigir erfitt með að gera nokkurn
skapaðan hlut. Reyndu að komast hjá að
ræða hluti sem eru mikilvægir því líklegt
er að misskilningur komi upp.
20. apríl - 20. maí
Naut Vinir þínir eru jafnuppteknir og þú,
en þegar þú finnur upp á einhverju
skemmtilegu að gera taka allir sér pásu.
Hugsaðu um vináttuna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Tilhugalífið gæti valdið þér von-
brigðum í dag. Ráðstefnur, fundir og alls
kyns mannamót verða lífleg og ánægjuleg.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Til að skilja það mál sem vefst fyr-
ir þér nú þarftu að kafa til botns og velta
upp öllum tiltækum staðreyndum. Leggðu
þig fram um að sjá málin í víðara sam-
hengi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er hætt við að foreldrar þínir eða
yfirmenn gagnrýni þig í dag. Gefðu þig all-
an í allt sem þú gerir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Veistu ekki í hvorn fótinn þú átt að
stíga? Reyndu að hugsa eins og vatns-
dropi. Nú er að bretta upp ermarnar og
drífa sig í að klára hlutina.
23. sept. - 22. okt.
Vog Rétt byrjun er besta leiðin til þess að
stilla sig saman við umhverfið. Gleymdu þó
ekki að líta inn á við og biðja um hand-
leiðslu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er svo margt sem þig
langar til að eignast að þú veist ekki hvar
þú átt að byrja. Að klæða sig, elda eða
deila einhverju með ástvinum er tækifæri
til að skína.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er margur leyndardóm-
urinn sem manninn langar til að finna.
Hvernig væri að gefa ótta þínum nafn og
kynna þig fyrir honum? Jafnvel faðma
hann að þér?
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ekki gera lítið úr heimspeki-
legum viðhorfum eða trúarskoðunum ein-
hvers í dag. Spennan sem þú kemur með í
sambandið heldur samræðunum gangandi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Eyddu ekki óþarfa orku í að
hugsa um það sem liðið er og miður fór.
Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Viðgerðir og endurbætur verða í
brennidepli á næstunni. Brettu upp erm-
arnar og taktu sjálfur til óspilltra málanna.
Notaðu tækifærið á meðan það varir.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkireftir verslunarmannahelgina:
Ágústbyrjun sól og sæla
syngur þjóðin full af ást.
Margir drukknu öli æla,
aðrir vilja bara slást.
Ólafur Stefánsson bætir við:
Unga fólkið úti í tjaldi,
er að prófa’ að sofa hjá.
Bósar nokkrir beita valdi,
best að löggan hirði þá
Bragaþing, landsmót hagyrð-
inga, verður haldið á Fosshóteli
Húsavík laugardaginn 25. ágúst.
Frá því segir í tilkynningu Stefáns
Vilhjálmssonar, sem lætur fylgja al-
kunna vísu:
Hátíð fer að höndum ein,
hagyrðingalandsmótið.
Að Húsavík er brautin bein,
þar brátt má heyra vísnaklið.
Landsmótið er öllum opið og allir
velkomnir. Ljúffengur matur verð-
ur fram reiddur margrétta og heið-
ursgestur Björn Ingólfsson á Greni-
vík, sem er lesendum Vísnahornsins
að góðu kunnur. Í hlutverki veislu-
stjóra verður einhver góður Þing-
eyingur, eins og Stefán orðar það,
og Kveðandi, vísnafélag Þing-
eyinga, kveður sér hljóðs. Móts-
gestum gefst gott færi á að flytja
vísur sínar, kvæðamenn kveða, það
verður sungið og loks slegið upp
balli að loknu borðhaldi. Skráning
fer fram hjá Stefáni á netfanginu
stefan.vilhjalmsson@mast.is og
Ósk Þorkelsdóttur sem hefur net-
fangið: guinness@vortex.is. Að lok-
um vísa sem ég rakst á á nafn-
spjaldi leigubílstjórans
Sigurbjargar, Galtalæk 2:
Tilbúinn með Taxann sinn
tillitssamur bílstjórinn.
Flottur bíll með flottan rann
ferðir góðar býður hann.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Bragaþingi og útihátíðum
um verslunarmannahelgina
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
il
e
g
i
Fe
rd
in
a
n
d
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
NIRVANA
ROKKAR!
BÚDDISTA-ÚTVARPSSTÖÐ
ÉG ÞOLI EKKI ÞESSA
HITABYLGJU LENGUR!
GRETTIR! ÞAÐ ER BANNAÐ AÐ
SETJAST Í RJÓMAÍSINN!
ENGAR
ÁHYGGJUR,
ÞETTA ER BARA
VANILLUÍS!
... OG VIÐ
SUNGUM SÖNGVA
OG MÁLUÐUM
MYNDIR ...
OG HLUSTUÐUM Á SÖGUR OG
LITUÐUM MEÐ VAXLITUM OG
HVÍLDUM OKKUR OG FENGUM
SNARL OG LÉKUM LEIKI ...
Ó, ÞAÐ VAR
SVO GAMAN!
MÉR FINNST AÐ ÖLL BÖRN
EIGI AÐ FARA Í LEIKSKÓLA!
AÐ VEL SKOÐUÐU
MÁLI ...
HEF ÉG KOMIST
AÐ ÞEIRRI
NIÐURSTÖÐU ...
AÐ YKKUR LÍKAR EKKERT
SÉRLEGA VEL VIÐ MIG, ER ÞAÐ
NOKKUÐ?
Víkverji var á ferðinni um versl-unarmannahelgina, sem gjarnan
er sögð mesta ferðahelgi ársins. Sú
var tíðin á árum áður, þegar bæjar-
hátíðir voru ekki á hverju strái, bens-
ínlítrinn kostaði svipað og mjólkin og
„skuldahalar“ voru aðeins í eigu rík-
ustu manna. Núna er nánast hver
einasta helgi seinni hluta júní og í
júlímánuði mikil ferðahelgi.
x x x
Víkverji var skynsamur þessahelgi, fór úr bænum á laugardegi
og kom aftur heim á sunnudags-
kvöld. Umferðin var engin á laugar-
deginum en það kom á óvart hvað
hún var mikil á sunnudeginum. Vík-
verja til undrunar virðast vera fleiri
skynsamir en hann. Enn meiri var þó
undrunin að sjá hvergi lögreglubíl á
ferð í umferðareftirliti, hvað þá bíl
frá FÍB. Hver man ekki eftir tilkynn-
ingunum um verslunarmannahelgi
forðum daga: FÍB 5 verður í Vagla-
skógi, FÍB 3 á Þingvöllum, FÍB 2 á
Hallormsstað. En tekið skal fram að
FÍB-aðstoðin er enn til staðar í dag,
þó að minna fari fyrir henni opin-
berlega. Tryggingafélögin eru einnig
komin með bílaaðstoð ef druslan
klikkar.
x x x
Ferðalag helgarinnar hófst hinsvegar með sérstökum hætti. Vík-
verji var að pakka í bílinn að morgni
laugardags þegar betri helming-
urinn fékk símtal. Hinum megin á
línunni var kona í miklu uppnámi eft-
ir að hafa lesið morgunblöðin. Í ljós
kom að hún hafði verið að lesa í
Fréttablaðinu að hægt væri að
kynna sér Sturlungaslóð á Hauga-
nesi við Eyjafjörð, þar sem stærsti
bardagi Sturlungaaldar hefði farið
fram milli Sturlunga og Ásbirninga.
Víkverji skilur ósköp vel að konan
hafi komist í uppnám því það er með
miklum ólíkindum að hægt sé að
færa Haugsnesbardaga í Blönduhlíð
í Skagafirði yfir í Eyjafjörð og
ástæða til að hafa áhyggjur af sögu-
og landafræðikennslu í skólum
landsins.
Tekið skal fram að Morgunblaðið
er ekkert undan skilið þegar villur af
þessu tagi rata í fjölmiðla. En að
eigna Eyfirðingum Sturlungaslóðina
er ófyrirgefanlegt! víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Ég er Drottinn, Guð yð-
ar, lifið eftir boðorðum mínum og
haldið lög mín og breytið eftir þeim.
(Esk. 20, 20.)
12-36 mánaða binditími
Engin útborgun
Ábyrgðar- og kaskótrygging
Bifreiðagjöld
20.000 km á ári
Sumar- og vetrardekk
Þjónustuskoðanir og smáviðhald
Leigð´ann
Eigð´ann
Nýlegir bílar
Allir í toppástandi
Fara í gegnum gæðaskoðun AVIS
Þriggja daga reynsluakstur
www.avisbilar.is
S. 5914000
... og krækja sér í bíl á frábæru verði!
til þess að fara inn á avisbilar.is
11ástæður
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is