Morgunblaðið - 15.08.2012, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 5. Á G Ú S T 2 0 1 2
Stofnað 1913 189. tölublað 100. árgangur
BIOPHILIA KVEIKJA
AÐ EINHVERJU
MIKLU STÆRRA
BRYDDAÐ UPP Á
SPENNANDI
NÝJUNGUM
TORFBÆIR OG
ÞJÓÐBÚNINGAR Í
AÐALHLUTVERKI
MENNINGARNÓTT 30 LJÓSMYNDABÆKUR 10TÓNVÍSINDASMIÐJUR 33
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þótt íslenskir sjómenn skipi allar
stöður um borð í fossum og fellum
sem eru í föstum áætlunarsiglingum
á milli Íslands og Evrópu teljast þeir
færeyskir launþegar og greiða
skatta sína í Færeyjum.
Eimskip skráir skip sín í Antígva
og Barbúda í Karíbahafi og skip
Samskipa eru á Alþjóðlegri fær-
eyskri skipaskrá (FAS). Bæði fyrir-
tækin eru með dótturfélög í Færeyj-
um og nýta sér ívilnunarkerfi sem
þar er boðið upp á fyrir kaupskipaút-
gerðir.
Áhafnirnar greiða 35% flatan
tekjuskatt í Færeyjum en skipa-
félögin fá 28% hans til baka í gegn-
um alþjóðlegu skipaskrána. Launa-
kostnaður útgerðanna er því niður-
greiddur en færeyski landssjóðurinn
heldur eftir 7% skattgreiðslnanna og
fær einhverjar tekjur til viðbótar af
skráningu skipa sem annars væru
skráð annars staðar. Íslensku sjó-
mennirnir starfa þó samkvæmt ís-
lenskum kjarasamningum og fá laun
sín í íslenskum krónum hér á landi.
Lög sem samþykkt hafa verið um
Íslenska alþjóðlega skipaskrá hafa
ekki virkað. Ekkert kaupskip er þar
skráð og engin hreyfing á því.
Ástæðan er kröfur um íslenska
kjarasamninga og að skattaívilnun-
arkerfið stóðst ekki EES-reglur.
Skattarnir til Færeyja
Íslenska alþjóðlega skipaskráin virkar ekki Íslensku farmennirnir eru
færeyskir launþegar Óvissa er um ýmis réttindi þeirra hér á landi
MEkkert kaupskip »4
Farmenn
» Áætla má að nokkuð á ann-
að hundrað sjómenn hafi vinnu
við sex gámaflutningaskip sem
eru í ferðum til Evrópu.
» Íslensku farmennirnir teljast
færeyskir launþegar og vinna
sér ekki inn réttindi til atvinnu-
leysisbóta og fæðingarorlofs.
Mesti hiti á landinu hefur náð 20
stigum 19 daga í röð. Það er
lengsta 20 stiga syrpan í áratugi.
Gangi spár eftir verður 20 stiga
hámarkshiti á landinu 22 daga í
röð. Í gær var hlýjast á Bíldudal,
Hvanneyri, Stafholtsey og við Þyr-
il í Hvalfirði.
Þorsteinn V. Jónsson, veður-
fræðingur á Veðurstofu Íslands,
sagði í gærkvöldi að í dag væri
spáð 20 stiga hita á norðvestan-
verðu landinu. „Á fimmtudaginn
er einnig spáð hita vel upp fyrir
20 stig og upp undir 25 stigin suð-
vestanlands,“ sagði Þorsteinn.
Svalara verður á föstudag, en
hitinn gæti þó náð 20 stigum suð-
vestanlands. annalilja@mbl.is
Hiti á landinu yfir
20 stig í 22 daga
Morgunblaðið/Ómar
Rekstur á sundlaug og íþrótta-
húsi á Kirkjubæjarklaustri er í
hættu í kjölfar fyrirhugaðrar lok-
unar á sorpbrennslu í Skaftár-
hreppi. Orka sem verður til við
sorpbrennsluna er meðal annars
nýtt til upphitunar á íþróttamann-
virkjunum.
Að sögn sveitarstjóra ber sveitar-
félaginu að bjóða nemendum upp á
íþróttir og sundkennslu samkvæmt
námskrá. „Við erum skítblönk og
orkan sem sorporkustöðin hefur
búið til skiptir okkur mjög miklu.
Nú þurfum við að finna fjármagn til
þess að kaupa þessa orku annars
staðar,“ segir sveitarstjórinn. »18
Hætta á lokun sund-
laugar á Klaustri
Langtímasamningur hefur verið
gerður á milli íslenska vatnsfyr-
irtækisins Brúarfoss Iceland ehf. og
kanadískra góðgerðasamtaka, On
Guard for Humanity, um kaup á ís-
lensku vatni. Ætlunin er að flytja
vatnið út í gámum með þar til gerð-
um blöðrum, til nota í flóttamanna-
búðum og víðar um heim þar sem
vatnsskortur ríkir eða vatn er
ódrykkjarhæft sökum mengunar.
Áform eru um að fylla á gáma og
tankskip á fimm stöðum á landinu,
þar á meðal á Ísafirði, en Brúarfoss
hefur verið með samning við Ísa-
fjarðarbæ. Að sögn Alberto de
Sousa Costa, forstjóra og stjórn-
arformanns góðgerðasamtakanna,
verður vatnið flutt í sérhönnuðum
gámum sem uppfylla allar alþjóð-
legar kröfur. Þegar ákveðinni eft-
irspurn hefur verið náð er fyrir-
hugað að nota sérstök tankskip við
vatnsflutninginn frá Íslandi. Að-
standendur verkefnisins hyggjast
greina nánar frá því á næstu vikum
um hvaða útflutningsstaði er að
ræða.
„Verkefnið er alþjóðlegt og verður
unnið í nánu samstarfi við hjálpar-
samtök og frjáls félagasamtök sem
aðstoða fórnarlömb stríðsátaka,
náttúruhamfara og annarra hamfara
víða um heim þar sem ekki er að-
gangur að hreinu vatni,“ segir
Alberto við Morgunblaðið.
Hann segir kaupin á íslenska
vatninu vera fjármögnuð með fram-
lögum og styrkjum frá ein-
staklingum í Kanada, einkaaðilum
og opinberum stofnunum. Þá munu
samtökin fá fjármagn vegna við-
skipta með kolefniskvóta í þeim
löndum sem vatnið verður flutt til.
Hann segir verkefnið hafa fengið
góðar móttökur. »12
Íslenskt vatn í flóttamannabúðir
AFP
Vatn Víða um heim er skortur á
hreinu og ómenguðu vatni.
Kanadísk samtök gera langtíma-
samning við Brúarfoss Iceland
Úrskurðarnefnd
um upplýsingamál
hefur fallist á kröfu
eins íbúa í Hafnar-
fjarðarbæ um að
hann eigi rétt á að
fá aðgang að skil-
málaskjali milli
bæjarins og þýsks
banka. Nefndin
segir upplýsinga-
rétt almennings um
málefni sveitarfé-
lagsins ganga framar viðskipta-
hagsmunum í þessu tilviki.
„Þetta er auðvitað áfellisdómur
yfir meirihlutanum að starfa með
þessum hætti,“ segir Valdimar
Svavarsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, spurður hvort úr-
skurðurinn kalli ekki á bætt vinnu-
brögð hjá bæjarstjórnarmeiri-
hlutanum. »2
Fékk upplýsingar
um lán í hendur
Hafnarfjarðar-
bær tapaði
kærumálinu.
Verið er að endurnýja hitaveitulögn í Mjóddinni.
Sú framkvæmd krafðist þess að lögnin yrði færð
til, en hún lá áður á milli athafnasvæðis Strætós
bs. og Olís-þjónustustöðvarinnar í Mjódd. Nú á
að leggja hana á milli Olís-stöðvarinnar og versl-
unar Garðheima, sem þýddi að fjarlægja þurfti
aspir sem Olís-menn höfðu gróðursett og höfðu
verið þar um árabil. Samkvæmt upplýsingum frá
Orkuveitu Reykjavíkur hafði Orkuveitan samráð
við Olís um framkvæmdirnar og var þessi leið
valin þar sem hún var betri en aðrir valmögu-
leikar. sgs@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Aspir felldar vegna flutnings á hitaveitulögnum