Morgunblaðið - 15.08.2012, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012
HÁDEGISMATUR
Í FYRIRTÆKI OG
STOFNANIR
VINSÆLT - HEILSUBAKKAR
Heilsubakkar eru réttir sem samanstanda af léttu fæði
Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar 555-1810, 565-1810 · Fax: 565-2367 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Fjölbreyttur matseðill
og valréttir alla daga
Við sendum hádegismat
í bökkum og kantínum
til fyrirtækja og stofnana
alla daga ársins.
Boðið er upp á sjö valrétti á virkum dögum:
Tvo aðalrétti, þrjá aukarétti, heilsurétt og ávaxtabakka.
Aðalréttirnir eru breytilegir frá degi til dags.
Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is
Stórglæsilegt stílhreint og vandað 187
fm einbýlishús á óvenju glæsilegri
ræktaðri lóð með stórri sólverönd.
Eignin er klædd að utan með flísum á
vandaðan hátt.
Þorbjörg (GSM 661-1128) tekur á móti gestum í dag, miðvikudag,
og sýnir húsið milli kl. 17:00 og 19:00.
OPIÐ HÚS
STARARIMI 21 - REYKJAVÍK
EIGN Í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI
Guðrún Sóley Gestsdóttir
gudrunsoley@mbl.is
Skráningu í nám fyrir haustönn 2012
er nú lokið í háskólum landsins.
Fjölgun nemenda heldur áfram frá
undanförnum árum, samkvæmt
upplýsingum blaðsins, en alls staðar
á sér stað umtalsverð aukning í
skráningu milli ára.
„Um 100 fleiri sóttu um í ár
samanborið við árið í fyrra. Við
reiknum með um 700 nýnemum í
ár,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir,
forstöðumaður markaðs- og kynn-
ingarsviðs hjá Háskólanum á Akur-
eyri. „Við höfum aldrei haft fleiri ný-
nema auk þess sem aldrei hafa
borist fleiri umsóknir, og erum að
vonum mjög ánægð með það,“ segir
Dagmar en að hennar sögn sóttu um
1.220 manns um skólavist í ár.
„Af þessum 1.220 eru alltaf ein-
hverjar umsóknir sem eru ekki sam-
þykktar, og loks nokkrir sem greiða
ekki innritunargjöldin og falla þess
vegna út,“ segir Dagmar en að henn-
ar sögn munu um 1.650 manns
stunda nám við HA á komandi ári.
Umsóknum í Háskólann á Bifröst
hefur einnig fjölgað milli ára. „Okk-
ur hafa borist 30% fleiri umsóknir en
í fyrra, sem er vitaskuld ánægjuleg
þróun,“ segir Ingibjörg Guðmunds-
dóttir, framkvæmdastjóri kennslu
og þjónustu hjá Háskólanum á Bif-
röst. „Um 400 manns hafa sótt um
skólavist, en það er þó ekki endanleg
tala þar sem enn á eftir að hnýta
nokkra lausa enda,“ segir Ingibjörg.
Viðskiptin sækja í sig veðrið
Aðspurð hvaða nám sé vinsælast
segir hún það aðallega vera á sviði
viðskipta. „Viðskiptafræðin er alltaf
vinsælust hjá okkur, en langflestir
sækja um nám í viðskiptatengd fög.
Viðskiptalögfræðin er einnig vinsæl
og þessar deildir eru stórar hjá okk-
ur,“ segir Ingibjörg.
Á Bifröst er stór hluti nemenda í
fjarnámi. „Margir stunda fjarnám
við skólann, og hefur það fyr-
irkomulag gefist vel. Meistaranámið
okkar er einnig að hluta til samsett
úr fjar- og staðarnámi þannig að
hlutfall þeirra nemenda sem stunda
fjarnám við skólann er orðið nokkuð
stórt,“ segir Ingibjörg.
Tölur yfir nýskráningar í HÍ
liggja ekki fyrir og ekki náðist í HR
við vinnslu fréttarinnar.
Aldrei fleiri um-
sóknir í háskólana
Viðskiptatengd fög vinsæl
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Lærdómsþorsti „Okkur hafa borist 30% fleiri umsóknir en í fyrra, sem er
vitaskuld ánægjuleg þróun,“ segir Ingibjörg Guðmundsdóttir á Bifröst.
Hjörtur J. Guðmundsson
Guðrún Sóley Gestsdóttir
Mikilvægt er að fengin verði lending
án tafar í viðræðurnar um aðild að
Evrópusambandinu að mati Ög-
mundar Jónas-
sonar innanríkis-
ráðherra en
utanríkismála-
nefnd Alþingis
fundaði í gær og í
fyrradag um
stöðu mála í aðild-
arviðræðunum.
„Ég er í rauninni
að ítreka afstöðu
sem ég hef lýst
lengi, hve mikil-
vægt það er að fá lyktir í þetta mál.
Ég hefði haldið að það hlyti að vera
orðið öllum ljóst að tímaglasið er að
verða útrunnið í þessum efnum,“
segir Ögmundur. Þá segist hann
hafa rökstuddan grun um að sam-
bandið sjálft vilji draga málið á lang-
inn enda vilji það alls ekki að inn-
ganga í það verði felld hér á landi.
Ekki eftir neinu að bíða
„Þannig yrðum við að velkjast í
þessu árum saman þangað til niður-
staða fengist og það er eitthvað sem
við getum ekki látið bjóða okkur. Ég
tel reyndar að það sé komið á daginn
hvernig þessi samskipti öll líta út og
að það sé ekki eftir neinu að bíða að
spyrja þjóðina álits,“ segir Ögmund-
ur og bætir við að þegar fulltrúar
þjóðarinnar deili um málið á Alþingi
og geti ekki komið sér saman um það
sé hægur vandi að skjóta því til
hennar og láta hana kveða upp úr
hvað hún vilji gera.
„Ég vil láta spyrja einfaldrar
spurningar og hún er þessi: Á grund-
velli þess sem þegar liggur fyrir, og
með hliðsjón af því sem er að gerast
innan Evrópusambandsins, vilt þú
að Ísland fái aðild að sambandinu?
Einhvers staðar heyrði ég stjórn-
málamann segja að menn mættu
ekki vera svona hræddir við fólk.
Það á hins vegar við um þá sem ekki
þora að skjóta þessu máli til þjóð-
arinnar en enga aðra. Stundaglasið
er einfaldlega að renna út og það
hljóta allir að gera sér grein fyrir
því. Við förum ekki með þetta mál
óútkljáð inn í nýtt kjörtímabil,“ segir
Ögmundur.
Þá gefur hann lítið fyrir ummæli
þess efnis að ekki liggi nægar upp-
lýsingar fyrir um það hvað innganga
í Evrópusambandið hefði í för með
fyrir Ísland svo hægt sé að taka af-
stöðu til málsins.
„Við erum búin að lifa með þessu
Evrópusambandi og öllu þessu að-
lögunar- og aðildarferli núna í nokk-
ur ár og að gefa sér að það viti eng-
inn neitt um það hvað hann er að tala
um þegar hann tekur afstöðu í skoð-
anakönnunum eða á opinberum vett-
vangi er hrokafull afstaða. Það eru fá
mál sem hafa verið skoðuð eins ít-
arlega ofan í kjölinn,“ segir Ög-
mundur ennfremur.
Peter Stano, talsmaður Štefans
Füle, stækkunarstjóra Evrópusam-
bandsins, sagði í samtali við Bloom-
berg-fréttaveituna í gær að sam-
bandið fylgdist með umræðunni á
Íslandi og myndi halda viðræðum við
íslensk stjórnvöld áfram á meðan
vilji væri fyrir því hér á landi.
Ákvörðunin Íslendinga
„Það er á valdi Íslendinga að
ákveða hvort þeir vilji halda áfram,“
segir Stano. „Ef þeir ákveða að
hætta viðræðunum þá mun vitanlega
enginn neyða þá til þess að halda
þeim áfram,“ sagði Stano. Hann
lagði ennfremur áherslu á að það
hefði verið Ísland sem sótti um aðild
að Evrópusambandinu en ekki öfugt.
„Evrópusambandið sótti ekki um að
Ísland yrði aðildarríki,“ sagði hann
og bætti því við að þegar Ísland hefði
„ákveðið að það vildi inngöngu hóf-
um við ferlið og aðildarríkin sam-
þykktu það að aðildarferli Íslands
hæfist. Ef Ísland ákveður að hætta
þá mun enginn hindra það í að gera
það“.
Fá mál verið skoðuð
eins ofan í kjölinn
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Evrópumálin Bjarni Benediktsson og Árni Þór Sigurðsson, formaður utan-
ríkismálanefndar Alþingis, á fundi nefndarinnar í byrjun vikunnar.
Innanríkisráð-
herra vill lendingu
í málinu án tafar
Ögmundur
Jónasson
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is