Morgunblaðið - 15.08.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Staðan á pysjum sem komast á legg
úr lundavarpinu í ár virðist ætla að
vera svipuð og í fyrra þegar litið er
á heildarmyndina yfir landið að
sögn Erps Snæs Hansen hjá Nátt-
úrustofu Suðurlands.
„2011 var mun verra ár víðast
hvar um landið eins og sést á súlu-
ritinu yfir varpárangurinn. Þá kom-
ust engir ungar á legg víða. Árang-
urinn nú virðist ætla að vera betri á
þeim stöðum þar sem allt drapst í
fyrra en á móti dregst hann saman
annars staðar,“ segir Erpur.
Svo virðist sem allir ungar hafi
drepist í Papey í sumar en í Vest-
mannaeyjum kemur árangurinn
mest á óvart, þar er uppsveifla frá
aldauða. „Í júlí var helmingurinn
dauður í Papey og að sögn heima-
manna er gríðarlegt magn þar af
dauðum pysjum núna,“ segir Erpur.
Eyjamenn fá bæjarpysjur
„Í Vestmannaeyjum virðist hlut-
fall þeirra pysja sem komast á legg
ætla að enda í 18%, það var 0% í
fyrra en ætti að vera 43% í eðlilegu
ári. Pysjunum í holunum hefur ekki
fækkað í ellefu daga en ef þær drep-
ast gerist það yfirleitt á fyrstu tíu
dögunum frá klaki. Ef fer sem horf-
ir komast um það bil 200.000 pysjur
á legg í ár, sem þýðir að það verða
einhver hundruð bæjarpysja. Í Eyj-
um er þetta ástand sem minnir á ár-
in 2008 til 2009 sem voru nú ekki
merkileg ár en samt töluvert annað
en árin 2010 og 2011 þegar það var
aldauði. Ég hef ekki séð svona mik-
ið af lunda í Eyjum í lok júlí í fimm-
tán ár, en það kemur varpárangri í
holunum ekkert við. Það er fullt af
fugli eftir í kerfinu enda verður
lundi 15 til 20 ára gamall,“ segir
Erpur.
Hann kveðst vera glaður yfir öll-
um þeim pysjum sem komist á legg
enda muni um hverja og eina þegar
lægðin í lundastofninum hefur stað-
ið yfir svo lengi. Nú er áttunda árið í
röð sem eitthvað bjátar á í stofn-
inum í Vestmannaeyjum.
„Við vonum að þetta sé uppsveifla
en hún er ekki byggð á endurreisn
sandsílastofnsins. Við vitum að full-
orðnu fuglarnir eru að éta ljósátu og
að bera síld og fleira í ungana. Með-
an sú áta heldur ná ungarnir að
vaxa en þeir vaxa samt ekki á eðli-
legum hraða.“
Eins og sést á meðfylgjandi súlu-
riti um varpárangur í ár og í fyrra
sést að hann hefur aukist í Lundey í
Skjálfanda og Hafnarhólma í Borg-
arfirði eystri. Erpur segir að varp-
árangurinn fari batnandi á Norð-
austurlandi.
„Lundinn var í smáloðnu fyrir
austan og því byrjaði varpið vel í
Papey og svo virðist þessi loðna
hafa fært sig norðar þegar leið á
sumarið. Þá fékk lundinn í Papey
ekki nóg í ungana og botninn datt
úr þessu þar á meðan allt fór í topp
norðaustanlands. Hvort ungarnir
komast á legg eða ekki snýst um
fjarlægðina frá fæðunni.“
Ábúð: hlutfall varphola sem orpið er í
0.9
0.8
0.7
0.6
0.5
0.4
0.3
0.2
0.1
0
Pa
pe
y
Ing
ólf
sh
öfð
i
Dy
rh
óla
ey
Ve
stm
an
na
ey
jar
Ak
ur
ey
Fa
xa
fló
a
Ell
iða
ey
Br
eið
afi
rð
i
Gr
ím
se
y S
tei
ng
rím
sf.
Víg
ur
Dr
an
ge
y
Gr
ím
se
y
Lu
nd
ey
Sk
jál
fan
da
Ha
fna
rh
ólm
i B
or
ga
f. E
2010 2011 2012
Heimild: Náttúrustofa Suðurlands
Uppsveifla frá aldauða í Eyjum
Varpárangur hjá lundanum álíka og í fyrra Í Vestmannaeyjum eykst hann um 18% milli ára
Hátt í 200.000 pysjur ættu að komast á legg í Eyjum í ár, allar pysjur drápust þar í fyrra
Varpárangur: fleygar pysjur á varpholu
0.8
0.7
0.6
0.5
0.4
0.3
0.2
0.1
0.0
Pa
pe
y
Ing
ólf
sh
öfð
i
Dy
rh
óla
ey
Ve
stm
an
na
ey
jar
Ak
ur
ey
Fa
xa
fló
a
Ell
iða
ey
Br
eið
af.
Gr
ím
se
y S
tei
ng
rím
sf.
Vig
ur
Dr
an
ge
y
Gr
ím
se
y
Lu
nd
ey
Sk
jál
fan
da
Ha
fna
rh
ólm
i B
or
ga
rf.
E.
Heimild: Náttúrustofa Suðurlands
2011 2012
Lundavarp í Eyjum
2007-2012
0.8
0.7
0.6
0.5
0.4
0.3
0.2
0.1
0
Ve
nju
leg
t
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
Ábúð Ungi/Holu
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra afhjúpaði um helgina
minnismerki um Hrafna-Flóka Vil-
gerðarson, sem sett hefur verið upp
að Ysta-Mói í Fljótum í Skagafirði.
Hópur áhugafólks um uppbyggingu
í Fljótum hafði veg og vanda að
verkinu og fyrir hópnum fór Herdís
Sæmundardóttir, sem stýrði athöfn
við minnismerkið.
Minnismerkið er lágmynd af
þremur hröfnum Hrafna-Flóka á
stöpli og mynd á stétt við stöpulinn.
Stendur það rétt við þjóðveginn í
Fljótum þar sem hann fer um land
Ysta-Mós. Listaverkið er eftir Guð-
brand Ægi Ásbjörnsson, myndlist-
armann og -kennara á Sauðárkróki.
Í ávarpi Herdísar við athöfnina kom
fram að Sveitarfélagið Skagafjörður
og Vegagerðin hefðu aðstoðað við
undirbúning og nokkur fyrirtæki og
sjóðir styrkt framkvæmdina. Í kaffi-
samsæti í Ketilási á eftir flutti ráð-
herra ávarp þar sem hann m.a. rakti
ferðir Hrafna-Flóka til Íslands og
hvernig hann nam land á Vest-
fjörðum fyrst en síðar í Fljótum.
Hrafna-Flóki kominn í Fljótin
Ljósmynd/Innanríkisráðuneytið
Hrafna-Flóki Innanríkisráðherra
afhjúpar minnismerkið í Fljótum.
Þjónustum allar
gerðir ferðavagna
Bílaraf
www.bilaraf.is
Strandgötu 75 • 220 Hafnarfjörður • Sími 564 0400 • bilaraf.is
Opnunartími verslunar í sumar: 8–18 virka daga, 10-14 á lau.
Gott verð, góð þjónusta!
Umboðsaðilar fyrir
Truma & Alde hitakerfi
á Mover undir hjólhýsi
249.900 kr.
Tilboð
Tilboð áTruma
E-2400 Gasmiðstöð
159.900 kr.
Tilboð
Mikið úrval vara- og aukahluta!
Markísur á frábæru verði
Ísskápur: Gas/12 Volt/
220V – Mikið úrval
Sólarsellur á góðu
verði – Fáið tilboð
með ásetningu