Morgunblaðið - 15.08.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.08.2012, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012 Borgartúni 24 105 Reykjavík Sími: 585 8700 Hæðasmára 6 201 Kópavogur Sími: 585 8710 Grænkáls- draumur NÝR SAFAMATSEÐILL FULLUR AF HOLLUM OG NÆRINGAR- RÍKUM ÞEYTINGUM OG SÖFUM Íslenskt grænkál lífræn t Ofurfæðudrykkur með nýuppteknu lífrænu grænkáli, hlaðinn vítamínum og steinefnum til að auka orku og þrek. Einstaklega bragðgóður og seðjandi. Í rafhlöðum eru efni sem eru skaðleg náttúrunni. Þær mega því alls ekki fara í almennt sorp að notkun lokinni. Efnamóttakan leggur heimilum og fyrirtækjum til ókeypis kassa til að auðvelda söfnun á ónýtum rafhlöðum. Einnig má setja í hann ónýt smáraftæki. Kassinn er margnota og hann má nálgast á söfnunarstöðvum sveitarfélaga. Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is Rafhlöðukassi Það má losa úr kassanum á söfnunarstöðvum sveitarfélaga (endurvinnslustöðvum). Einnig er víða tekið á móti rafhlöðunum í sérstakar rafhlöðutunnar á bensínstöðvum N1 og Skeljungs. Hvert á að skila? Það er oft fróðlegt að fylgjast með hvernig stjórn- málamenn flytja mál sín, – ekki hvað þeir segja, heldur mun fremur hverju þeir kjósa að sleppa í frá- sögn sinni. Gísli Mar- teinn Baldursson, einn af núverandi fimm borgarfulltrú- um Sjálfstæðisflokksins, ritaði ný- lega grein í Fréttablaðið um sér- stakt áhugamál sitt, „Framtíðarbyggð í Vatnsmýri“. Sú grein varð síðan tilefni til ritstjórn- argreinar í blaðinu undir fyrirsögn- inni „Aðalskipulagi ber að hlíta“. Skipulagsvald sveitarstjórna Það er rétt, að samkvæmt lögum um skipulagsmál ber sveitar- stjórnum m.a. að hlutast til um gerð aðalskipulags. Hins vegar mætti líka geta þess að slíkt skipulag öðlast fyrst gildi, eftir að umhverfis- ráðherra hefur opinberlega staðfest það. Í því sambandi hefði einnig mátt rifja upp, að tillaga Reykjavíkurborgar að Aðalskipulagi Reykja- víkur 2001-2024 var staðfest af þáverandi umhverfisráðherra 20. des. 2002 með nokkrum árituðum fyrirvörum. Meðal þeirra var eft- irfarandi: „Uppbygging í Vatnsmýri og tíma- setning hennar er háð flutningi á flugstarfsemi af svæðinu, sbr. kafla 3.2.1. í greinargerð I, Stefnumótun“. Samtímis þessari áritun sinni skipaði umhverfisráðherra þriggja manna nefnd „til að fara yfir svæð- isskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024, og gera tillögur um land- notkun í Vatnsmýri á svæði IV, sem tekur til tímabilsins 2016-2024“. Helga Jónsdóttir þáverandi borg- arritari var tilnefnd í nefndina af Reykjavíkurborg, undirritaður var tilnefndur af samgönguráðherra, og Ingimar Sigurðsson skrifstofustjóri í umhverfisráðuneyti var formaður nefndarinnar. Nefndin skilaði ráð- herra skýrslu sinni 1. desember 2003, og voru þar tíundaðar meg- inröksemdir bæði Reykjavíkur- borgar og samgönguráðuneytis. Niðurstaða nefndarinnar var hins vegar formlega skráð eftirfarandi: „Samkvæmt framansögðu fara þau sjónarmið að halda tveggja flug- brauta flugvelli í Vatnsmýrinni og áform Reykjavíkurborgar um aðra landnýtingu í Vatnsmýrinni ekki saman. Að þessum forsendum fengnum er ljóst að sameiginleg nið- urstaða um tillögu til breytinga á skipulagi næst ekki í nefndinni. Nefndin telur eigi að síður mikil- vægt að borgaryfirvöld í Reykjavík og samgönguyfirvöld taki upp form- legar viðræður um framhald málsins.“ Of langt mál yrði að rekja hér síð- ari og brokkgengan feril málsins, sem m.a. fól í sér að þáverandi sam- gönguráðherra skipaði í apríl 2005 nefnd fulltrúa ráðuneytisins og Reykjavíkurborgar til að kanna hvar annars staðar á höfuðborgarsvæðinu væri unnt að byggja flugvöll. Á veg- um nefndarinnar var litið til 13 hugs- anlegra svæða, en 11 þó fljótlega úti- lokuð. Eftir stóðu aðeins tveir kostir, Hólmsheiði og Löngusker, – en þó með eftirfarandi skráðum fyrirvara: „Sá fyrirvari er bæði um Hólmsheiði og Löngusker að litlar sem engar veðurfarsathuganir liggja fyrir um þá staði, og því verður ekki fullyrt á þessu stigi að þeir henti undir flug- völl. Þetta á sérstaklega við um Hólmsheiði þar sem flugvöllur mundi vera í 135 m hæð yfir sjó og mun nær fjöllum en núverandi flugvöllur.“ Ný skipulagslög Í sept. 2010 samþykkti Alþingi ný skipulagslög. Meðal nýmæla þar er að umhverfisráðherra skuli leggja fram á Alþingi tillögu til þingsálykt- unar um landsskipulagsstefnu til 12 ára. Í þeirri stefnu skal samþætta áætlanir opinberra aðila um sam- göngur, byggðamál o.fl., – sem þýðir að slík landsstefna skuli m.a. hafa hliðsjón af ákvæðum samgönguáætl- unar Alþingis. Þess er að geta, að í öllum þeim samgönguáætlunum, sem Alþingi hefur samþykkt, hefur ítrek- að verið minnst á þýðingu núverandi Reykjavíkurflugvallar sem miðpunkt áætlunarflugs innanlands, og aðal- áfangastað sjúkraflugs hérlendis. Við gerð svæðis- eða aðalskipulags ber sveitarfélögum því framvegis að byggja tillögur sínar á lands- skipulagsstefnu ríkisins. Samkvæmt 57. gr. laganna skal umhverf- isráðherra eigi síðar en árið 2012 leggja fyrir Alþingi í fyrsta sinn til- lögu sína að landsskipulagsstefnu. Landsfundir Sjálfstæðisflokks Ég býst við að flestir stuðnings- menn Sjálfstæðisflokks telji að æðsta ákvörðunarvald um stefnu sé enn að finna á landsfundum hans, og að kjörnum frambjóðendum hans til Al- þingis eða sveitarstjórna beri að hafa hliðsjón af henni. Þessir fundir hafa undanfarna marga áratugi ítrekað ályktað um þýðingu þess að núverandi Reykjavíkurflugvöllur verði áfram á sínum stað. Síðasti landsfundur samþykkti eftirfarandi: „Reykjavíkurflugvöllur gegnir lyk- ilhlutverki sem miðstöð innanlands- flugs. Landsfundur leggur áherslu á að innanlandsflug verði með svipuðu sniði og verið hefur, og áfram verði stutt við flugleiðir til jaðarbyggða, þó þannig að hagkvæmni sé gætt í hvívetna. Landsfundur leggur áherslu á að hafist verði handa um uppbyggingu samgöngumiðstöðvar í Reykjavík hið fyrsta og henni lokið á sem skemmstum tíma“. Lokaorð Í starfi borgarfulltrúa felast ef- laust margar ánægjustundir. Sagt er að ofarlega þar á blaði sé út- hlutun nýrra byggingalóða. Kunn- ugt er, að Reykjavík telur sig þar vera í harðri samkeppni við nágrannasveitarfélögin um búsetu nýrra íbúa, þ.e. nýrra skattgreið- enda. Þótt enginn skortur sé á nýj- um lóðum af ýmsu tagi, þegar litið er á höfuðborgarsvæðið sem eina heild, telja sumir borgarfulltrúar Reykjavíkur að megintromp þeirra hljóti að vera að geta boðið upp á nýja íbúðabyggð á flugvallarsvæð- inu. En af hverju stoppa þar? Væri ekki tilvalið að fylla upp í Reykjavík- urhöfn og bjóða einnig þar upp á nokkrar nýjar íbúðablokkir, – fyrst greiðar, hagkvæmar og nútímalegar samgöngur við höfuðborgina skipta engu máli? Það verður eflaust áhugavert rannsóknarefni fyrir fræðimenn framtíðar að rannsaka hvernig sum- ir borgarfulltrúar gátu verið svo veruleikafirrtir að leggja til lokun Reykjavíkurflugvallar, sem hefur verið miðstöð almennings- samgangna hérlendis undanfarna sjö áratugi. Ljóst er að án hans get- ur Reykjavík hvorki þjónað sem framtíðarmiðstöð sjúkraþjónustu Íslands, – né heldur sem höfuðborg þess. Vansagt um Vatnsmýrarskipulag Eftir Leif Magnússon » Væri ekki tilvalið að fylla upp í Reykja- víkurhöfn og bjóða einn- ig þar upp á nokkrar nýjar íbúðablokkir, – fyrst greiðar, hag- kvæmar og nútímalegar samgöngur við höfuð- borgina skipta engu máli?Leifur Magnússon Höfundur er verkfræðingur. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu not- anda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.