Morgunblaðið - 15.08.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.08.2012, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 228. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Inga á Nasa vakti mikla eftirtekt 2. Fannst hún of fín fyrir Spice Girls 3. Þungt haldinn eftir ógleðigöngu 4. Er meðvirkni að eyðileggja líf þitt? »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Yfirstjórn Hörpu og Stuðmenn hafa náð samkomulagi um að bæta þriðju tónleikunum við þá tvenna Stuð- mannatónleika sem seldist upp á á nokkrum klukkustundum um helgina. Tónleikarnir verða í Eldborgarsal Hörpu laugardaginn 6. október kl. 20, en daginn áður verða tónleikar á sama stað kl. 20 og 23. Tilefni tónleikanna er að 30 ár eru liðin síðan kvikmyndin Með allt á hreinu var gerð. Stuðmenn bæta við þriðju tónleikunum  Kvikmyndaleik- stjórinn Marteinn Þórsson mun sýna átta mínútna bút úr væntan- legri kvikmynd sinni, XL, á Al- þjóðlegu kvik- myndahátíðinni í Noregi í Hauga- sundi á morgun, 16. ágúst. Búturinn úr XL verður sýndur á þeim hluta há- tíðarinnar sem helgaður er kvikmyndum í vinnslu. Marteinn kynnir XL á hátíð í Haugasundi  Tónleikastaðurinn Græni hatturinn á Akureyri mun fagna 150 ára afmæli bæjarins með tónleikaveislu 15. ágúst til 1. september. Fyrsta hljómsveitin í röðinni er 1860 og leikur hún í kvöld. Annað kvöld er það svo Tríó Sunnu Gunnlaugs sem leikur og 17. ágúst hljóm- sveitirnar Til- bury og Moses Hightower. 1860 leikur á Græna hattinum í kvöld Á fimmtudag Norðaustan 5-15 m/s, hvassast norðvestanlands. Léttskýjað á Suður- og Suðvesturlandi, annars skýjað og dálítil rigning nyrðra síðdegis. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast suðvestantil. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg austlæg eða breytileg átt. Víða rigning sunnan- og austantil fram eftir degi, en yfirleitt þurrt síðdegis. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. VEÐUR Íslenska landsliðið í körfu- bolta hóf leik í undankeppni Evrópumótsins í gærkvöldi með tapi gegn Serbíu, 98:71, en Serbar eru með áttunda besta lið Evrópu. Íslenska liðið spilaði frá- bærlega í seinni hálfleik en frammistaðan þar lofar góðu fyrir framhaldið í riðl- inum. Ísland leikur 10 leiki á 26 dögum þannig að mikil keyrsla er á liðinu. »3 Þrettán stiga tap gegn Serbum Íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu verður í eldlínunni í kvöld en þá mætir það Færeyingum í vináttu- leiksleik sem fram fer á Laugardals- velli. Leikurinn er lokahnykkurinn í undirbúningi landsliðsins fyrir undankeppni HM. »4 Lokahnykkurinn fyrir undankeppni HM 22 mörk voru skoruð í leikjunum þremur í 14. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöld. Segja má að úrslitin hafi verið eftir bókinni. ÍBV vann stórsigur á Fylki, 6:1, Íslandsmeistarar Stjörnunnar gjörsigruðu FH-inga, 7:1, og eru þremur stigum á eftir toppliði Þórs/ KA og Valur vann öruggan sigur á KR- ingum, 6:1. »2 22 mörk í þremur leikj- um í Pepsi-deildinni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Ég hef séð þá flesta,“ segir Sigur- geir Guðmannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Íþróttabanda- lags Reykjavíkur, um bikarúrslita- leiki karla í knattspyrnu, en 53. úr- slitaleikurinn fer fram á Laugar- dalsvellinum á laugardag. Í knattspyrnuheiminum eru bikarúrslit víða hápunktur hvers keppnistímabils og það á vissulega við hér á landi. „Þetta er mikill viðburður,“ segir Sigurgeir, sem byrjaði að þjálfa unga drengi 1951, hafði umsjón með niðurröðun bikarleikjanna fyrstu árin, gerði KR að bikarmeistara sem þjálfari þrjú ár í röð, 1962-1964, hefur fylgst með fótbolta lengur en elstu menn muna og fræðir sér yngri menn og konur um þessa göfugu íþrótt á sérstökum „elítufundum“ í KR tvisvar í viku. „Tryggingamiðstöðin gaf fyrsta bikarinn 1960,“ rifjar Sigurgeir upp, en keppnin heitir nú Borg- unarbikarkeppnin. Hann segir að beðið hafi verið eftir því að haust- mótsbikar KRR gengi út og eftir að hann hafi unnist til eignar 1959 hafi skapast rými fyrir bikar- keppnina. Í fyrstu hafi niðurröðun leikja tekið mið af fjölda heimaleikja og reynt að jafna stöðu liða að því leyti, en síðar hafi lið verið dregin saman. Skautaleikur Bikarkeppnin var hugsuð sem lenging á keppnis- tímabilinu. Til að byrja með fóru allir leikirnir fram á Melavellinum að loknu Íslands- móti en úrslitaleikurinn hefur verið á Laugardalsvelli frá 1973. ÍBA varð bikarmeistari 7. des- ember 1969. „Stemningin hefur breyst við það að nú er oftast leikið til úrslita í góðu veðri,“ segir Sigurgeir. „Úrslitaleikurinn 1969 var til dæmis bara skautaleikur – ís á vellinum. Það er lítil stemning á fótboltavelli í mikilli snjókomu.“ Hins vegar bendir hann á að á Melavellinum hafi áhorfendur ver- ið nær vellinum en á Laugardals- vellinum og því hafi stemningin þar oft verið meiri en í dalnum. Í bikarkeppni gefst ekkert ann- að tækifæri eins og í deildar- leikjum. „Það er annaðhvort „do or die“, af eða á í bikarnum. Það er það sem gerir bikarkeppnina svo sérstaka,“ segir Sigurgeir. „Það er gaman að vera í sambandi og fylgjast með og þegar í úrslit er komið skiptir annað engu máli,“ segir kappinn. Aðeins eitt tækifæri  Hefur séð nær alla bikarúrslita- leikina frá 1960 Morgunblaðið/RAX Bikarúrslit Sigurgeir Guðmannsson var í gær tilbúinn fyrir hátíðina á Laugardalsvellinum á laugardag. KR og Stjarnan leika til úr- slita í Borgunarbikarkeppni karla á laugardag. KR hefur oftast orðið bikarmeistari eða 12 sinnum, ÍA og Valur 9 sinnum, Fram 7 sinnum, ÍBV og Keflavík 4 sinnum, FH og Fylkir tvisvar sinnum og ÍBA, Víkingur og Breiðablik einu sinni. Sigurgeir segir að margir bikarleikir séu eftirminnilegir og ekki síst viðureign KR og ÍBA fyrir hálfri öld, haustið 1962. „Akureyringarnir tóku Akurnes- ingana 8:1 og ég sem þjálfari KR var skíthræddur við þessi of- urmenni að norðan í undanúrslit- unum, en með réttri taktík og lestri á leik þeirra tókst okkur að vinna 3:0. Á þessum fyrstu árum keppninnar hafði mikið að segja að við héldum áfram að æfa eftir Ís- landsmótið á meðan aðrir hættu.“ MARGIR EFTIRMINNILEGIR BIKARLEIKIR Óttaðist ofurmenni að norðan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.