Morgunblaðið - 15.08.2012, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.08.2012, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. BAKSVIÐ Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur fallist á kröfu eins íbúa í Hafn- arfjarðarbæ þess efnis að hann eigi rétt á að fá aðgang að skilmálaskjali milli Hafnarfjarðarbæjar og Depfa ACS Bank og FMS Wertmanage- ment. Bærinn hafði neitað að veita aðgang að umbeðnum gögnum á þeim forsendum að ákvæði í samn- ingi kvæðu á um trúnað milli aðila. Úrskurðarnefndin segir upplýsinga- rétt almennings ganga framar við- skiptahagsmunum í þessu tilviki. Þó kemur fram í úrskurði nefnarinnar að afmá skuli vaxtakjör og endur- greiðsluhlutföll. Jón Arnar Guðmundsson, íbúi í Hafnarfirði, ákvað að kæra ákvörðun bæjarins um að synja honum aðgangi að umræddum upplýsingum. Hann segist vera kominn með nóg af því að hann og aðrir íbúar bæjarins þurfi að taka á sig mikla skerðingu á þjónustu og hækkað útsvar án þess að fá full- nægjandi skýringar á því hvað liggi að baki. 90% andvirðis til bankanns Í skilmálaskjalinu sem Jón Arnar hefur nú fengið í hendur kemur m.a. fram að allar óseldar lóðir bæjarins séu að veði, og við sölu skuli 90% söluandvirðis renna til greiðslu á höf- uðstól. Þá segir að myntum í þremur eldri samningum skuli breytt í evrur og að hlutabréf og skuldabréf liggi að veði ef lánasamningur falli í vanskil. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá eru skuldir Hafnarfjarðarbæjar að sliga sveitarfélagið. Hinn 4. apríl 2012 kom fram í svari innanríkisráð- herra við fyrirspurn á Alþingi að bærinn skuldaði 38,4 milljarða króna. Bærinn hefur hingað til ekki viljað birta skilmála í samningum upp á 13 milljarða króna við Depfa-bankann til endurfjármögnunar lána. Hafnar- fjarðarbær hafði m.a. vísað til þess að heimilað væri í upplýsingalögum að takmarka aðgang almennings að gögnum ef mikilvægir almannahags- munir krefðust enda væri um samn- ing við önnur ríki eða fjölþjóðastofn- anir að ræða. Þannig var vísað til þess að bankinn væri í eigu þýska ríkisins. Úrskurðarnefndin féllst ekki á þau rök þar sem lántaka sveit- arfélagsins var á almennum lána- markaði og því hefði verið um mark- aðsviðskipti að ræða. Þá studdi bærinn synjun sína einnig þeim rök- um að Depfa-bankinn hefði krafist trúnaðar. Úrskurðarnefndin segir að vissulega sé heimilt skv. upplýsinga- lögum að synja almenningi um að- gang að gögnum um mikilvæga fjár- hags- og viðskiptasamninga fyrirtækja. Það eigi t.d. við þegar al- menn vitneskja um kjör viðskipta fyrirtækja við hið opinbera geti skað- að samkeppnisstöðu þeirra. Nefndin segir það sjónarmið þó víkja í þessu tilviki fyrir almennum fyrirmælum upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings. Hagsmunir íbúa ganga fyrir  Ákvæði um trúnað í samningi milli Hafnarfjarðar og þýsks banka ógild Helgi Bjarnason Skúli Hansen „Allt verður þetta að leggjast á farmiðana, blessaðir farþegarnir halda þessu gangandi. Það er kom- ið að þolmörkum, fyrir nokkru,“ segir Hörður Guðmundsson, aðal- eigandi Flugfélagsins Ernis, um auknar álögur á innanlandsflugið. Félagið reynir að bregðast við með sparnaði og sagði upp tíu starfsmönnum um mánaðamót. Flugfélagið Ernir er með áætl- unarflug til fimm staða á lands- byggðinni, ýmist með samningum við samgönguyfirvöld eða ein- göngu á viðskiptalegum for- sendum. Hörður bendir á að samn- ingarnir við ríkið hafi ekki fylgt þeim miklu kostnaðarhækkunum sem orðið hafi. Þá segir hann að nýir skattar hafi verið lagðir á flugreksturinn og aðrir stórhækkaðir. „Það er ekki möguleiki að setja þetta allt út í verðlagið. Flugið ber það ekki heldur. Ég tel að það sé tap á öllu innanlandsflugi vegna óheyri- legrar skattlagningar,“ segir Hörður. Hann bendir á að ekki hafi orðið vart við samdrátt hjá stofnunum sem taki til sín gjaldahækkanir. Fimm flugmenn hætta hjá Erni og fækkað er í ýmsum öðrum störfum. Áætlunin er flogin en Hörður segir að hún verði ekki eins hentug fyrir alla notendur og áður. „Við reynum að halda úti þjónustunni en höfum ekki mann- skap til að hafa hana óbreytta. Það verður að þétta hana,“ segir Hörð- ur. Þyrluflugfélagið BlueWest Heli- copters hefur nú skráð eina þyrlu í Danmörku og stefnir að því að skrá þar tvær þyrlur til viðbótar, að sögn Sigtryggs L. Kristófers- sonar, eiganda BlueWest Heli- copters. Aðspurður hvort þyrlan sé tekin til starfa í Danmörku seg- ir Sigtryggur svo ekki vera enda sé hún staðsett í Grænlandi. Morgunblaðið/Ernir Flugfélag Hörður Guðmundsson kveður farþega eftir flug. Ernir fækkar um tíu starfsmenn  Skattar að sliga flugið  BlueWest Helicopters skráir þyrlu í Danmörku „Bæjarfulltrúar bera ábyrgð á fjögurra ára fresti, enda er ekki hægt að kjósa aftur á miðju kjör- tímabili. Það átti að halda innihaldi samningsins leyndu fram yfir næstu kosn- ingar en þar með hefðu bæj- arbúar ekki forsendur til að meta störf bæjarfulltrúa fyrr en þær eru afstaðnar. Í ljósi þess hve fjárhagsleg staða bæjarins er slæm má segja að það sé að- för að lýðræðinu að halda upp- lýsingunum leyndum,“ segir Jón Arnar Guðmundsson, íbúi í Hafnarfirði. „Aðför að lýðræðinu“ ÍBÚI KÆRÐI BÆINN „Við bentum á það allan tímann að það væri mjög óeðlilegt að trún- aður væri yfir þessu og þar af leiðandi kemur það okkur þannig ekki á óvart að þetta standist ekki þau viðmið sem eru sett,“ segir Valdimar Svavarsson, bæj- arfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í Hafnarfirði, að- spurður hvort úr- skurður úrskurð- arnefndar um upplýsingamál í máli Jóns Arnars Guðmundssonar gegn Hafnarfirði kalli ekki á bætt vinnubrögð hjá meirihluta bæjarstjórnarinnar, og bætir við: „Þetta er auðvitað áfell- isdómur yfir meirihlutanum að starfa með þessum hætti.“ „Í úrskurðinum eru tilteknir ákveðnir hlutir sem ekki verða gefn- ir upp, eins og vaxtakjörin og fleira í þeim dúr, en það eru akkúrat hlut- irnir sem krafist var leyndar út af. Það sem okkur ber að afhenda er í sjálfu sér nokkurn veginn það sem hefur verið upplýst og hefur verið á borðinu alveg frá upphafi,“ segir Guðmundur Rúnar Árnason, forseti bæjarstjórnar og fyrrverandi bæj- arstjóri Hafnarfjarðar, spurður út í fyrstu viðbrögð í kjölfar úrskurð- arins, og bætir við að úrskurðurinn feli það í sér að það sem viðsemj- endur bæjarins vildu halda leyndu verði ekki gert opinbert. Sjálfhelda í lóðamálum Aðspurður hvort ekki sé ein- kennilegt að 90% af söluandvirði lóða í bænum renni beint til Depfa- bankans samkvæmt samningi bank- ans við sveitarfélagið segir Valdi- mar að þetta ákvæði samningsins sé mjög heftandi fyrir sveitarfélagið , þetta geri það t.d. að verkum að í einstaka tilvikum sé ekki endilega hagstætt að selja lóðir enda kalli sala á íbúðarlóðum á ákveðna þjón- ustu sem sveitarfélagið þarf að veita, þá kalli lóðir á nýbygging- arsvæðum á byggingu mannvirkja á borð við t.d. skóla. „Það lá fyrir alveg frá upphafi og var eitthvað sem ég upplýsti um sjálfur dagana eftir að samning- urinn var undirritaður, þannig að það er ekkert nýtt í því,“ segir Guð- mundur Rúnar aðspurður út í þetta ákvæði samningsins. Rétt er að taka það fram að í samtali við Morg- unblaðið hinn 22. desember 2011 sagði Guðmundur Rúnar að trún- aður ríkti um efni samningsins við Depfa og neitaði hann að gefa upp hvort söluverð lóðanna rynni til bankans. skulih@mbl.is Áfellis- dómur yfir meirihluta Morgunblaðið/Ómar Hafnarfjörður Deilt um samninga. Valdimar Svavarsson Guðmundur Rúnar Árnason Borgarskákmótið fór fram samkvæmt venju í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær og voru keppendur ungir jafnt sem gamlir. „Við vorum með 93 keppendur í ár og erum mjög ánægðir með mætinguna. Þetta er með því betra sem gerist og það tóku fjölmargir góðir skákmenn þátt,“ segir Vigfús Vigfússon, formað- ur Taflfélagsins Hellis. Þetta var í 27. sinn sem mótið fór fram. pfe@mbl.is Morgunblaðið/Sigurgeir S. Vel mætt og margir góðir skákmenn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.