Morgunblaðið - 15.08.2012, Side 4

Morgunblaðið - 15.08.2012, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum Arges PROFESSIONAL Einfasa rafstöð HD3800 Bensín m/rafstarti 3,2KW 69.900,- Ryk/blautsuga 15 lítrar HKV 1000w 21.900,- Slípirokkur HDA 436 1050w 7.990,- Rafhlöðuborvél, HDA2544 17.900,- Rafmagnsborvél, HDA 310 12 .990,- skattaívilnunum. Færeyingar fóru sömu leið. Þar er lagður á flatur 35% tekjuskattur og 28% hans endur- greiddur til skipafélaganna. Fær- eyingar halda þá eftir 7% skattsins og einhverjum tekjum af skipunum. Útborgað í íslenskum krónum Þetta ívilnunarkerfi nýta íslensku skipafélögin sér. Þau eru með dóttur- félög í Færeyjum, Fossar og Sam- skip, sem eru hinir formlegu vinnu- veitendur áhafnanna. Eingöngu Íslendingar eru í áhöfnum Dettifoss, Goðafoss, Brúarfoss og Selfoss, skip- anna sem Eimskip er með í föstum áætlanasiglingum til Evrópu og nær eingöngu Íslendingar í áhöfnum Helgafells og Arnarfells sem sigla fast til Íslands fyrir Samskip. Þótt færeysku dótturfélögin séu með mennina í vinnu fá þeir laun sín í ís- lenskum krónum og greidd inn á reikninga hér á landi enda flestir bú- settir hér. Þeir starfa einnig eftir kjarasamningum íslensku stéttar- félaganna. Skipafélögin eru með fjölda ann- arra skipa í tímabundnum verk- efnum, oftast með erlendum áhöfn- um að stærstum hluta. Svo er einnig með erlend skip sem flytja hráefni til stóriðjufyrirtækjanna og hluta af af- urðum íslenskra fyrirtækja á mark- aði. Launakjör áhafna eru í mörgum tilvikum aðeins brot af þeim launum sem samið er um í vestrænum sigl- ingaríkjum. Kerfið virkar ekki Áratuga umræða um stofnun ís- lenskrar alþjóðlegrar skipaskrár lauk 2007 með samþykkt laga þar um og annarra laga um skattaívilnanir til kaupskipaútgerða. Íslenska al- þjóðlega skipaskráin er dauður laga- bókstafur sem rykfellur í hillum stofnana því ekkert skip hefur verið skráð á hana. Því veldur líklega breyting sem gerð var á frumvarpinu í meðförum Alþingis að kröfu ASÍ sem miðar að því að allir sjómenn, ís- lenskir jafnt sem erlendir, taki laun samkvæmt íslenskum kjara- samningum. Það er frábrugðið reglum annarra sambærilegra skipaskráa. Þá reyndust skattaívilnanirnar sem samþykktar voru stangast á við reglur EES- samningsins og þurfti að afnema þær. Íslenska alþjóðlega skipa- skráin hefur því aldrei verið samkeppnisfær við þá fær- eysku. Fá skatta endurgreidda  Íslenskir sjómenn á áætlunarskipum íslensku skipafélaganna eru færeyskir laun- þegar og greiða skatta sína þar  Íslensk alþjóðleg skipaskrá dauður lagabókstafur Morgunblaðið/Ómar Goðafoss Kaupskipin eru í stöðugum ferðum á milli Íslands og Evrópu. Fjórir fossar eru á vegum Eimskips og tvö fell á vegum Samskipa. Búið er að veiða yfir 100 þúsund tonn af makríl á vertíðinni, en heildarkvóti íslenskra skipa í ár er 145 þúsund tonn. Um helmingi aflans hefur verið landað í Vest- mannaeyjum og Neskaupstað. Skip sem njóta aflareynslu hafa veitt um 72 þúsund tonn af 105 þúsund tonna kvóta. Vinnsluskip eru búin að landa 19 þúsund tonn- um af 31 þúsund tonna kvóta og skip sem ísa um borð hafa landað ríflega 7 þúsund tonnum af 8.600 tonna kvóta, samkvæmt bráða- birgðaupplýsingum á vef Fiski- stofu. Tólf minni bátar hafa veitt mak- ríl á línu og handfæri í sumar og er afli þeirra kominn yfir 400 tonn. Sæhamar hefur komið með mestan afla að landi af krókabátunum. Á heimasíðu Landssambands smá- bátaeigenda segir að nokkuð sé í land að krókabátar flykkist á mak- rílveiðar þar sem veiðarnar séu enn á tilraunastigi og stofnkostn- aður mikill. Afli á yfirstandandi vertíð sýni að þróunin sé í rétta átt. Makrílaflinn kominn yfir 100 þús. tonn Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þýsk kona var í gær dæmd í tveggja og hálfs árs fangelsi í Hér- aðsdómi Reykjaness fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot er hún stóð að innflutningi á rúmum 400 grömm- um af MDMA, e-töfludufti. Efnið flutti konan innvortis í líkama sín- um er hún kom með flugi frá Berlín til Íslands. Í dómnum segir að konan, Mar- eme Laye Diop, hafi ætlað efnið til söludreifingar hér á landi í ágóða- skyni, en hægt er að framleiða tæp- lega 5.500 e-töflur úr duftinu. Auk fangelsisdómsins er þess krafist að Diop greiði allan sakarkostnað. Ennfremur segir í dómnum að Diop hafi skýlaust játað brot sitt og að hún hafi lagt lögreglu lið. Ekki þykir tilefni til að skilorðsbinda refsinguna að hluta, en til frádrátt- ar kemur gæsluvarðhald sem hún hefur sætt síðan í maí. 2½ árs fangelsi fyrir fíkniefnasmygl Til þess að íslensku sjómenn- irnir geti talist njóta íslenskra kjarasamninga til fulls, þótt þeir séu í raun færeyskir laun- þegar, greiða skipafélögin þeim persónuafsláttinn sem veittur er í íslenska skattkerfinu. Þá greiða þeir í lífeyrissjóð. Vegna tvísköttunarsamnings eru tekjur mannanna ekki skatt- lagðar aftur hér á landi en það kann þó að fara eftir tekjum hver snertiflöturinn er við skattkerfið. Mennirnir eiga ekki rétt á vaxtabótum og vinna sér ekki inn réttindi til at- vinnuleysisbóta eða fæðingarorlofs. Þeir eru einnig utan kerfis í Færeyjum vegna þess að þeir eru ekki búsettir þar. Menn sem búsettir eru á Íslandi njóta þó heilbrigðisþjónustu og ýmissa réttinda út á það. Fá ekki bætur ÓVISSA UM RÉTTINDIFRÉTTASKÝRING Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekkert raunverulegt kaupskip siglir undir þjóðfána Íslands. Skipin sem annast fastar áætlanasiglingar með vörur til Evrópu eru skráð erlendis. Íslenskir sjómenn eru í öllum stöðum um borð í skipunum en þeir eru í vinnu hjá færeyskum dótturfélögum og skipafélögin fá meirihluta skatta þeirra endurgreidda til sín. Sem eyþjóð eru Íslendingar mjög háðir skipaflutningum til og frá land- inu. Hér var stór kaupskipafloti og sigldu skipin undir íslenskum fána. Það er löngu breytt. Eimskip skráir gámaflutningaskip sín í Antígva og Barbúda sem er eyríki í Austur- Karíbahafi og Samskip skrá skip sín á Alþjóðlegri færeyskri skipaskrá. Þróunin hér varð sú sama og í ná- grannalöndunum þar sem flutn- ingaskipunum var smám saman flaggað út svo þau voru komin með torkennilega fána og mönnuð erlend- um áhöfnum að stórum hluta. Á Norðurlöndunum voru stofnaðar al- þjóðlegar skipaskrár til að snúa þró- uninni við. Skipafélögin voru lokkuð til að skrá skip sín til baka með Kínverska rannsóknarskipið og ísbrjóturinn Snædrek- inn liggur nú við Akurey í Kollafirði en skipið hefur að undanförnu verið við Íslandsstrendur við rannsóknir. Meðal þess sem hefur verið rannsakað er samanburður á loftslagsbreytingum í Kína og í Norður-Atlantshafi. Rannsóknirnar hafa m.a. verið unnar í samvinnu við íslenska vísindamenn við Háskóla Íslands og tveir ís- lenskir vísindamenn, þau Egill Þór Níelsson, gisti- fræðimaður við Heimskautastofnun Kína, og Ingibjörg Jónsdóttir, dósent við Háskóla Íslands, hafa verið og verða um borð í skipinu. Leiðangurinn er afar um- fangsmikill og sem dæmi um það var athugunardufl sem vegur fimmtán og hálft tonn sett á flot í Noregssjó til rannsókna á hafi og veðri fyrr í mánuðinum. Snædrekinn er fyrsta kínverska skipið sem farið hef- ur í gegnum norðausturleiðina um Norður-Íshaf og heimsóknin í boði íslenskra stjórnvalda markar jafn- framt fyrstu opinberu komu Snædrekans til norður- slóðaríkis. Þetta er þó fimmti leiðangur skipsins á norðurslóðir og verður það hér dagana 16.-20. ágúst. Snædrekinn við Íslandsstrendur Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.