Morgunblaðið - 15.08.2012, Síða 8

Morgunblaðið - 15.08.2012, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012 Málþing í tilefni af heimsókn Snædrekans Háskóla Íslands, föstudaginn 17. ágúst kl. 8.30–13.00 Í tilefni af heimsókn kínverska rannsóknaísbrjótsins Snædrekans til Íslands verður efnt til málþings 17. ágúst nk. kl. 8.30–13.00 í Hátíðasal Háskóla Íslands. Íslenskir og kínverskir vísindamenn flytja erindi um rannsóknir sem tengjast leiðangri Snædrekans og málefnum norðurslóða. Lokaorð málþingsins á forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson. Málþingið, sem fer fram á ensku, er öllum opið. Þátt- takendur eru beðnir að skrá sig í síðasta lagi miðviku- daginn 15. ágúst á slóðinni www.hi.is/snaedrekinn, en þar er einnig að finna dagskrá þingsins og nánari upplýsingar. Þýska vikuritið Spiegel er „dag-blað“ á vefnum. Það hefur löngum dregið tauminn frá vinstri en þykir að öðru leyti vandað. Í enskri útgáfu þess voru í gær fjórar af megin fréttaskýringunum um evruvandann.    Sú fyrsta fjallaðium að Frakkar, sem væru mjög háð- ir fortíð sinni, vildu gjarnan heyra til Norður-Evrópu (m.ö.o. vera ábyrg- ir), en hjarta þeirra lægi í Suður- Evrópu og myndu þeir því varla komast óskaddaðir út úr evruóveðr- inu sem nú geisaði.    Önnur var um að aðild að ESBhefði ekki sama aðdráttarafl og áður.    Sú þriðja var um að þýskt efna-hagslíf væri að missa þrótt.    Og sú fjórða fjallaði um að bank-ar, sjóðir og helstu fjárfestar heimsins byggju sig nú opinskátt undir að evran leystist upp.    Á sama tíma eru Íslendingar í að-lögun að ESB og aðalröksemd þess er að þjóðin þurfi að falla undir evruna. VG líst ekki lengur á blik- una. En Árni Páll samfylking- armaður er fastur í „ferlinu“ og seg- ir:    Íslendingar þurfa að hugsa ferliðöðruvísi en hingað til. Við þurf- um að hugsa um það hvaða leiðir eru bestar fyrir okkur til að vera hluti af hinu evrópska kerfi. Við þurfum ekkert á því að halda að loka neinum dyrum strax. Það er svolítið skrýtið að þeir sem ekki hafa plan B keppist við að skemma plan A.“    Árni, það var aldrei plan A. Árni Páll Árnason Plat A eða plat B? STAKSTEINAR Veður víða um heim 14.8., kl. 18.00 Reykjavík 18 skýjað Bolungarvík 20 skýjað Akureyri 19 skýjað Kirkjubæjarkl. 13 skýjað Vestmannaeyjar 12 léttskýjað Nuuk 12 skýjað Þórshöfn 11 skúrir Ósló 20 heiðskírt Kaupmannahöfn 18 heiðskírt Stokkhólmur 21 heiðskírt Helsinki 22 heiðskírt Lúxemborg 23 heiðskírt Brussel 23 léttskýjað Dublin 20 léttskýjað Glasgow 21 léttskýjað London 23 léttskýjað París 25 skýjað Amsterdam 22 heiðskírt Hamborg 22 léttskýjað Berlín 22 heiðskírt Vín 25 léttskýjað Moskva 17 skýjað Algarve 22 léttskýjað Madríd 32 heiðskírt Barcelona 28 léttskýjað Mallorca 28 léttskýjað Róm 30 léttskýjað Aþena 28 léttskýjað Winnipeg 20 skýjað Montreal 22 alskýjað New York 25 léttskýjað Chicago 23 léttskýjað Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 15. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:21 21:44 ÍSAFJÖRÐUR 5:12 22:03 SIGLUFJÖRÐUR 4:55 21:46 DJÚPIVOGUR 4:47 21:17 Íslendingar enduðu í 6. sæti í sínum riðli á ólympíumótinu í brids í Lille í Frakklandi í gær og komust ekki í 16 liða úrslit mótsins. Sveinn Rúnar Eiríksson, fyrirliði íslenska liðsins, segir að íslensku spilararnir hafi spilað vel á mótinu ef undan séu skildir tveir leikir, þar á meðal sá síðasti gegn Mónakó. Þeir séu því tiltölulega sáttir við frammistöðuna þrátt fyrir að mark- miðið hefði verið að komast í úr- slitakeppnina. Íslenska liðið byrjaði vel í gær og vann Botsvana 25:3 í fyrsta leikn- um. Síðan lagði liðið Norðmenn, 17:13 og var í 4.-5. sæti fyrir síðasta leikinn ásamt Tyrkjum. Síðasta viðureignin var við lið Mónakó, sem er skipað norskum, frönskum og ítölskum atvinnu- mönnum. Íslendingarnir byrjuðu illa í leiknum og smátt og smátt seig á ógæfuhliðina. Leiknum lauk síðan með stórsigri Mónakó, 25:1, og Íslendingar féllu niður í 6. sæti. Mónakó vann riðilinn með yfir- burðum og fékk 319 stig. Ísrael varð í 2. sæti með 290 stig, Noregur í 3. sæti með 275 stig, Tyrkland í 4. sæti með 271 stig og Kína í 5. sæti með 257 stig. Íslendingar enduðu í 6. sæti með 256 stig. Átta liða úrslitin hefjast í dag Ís- lenska liðið hefur hins vegar lokið keppni. Íslendingar komust ekki í úrslit  Tap í síðasta leik var örlagaríkt Við græna borðið Keppendur á ólympíumótinu í Lille.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.