Morgunblaðið - 15.08.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Ljósmyndabækurnar Ice-landic Turf Houses ogIcelandic National Cost-umes, innihalda myndir
frá fyrri hluta síðustu aldar.
Þær eru í haganlegu litlu broti
með formála og skýringum á
ensku.
Hildur Hermóðsdóttir, eigandi
Bókaútgáfunnar Sölku, tók bæk-
urnar saman og skrifaði formála.
Áhugi á þjóðararfinum
„Hugmyndin að bókunum
kviknaði skyndilega á vordögum
þegar ég fór að hugsa hvað það
væri skrýtið að engin bók væri til
um íslenska torfbæi. Enda vekja
þeir alltaf athygli og íslenski bún-
ingurinn sömuleiðis. Ég hef mikinn
áhuga á íslenskum þjóðararfi og
datt því í hug að skoða hvað væri
til og tína saman ljósmyndir í tvær
bækur.
Ég leitaði til Þjóðminjasafns-
ins, Safnahússins á Húsavík og Ak-
ureyri. Eitthvað tíndi ég líka til úr
fjölskyldualbúmum hjá mér. Flest-
ar myndanna hafa ekki birst áður,
þær eru reyndar svolítið misjafnar
að gæðum en margar býsna góð-
ar,“ segir Hildur.
Heppni að húsin standi enn
Bókin með torfbæjum Íslend-
inga gefur merkilega innsýn í
byggingarsögu þjóðarinnar en flest
húsin í bókinni eru nú horfin. Ís-
lendingar bjuggu í torfbæjum allt
frá landnámi en upp úr 1900 fór
annar húsakostur að ryðja sér til
rúms. Nú eru einungis uppistand-
andi örfáir torfbæir sem varðveittir
eru af Þjóðminjasafni Íslands, flest-
ir þeirra eru burstarbæir, en það
var byggingarlag sem fór að þróast
skömmu fyrir aldamótin 1900.
„Það er í raun bara heppni að
nokkur þessara húsa standi enn þá
enda var verið að ryðja þeim niður
fram undir 1960. Húsin á mynd-
unum eru misreisuleg og sést að
sum þeirra voru komin nærri að
falli þegar myndirnar voru teknar.
Þá er skemmtilegt að sjá á mynd-
um frá Reykjavík hvernig nýi bær-
inn yfirtekur borgina og aðeins
einn og einn torfbær stendur eftir.
Maður getur ímyndað sér hvað það
hefur verið skrýtið þegar uppbygg-
Á peysufötunum
í lautarferð
Torfbæir og sparibúningar íslenskra kvenna eru í aðalhlutverki í ljósmyndabók-
unum Icelandic Turf Houses og Icelandic National Costumes. Hildur Hermóðs-
dóttir tók myndirnar saman og skrifaði inngang en flestar hafa ekki birst almenn-
ingi áður. Myndirnar færa lesanda aftur í tímann og eru mikilvægur minnisvarði
þess hvernig lífið var í íslenska bændasamfélaginu á 19. og 20. öld.
Morgunblaðið/Ernir
Bókagerð Hildur er mikil áhugakona um íslenska þjóðararfinn.
ljósmynd/Ljósmyndari óþekktur
Glæsilegar Mynd af fallega greiddum konum tekin í kringum 1910.
Nú þegar haustið færist nær fara
margir foreldrar að huga að því að
kaupa klæði á afkvæmin og birgja sig
upp fyrir veturinn. Þá er um að gera
að nýta sér útsölurnar og spara
heimilisútgjöldin. Vert er að vekja at-
hygli á því að í íslenskum netversl-
unum eru líka útsölur og ein af mörg-
um slíkum er skoffin.is, sem stofnuð
var fyrir tveimur árum. Skoffin.is er
vefverslun með barnaföt og fylgi-
hluti. Hjá skoffin.is fást barnaföt frá
sænska merkinu Maxomorra, merki
sem kallast Fozia og kemur frá Lond-
on, finnska merkinu Nosh Organics
sem og breska merkinu Pili Pala.
Öll eru fötin frá þessum merkjum
úr lífrænni bómull. Nýjasta nýtt hjá
skoffin.is eru svo sundbleyjur frá
sænska merkinu Zunblock.
Einnig fást hjá skoffin.is fair trade
fylgihlutir fyrir börn frá Global aff-
airs, svo sem bakpokar, smekkir, hár-
spennur, hárteygjur, náttljós og
fleira. Fötin sem þarna fást eru fyrir
krakka á aldrinum frá þriggja mán-
aða til tólf ára og má þar nefna hlýra-
boli, venjulega boli, samfellur, galla,
húfur, buxur, sundföt og teppi.
Að lokum má geta þess að Skoff-
in.is býður upp á heimakynningar
fyrir hópa.
Vefsíðan www.skoffin.is
Litríkt Þau eru mjúk og litaglöð fötin sem fást hjá vefversluninni Skoffin.is
Skoffínföt fyrir börnin smá
Tónleikastaðurinn Café Rósenberg
hefur staðið vel undir nafni og sann-
að sig sem einn af þessum litlu og
notalegu tónleikastöðum þar sem ná-
lægðin við tónlistarfólkið er mikil.
Sumir kalla staðinn meira að segja
höfuðvígi íslensku indí-senunnar á Ís-
landi. Í kvöld verða tónleikar á Café
Rósenberg þar sem efnisskráin sam-
anstendur af frumsömdum lögum við
ljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagra-
skógi. Í tilkynningu segir að Davíð
hafi löngum verið talinn eitt helsta
þjóðskáld Íslendinga og að ljóð eins
og „Litla Gunna og litli Jón“ og
„Kvæðið um fuglana“, sem hefst á
orðunum „Snert hörpu mína himin-
borna dís“, séu öllum Íslendingum að
góðu kunn og hafi haldið okkur fé-
lagsskap í rúm hundrað ár.
Hljómsveitina sem spilar í kvöld
skipa eftirtaldir tónlistarmenn: Con-
rad McGreal, lagasmíðar, söngur og
hljómborð, Frank Aarnik, trommur og
slagverk og Ingólfur Magnússon,
kontrabassi.
Tónleikarnir hefjast í kvöld klukkan
21 og aðgangseyrir er aðeins 1000 kr.
Allir velkomnir.
Endilega...
...komið við á
Rosenberg
Skáldið góða Davíð Stefánsson.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.