Morgunblaðið - 15.08.2012, Síða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012
Heimsendir er í nánd.Loftsteinn er í þannmund að skella á jörðinaog ekkert sem almenn-
ingur né stjórnvöld geta gert. Í stað
þess að eyða síðustu dögum sínum í
eiturlyfjasukk eða kynlífsorgíur,
eins og svo margir, þá leggja ná-
grannarnir Dodge (Steve Carell) og
Penny (Keira Knightley) af stað í
leiðangur til að finna ástvini sína.
Þau verða síðan að sjálfsögðu ást-
fangin á leiðinni. Spurningin sem
þau standa frammi fyrir er því sú
hvort það taki því yfirhöfuð að
verða ástfangin þar sem þau eiga
aðeins þrjár vikur eftir ólifaðar.
Hugmyndin um tilgangslausa ást,
og tilgangsleysi yfirhöfuð, er áhuga-
verð en það er hinsvegar fremur
ódýr aðferð að nýta sér heimsendi
til þess að búa til slíkar aðstæður.
Gæði handritsins hefðu orðið meiri
ef tekist hefði að skapa sömu flækj-
ur og tilfinningar án þess að skella
heimsendi inn í ástarsöguna.
Atburðarásin er mjög línuleg og
fátt sem truflar skynbragð áhorf-
andans. Myndin er ágætlega tekin
upp og ramminn skemmtilega
hreyfður á köflum. Tónlist er mikið
nýtt í myndinni og kemur hún mis-
vel út. Undirrituðum þótti þó ein-
staklega gaman að sjá að Penny átti
Pixies plötu á vínil sem hún, af
óskiljanlegum ástæðum, ákvað að
skilja eftir og taka í stað hennar
Wilco plötu með sér inn í heimsend-
inn. Einu rökin sem færa má fyrir
slíku glapræði er að Penny hafi
grunað að plöturnar á heimili henn-
ar yrðu betur verndaðar gegn
brennandi eldhafi loftsteinsins en
þær sem hún tók með sér í
leiðangurinn.
Steve Carell hefur ekki leikið al-
mennilegt hlutverk síðan hann fór
með hlutverk Franks í Little Miss
Sunshine. Þar sannaði hann að
hann getur vel leyst af hólmi öllu al-
varlegri hlutverk en þau sem hann
fæst vanalega við. Hann leysir hlut-
verk Dodge vel og jarðbundin, ein-
læg og þunglynd persóna hans
kemst vel til skila. Keira Knightley
er að sama skapi ágæt. Þó svo
frammistaða hennar sé ekki á sama
stalli og Carells þá tekst henni
ágætlega til við að vera farþegi í
framvindu sem er drifin áfram af
þeim fyrrnefnda.
Myndin verður fremur hjartnæm
á köflum án þess þó að missa sig í
einhverri væmni, kímni Carells nýt-
ist þar vel. Kvikmyndin nær þó því
miður ekki að verða annað en ágæt-
is tilraun til viskubrunns.
Heimsendaást Dodge og Penny þurfa að ganga í gegnum súrt og sætt er
þau verða ástfangin rétt áður en loftsteinn skellur á jörðina.
Ástin flækir
heimsendann
Sambíóin
Seeking a Friend for the End of the
World bbbnn
Leikstjórn og handrit: Lorene Scafaria.
Aðalhlutverk: Steve Carell, Keira
Knightley, William Petersen, Adam
Brody og Martin Sheen.101 mín. Banda-
ríkin 2012.
DAVÍÐ MÁR
STEFÁNSSON
KVIKMYNDIR
The Watch
Gamanmynd sem segir af fjórum
körlum sem búa í sama úthverfinu
og ákveða að sinna þar nágranna-
vörslu, einkum þó til að komast út
úr húsi á kvöldin og skemmta sér.
Framan af reynist nágrannavarslan
þeim auðveld eða þar til þeir kom-
ast að því að geimverur hafa komið
sér fyrir í hverfinu og að þeir þurfa
að bjarga mannkyninu frá útrým-
ingu. Leikstjóri myndarinnar er
Akiva Schaffer og í aðalhlut-
verkum Ben Stiller, Billy Crudup,
Jonah Hill og Vince Vaughn.
Metacritic: 35/100
Bíófrumsýning
Geimverur í úthverfi
Geimverur Úr gamanmyndinni The Watch sem verður frumsýnd í dag.
Kanadíska eins-
manns-
hljómsveitin
Paper Beat Scis-
sors, nánar til-
tekið tónlistar-
maðurinn Tim
Crabtree, heldur
tónleika á Fak-
torý á morgun,
16. ágúst.
Fyrsta plata
Paper Beat Scissors kom út fyrr á
árinu og vann hann plötuna m.a.
með hljómsveitinni Arcade Fire.
Auk Crabtree koma fram annað
kvöld Snorri Helgason og Boogie
Trouble.
Tónleikar Paper Beat Scissors
eru þeir fyrstu á tónleikaferðalagi
hans um Evrópu. Crabtree mun
taka stutta upphitun á Hemma og
Valda í kvöld.
Paper Beat
Scissors á Faktorý
Paper Beat Sciss-
ors/Tim Crabtree
Taustir lásasmiðir í yfir 24 ár
Verslun, Laugavegi 168 • www.neyd.is • laugavegur@neyd.is
s: 510 8888 • Opið alla virka daga 8:00-18:00
og hurðapumpur
Læsingar
Inni/úti Læsingar ▪ húnar ▪ skrár ▪ rósettur ▪ sílindrar • Hurðapumpur
Komum á staðinn og stillum hurðapumpur gegn vægu gjaldi
THE WATCH Sýnd kl. 8 - 10:20
PARANORMAN3D Sýnd kl. 4 - 6 - 8
BRAVE:HINHUGRAKKA 3D Sýnd kl. 4 - 6
KILLER JOE Sýnd kl. 10:20
INTOUCHABLES Sýnd kl. 3:50 - 6 - 8 - 10:20
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÍSL TEXTI
Frá höfundum Toy Story 3,
Leitin að Nemó og UPP
Stórkostleg teiknimynd
fyrir alla fjölskylduna
49.000 MANNS!
Bráðskemmtileg teiknimynd
frá þeim sömu og færðu
okkur CORALINE
MATTHEW MCCONAUGHEY
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
12
16
12
L
L
HHH
HHHH
VJV - SVARTHÖFÐI
HHHHH-MIAMI HERALD
HHHH- ROLLING STONES
HHHH- GUARDIAN
HHHH- TIME ENTERTAINMENT
MEÐ
ÍSLENSKU
TALI
TRYGGÐU
ÞÉR MIÐA
Á
3D
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
BREYTTU ÖRLÖGUM ÞÍNUM!
THE WATCH KL. 5.40 - 8 - 10.20 12
THE WATCH LÚXUS KL. 5.40 - 8 - 10.20 12
PARANORMAN 3D KL. 3.30 - 5.45 L
BRAVE:HINHUGRAKKA 2D KL. 3.30 - 5.45 L
BRAVE:HINHUGRAKKA 3D KL. 5.45 L
TOTAL RECALL KL. 8 - 10.35 12
ÍSÖLD 4 3D ÍSL.TAL / 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 L
TED KL. 8 - 10.20 12
SPIDER-MAN 3D KL. 8 - 10.50 10
THE WATCH KL. 5.50 - 8 - 10 12
TOTAL RECALL KL. 8 12
KILLER JOE KL. 10.15 16
INTOUCHABLES KL. 5.50 12
THE WATCH KL. 8 - 10.20 12
PARANORMAN 3D KL. 5.40 L
TO ROME WITH LOVE KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
TOTAL RECALL KL. 8 - 10.35 12
ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 5.40 L
INTOUCHABLES KL. 5.30 - 8 - 10.30 L