Morgunblaðið - 31.08.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Þessar ungu stúlkur eru í hópi krakka úr 5., 6.
og 7. bekk í Norðlingaskóla sem fóru í golf í
Grafarholti í gær. „Við erum að rækta okkar
starf sem íþróttakennarar til að kynna krökkum
ólíkar íþróttagreinar. Við í Norðlingaskóla erum
svo heppin að vera nærri golfvellinum í Grafar-
holti. Golfklúbbur Reykjavíkur var svo almenni-
legur að leyfa okkur að koma. Við kunnum hon-
um bestu þakkir fyrir,“ segir Hermann Valsson,
íþróttakennari í Norðlingaskóla. Um 300 krakk-
ar úr Norðlingaskóla hafa kynnt sér golfíþrótt-
ina á Grafarholtsvelli á liðnum dögum.
Um 300 krakkar í Norðlingaskóla hafa kynnt sér golfíþróttina í vikunni
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Lenti í sandglompu í golfi í skólanum
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað
(SVN) hefur nú undirritað samning
um kaup á öllu hlutafé í útgerðar-
félaginu Bergi-Hugin ehf. í Vest-
mannaeyjum. Seljandi hlutafjárins
er hlutafélag í eigu Magnúsar Krist-
inssonar og fjölskyldu hans. Kaup-
samningurinn er undirritaður með
fyrirvara um samþykki Samkeppnis-
eftirlitsins en kaupverðið er trúnað-
armál á milli kaupanda og seljanda.
Útgerðarfélagið Bergur-Huginn
gerir út tvo nýlega togara, Bergey
VE-544 og Vestamannaey VE-444.
Eftir þessi kaup mun SVN ráða yfir
samtals fjórum skipum til bolfisk-
veiða en samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá SVN er ljóst að skipunum
verður fækkað um eitt í hagræðing-
arskyni. Bergur-Huginn ræður yfir
aflaheimildum sem nema um fimm
þúsund þorskígildistonnum í bolfiski
á yfirstandandi veiðiári en saman-
lagðar aflaheimildir félaganna
tveggja munu nema um tíu þúsund
þorskígildistonnum í bolfiski.
Áfram útgerð í Eyjum
Að sögn Gunnþórs Ingvasonar
mun SVN reka Berg-Hugin sem
sjálfstætt félag og halda áfram út-
gerð frá Vestmannaeyjum. „Þetta
verður í einhvern tíma hjá Sam-
keppniseftirlitinu til umsagnar og
við eigum eftir að teikna þetta upp
bæði með starfsmönnum Bergs-
Hugins og Síldarvinnslunnar og fara
í gegnum málin en það liggur auðvit-
að alveg fyrir að auknar álögur kalla
á aukna hagræðingu í útgerðinni,“
segir Gunnþór, aðspurður hvort búið
sé að ákveða hvar skorið verður nið-
ur um eitt skip, þ.e. hjá Bergi-Hugin
eða hjá SVN.
Ekki óskaniðurstaðan
„Niðurstaðan eins og hún blasir
við núna er ekki mín óskaniður-
staða,“ segir Magnús Kristinsson,
útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, í
fréttatilkynningu sem hann sendi
frá sér í gær um söluna. Magnús var
með umsvifamikinn rekstur fyrir
bankahrun og rak meðal annars
Toyota-umboðið um tíma og átti
jafnframt hlut í Landsbankanum.
Salan felur í sér fullt skuldauppgjör
við Landsbankann en með henni
lýkur útgerðarsögu Magnúsar sem
staðið hefur óslitið síðustu 40 ár í
Vestmannaeyjum.
Ætla að fækka um eitt skip
Síldarvinnslan kaupir Berg-Hugin Samningurinn bíður samþykkis
Samkeppniseftirlitsins 40 ára útgerðarsögu Magnúsar Kristinssonar lokið
Gunnþór
Ingvason
Magnús
Kristinsson
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Framkvæmdir við Norðfjarðargöng
munu hefjast næsta sumar, að sögn
Kristjáns Möller, formanns at-
vinnuveganefndar. „Það er verið að
vinna að hönnun, útboðsgögnum,
skipulagsmálum og samningum við
landeigendur. Ferlið er á fullri ferð
og mun leiða til þess að verkið
verður boðið út strax í upphafi
næsta árs,“ segir Kristján.
Tekur um þrjú ár og
kostar 10,5 milljarða
Framkvæmdir taka um þrjú ár
og síðustu kostnaðaráætlanir gera
ráð fyrir að kostnaður verði 10,5
milljarðar að sögn Kristjáns.
„Ég er mjög ánægður að þetta
skuli vera að takast. Í samgöngu-
áætlun sem ég lagði fram sem sam-
gönguráðherra og samþykkt var á
Alþingi var gert ráð fyrir fjárveit-
ingum vegna ganganna í ár og því
hefðu framkvæmdir átt að vera að
hefjast núna. Því er um ársfrestun
að ræða en við það verður að una
miðað við bága stöðu ríkissjóðs,“
segir Kristján en bætir við að aðal-
atriðið sé að ákvörðun hafi verið
tekin, undirbúningur sé á fullri ferð
og það séu mikil gleðitíðindi.
Hreinn Haraldsson vega-
málastjóri segir að vinna við und-
irbúning hafi farið aftur af stað á
síðustu vikum. Lokahnykkurinn sé
nú framundan og ekkert bendi til
annars en að útboð geti farið fram
eftir áramót, öll vinna gangi sam-
kvæmt áætlun. Nýju göngin munu
fullnægja kröfum nútímans varð-
andi þægindi og öryggi vegfarenda.
„Allt verður í samræmi við kröfur,
ef við tökum Héðinsfjarðargöng og
Bolungarvíkurgöng þá er um svip-
aða hönnun og samskonar mann-
virki að ræða,“ segir Hreinn. Göng-
in verða tæplega 8 km að lengd,
gangamunni í Eskifirði verður
skammt innan við þéttbýli og hinn
endi ganganna í Fannardal.
Kristján minnir á að Oddsskarðs-
göng séu ein verstu jarðgöng á Ís-
landi, eigi lítið skylt við nútíma-
samgöngur, séu dimm og í þeim sé
blindhæð. Ný göng verða vænt-
anlega mikil búbót fyrir íbúa og at-
vinnulíf á svæðinu en í Neskaup-
stað er fjórðungssjúkrahús og
verkmenntaskóli svo eitthvað sé
nefnt.
Norðfjarðargöng að veruleika
Norðfjarðargöng
Fyrirhugað fram-
kvæmdasvæði
Eskifjörður
Neskaupstaður
Loftmyndir ehf.
Reyðarfjörður
Framkvæmdir hefjast næsta sumar Undirbúningur hófst aftur fyrir nokkr-
um vikum og hefur gengið vel Verkið verður boðið út snemma á næsta ári
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Jarðskjálfti upp á 4,6 stig reið yfir í
hádeginu í gær. Upptök skjálftans
voru skammt frá Vífilsfelli í ná-
grenni við skíðasvæðið í Bláfjöllum
en samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofu Íslands er þetta með stærri
skjálftum sem riðið hafa yfir á
svæðinu. Jarðskjálftinn mun hafa
fundist vel á höfuðborgarsvæðinu
sem og víða á Suðurlandi, þ. á m. í
Fljótshlíðinni og á Selfossi. „Nei,
ekki fyrir utan þann sem varð fyrir
utan Jan Mayen. Það hefur í raun
voðalega lítið gerst eftir þetta, hann
var frekur grunnur og einhvers
konar spennuútlausnarskjálfti,“
sagði Óli Þór Árnason, veðurfræð-
ingur á Veðurstofunni, í gærkvöldi,
spurður hvort einhverjar jarðhrær-
ingar hefðu átt sér stað í gær í kjöl-
far skjálftans. „Það var eitthvað
smá þarna á eftir en síðan hefur
þetta róast,“ bætti Óli Þór við.
Á ekki von á skemmdum
„Ég held að þetta sé ekki sú
stærð af jarðskjálfta sem myndi
hafa áhrif á búnaðinn en það er þó
möguleiki að eitthvað hafi hreyfst,“
segir Björn Ólafsson, forsvars-
maður Þríhnúka, félags sem býður
upp á ferðir niður í Þríhnúkagíg í
Bláfjöllum, aðspurður hvort ein-
hverjar skemmdir hefðu orðið á
mannvirkjum við gíginn. Að sögn
Björns var enginn ofan í gígnum
þegar jarðskjálftinn reið yfir en í
ljós kemur í dag, þegar farið verður
að Þríhnúkagíg, hvort skjálftinn
hefur valdið einhverjum skemmd-
um.
Rólegt
í kjölfar
skjálfta
Morgunblaðið/Golli
Þríhnúkagígur Enginn var ofan í
gígnum þegar skjálftinn reið yfir.
Ekki von á tjóni
við Þríhnúkagíg
Báðar íslensku
skáksveitirnar á
Ólympíumótinu í
Tyrklandi unnu í
gær Wales með
yfirburðum. Í
opnum flokki
vannst stórsigur
3,5 gegn 0,5. Að-
eins Hannes Hlíf-
ar Stefánsson
varð að gera sér
jafntefli að góðu, en Hjörvar Steinn
Grétarsson, Þröstur Þórhallsson og
Dagur Arngrímsson unnu. Dagur
tefldi sína fyrstu skák fyrir ólympíulið
Íslands.
Í kvennaflokki vannst 3-1 sigur.
Lenka Ptácníková, Hallgerður Helga
Þorsteinsdóttir og Elsa María Krist-
ínardóttir unnu en Jóhanna Björg Jó-
hannsdóttir tapaði sinni skák.
Unnu báðar
stórsigur á
liðum Wales
Hjörvar Steinn
Grétarsson