Morgunblaðið - 31.08.2012, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2012
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Síðustu kannanir í Hollandi benda til
þess Sósíalistaflokkurinn stórauki
fylgi sitt og eigi möguleika á að verða
stærsti flokkur landsins í þingkosn-
ingum sem fram fara miðvikudaginn
12. september. Fari svo missir Ang-
ela Merkel, kanslari Þýskalands,
einn af fáum bandamönnum sínum í
baráttunni fyrir auknu aðhaldi í
ríkisfjármálum innan Evrópusam-
bandsins, að því er fram kemur á vef
þýska vikuritsins Spiegel.
Sósíalistaflokkurinn er flokkur
fyrrverandi maóista og fylgisaukn-
ing hans er einkum rakin til and-
stöðu hans við aukið valdaframsal til
Brussel og við sparnaðaráform hol-
lensku stjórnarinnar til að uppfylla
skilmála Maastricht-sáttmálans.
Vill þjóðaratkvæði
um valdaframsal
Emile Roemer, leiðtogi Sósíal-
istaflokksins, segir að það sé „engin
lausn á skuldavanda evrulanda að
auka völd tæknikrata í Brussel“.
Hann vill að allir samningar, sem feli
í sér aukið valdaframsal Hollands til
Brussel, verði bornir undir þjóðarat-
kvæði, m.a. samningur 25 ESB-ríkja
um aukið aðhald í ríkisfjármálum.
Kannanir benda til þess að
Roemer sé vinsælasti stjórnmála-
maður Hollands og vinsældir hans
eru einkum raktar til andstöðu hans
við aukin völd embættismanna ESB
í ríkisfjármálum. „ESB-ríkin eiga að
gera það aftur sem þeim var ætlað að
gera: vinna saman,“ hefur fréttaveit-
an AFP eftir honum. „Það er alls
ekki það sama og að láta Brussel-
valdið ráðskast með sig.“
Sósíalistaflokkurinn var andvíg-
ur evrunni áður en hún var tekin upp
í Hollandi árið 2002 en flokkurinn
hefur ekki lagt til að Holland segi
skilið við gjaldmiðilinn.
Frelsisflokkurinn, sem er álit-
inn lengst til hægri í hollenskum
stjórnmálum, hefur einnig lagt
áherslu á andstöðu við aukið valda-
framsal til Brussel og vill að Holland
leggi niður evruna og taki aftur upp
gyllini.
Ríkisstjórn Marks Rutte, for-
sætisráðherra Hollands, hefur stutt
Þjóðverja í því að setja ströng skil-
yrði fyrir neyðarlánum til skuldugra
evruríkja á borð við Grikkland. Í
kosningabaráttunni hefur þó Rutte
látið í ljósi andstöðu við aukið valda-
framsal til Brussel og áform um
aukna aðstoð við Grikkland.
AFP
Vinsæll og veit af því Roemer gæti
orðið forsætisráðherra Hollands.
Sósíalistar í stórsókn
með gagnrýni á ESB
Gætu orðið stærsti flokkurinn á þingi Hollands Einkum
rakið til andstöðu flokksins við aukið valdaframsal til Brussel
Tvísýn barátta
» Könnun, sem birt var á
sunnudag, bendir til þess að
Sósíalistaflokkurinn verði
stærsti flokkurinn og þingsæt-
um hans fjölgi úr 15 í 35.
Stjórnarflokknum VVD, sem er
mið- og hægriflokkur, var spáð
34 sætum (er nú með 31).
» Ef marka má aðra könnun,
sem birt var á þriðjudag, fær
VVD 34 sæti af 150, en Sósíal-
istaflokkurinn 30.
Richard Millet, virtur rithöfundur í
Frakklandi, hefur verið gagnrýndur
harðlega vegna átján síðna bæklings
þar sem hann ver norska fjölda-
morðingjann Anders Behring Brei-
vik. „Breivik er án nokkurs vafa það
sem Noregur verðskuldaði,“ segir
Millet meðal annars í bæklingnum.
Millet tekur fram að hann sé ekki
hlynntur „hryllilegum glæpum“
Breiviks og sé ekki að verja fjölda-
morðin. Hann fer hins vegar lofsam-
legum orðum um 1.500 síðna
„stefnuyfirlýsingu“, sem Breivik
birti á netinu, og
ver hatur hans á
múslímum úr
röðum innflytj-
enda í Evrópu og
fjölmenningar-
hyggju. Hann
lýsir fórnar-
lömbum Breiviks
sem kynblend-
ingum og „ósið-
uðum sósíaldemókratískum smá-
borgurum“.
Millet hefur einnig starfað sem
ritstjóri hjá einni af stærstu bókaút-
gáfum Frakklands, Gallimard, og
ritstýrt nokkrum verðlaunabókum.
Nokkrir franskir rithöfundar hafa
gagnrýnt ummælin harðlega og
margir velta því fyrir sér hvað hon-
um gangi til. „Hann er ekki með
réttu ráði,“ sagði rithöfundurinn
Tahar Ben Jelloun.
„Ég er einn af hötuðustu rithöf-
undum Frakklands,“ hefur Millet
sagt um gagnrýnina. „Það er áhuga-
verð staða sem gerir mig sér-
stakan.“ bogi@mbl.is
Fullyrðir að Noregur hafi
verðskuldað Breivik
Richard Millet
Yfir 1.280 manns tóku þátt í fjölmennasta hópnuddi
sögunnar í ráðstefnuhöll í Bangkok í gær. Fyrra met
var sett í bænum Daylesford í Ástralíu í mars 2010 þeg-
ar 526 manns fengu nudd á sama tíma, samkvæmt
Heimsmetabók Guinness. Ríkisstjórn Taílands stóð fyr-
ir hópnuddinu til að vekja athygli á hefðbundnu taí-
lensku nuddi, sem kallað hefur verið „jóga lata manns-
ins“, og á taílenskum heilsuhælum fyrir ferðafólk.
AFP
Metþátttaka í jóga lata mannsins
270 námumenn, sem voru hand-
teknir í námu í Suður-Afríku, voru í
gær ákærðir fyrir manndráp í
tengslum við árás lögreglumanna
sem skutu 34 námumenn til bana
fyrir tveimur vikum. Yfirvöld
sögðu að lögreglumennirnir hefðu
ekki verið ákærðir vegna þess að
sérstök nefnd myndi rannsaka
gerðir þeirra.
Suðurafrískur embættismaður
sagði að námumennirnir hefðu ver-
ið ákærðir vegna þess að þeir hefðu
verið í hópi sem veitti lögreglunni
mótspyrnu í átökum sem blossuðu
upp í námunni vegna verkfalls. Þeir
hefðu allir verið ákærðir fyrir
manndráp, jafnvel þeir sem voru
óvopnaðir eða
voru aftast í
hópnum og tóku
ekki þátt í átök-
unum.
Þetta er mann-
skæðasta lög-
regluaðgerð í
Suður-Afríku frá
kosningunum ár-
ið 1994 eftir að
kynþáttaaðskiln-
aðarstefnan var afnumin. Hópsak-
sóknin er mjög umdeild og byggist
á lagaákvæði sem stjórn hvíta
minnihlutans notaði í baráttunni
gegn þeim sem börðust fyrir af-
námi aðskilnaðarins.
SUÐUR-AFRÍKA
Námumennirnir ákærðir fyrir manndráp
Saksókninni
mótmælt.
Karlmaður, sem gaf rangan fram-
burð varðandi rannsókn á hvarfi
hinnar 16 ára Sigrid Giskegjerde
Schjetne, hefur verið ákærður.
Hann var dæmdur árið 2007 fyrir
nauðgun og fyrir að hafa berað sig
á almannafæri.
Maðurinn hafði samband við lög-
reglu að fyrra bragði og sagðist
vera með upplýsingar sem gætu
varðað rannsóknina. Þegar lög-
regla kannaði málið kom í ljós að
enginn fótur var fyrir því sem
maðurinn sagði.
Hann er búsettur í Ósló, í ná-
grenni við heimili Sigrid. Hann
mun ekki sæta
gæsluvarðhaldi
og hefur verið
látinn laus.
Sigrid hefur
verið saknað síð-
an aðfaranótt 5.
ágúst. Þá var
hún á leið heim
frá vinkonu
sinni, en skilaði sér aldrei á leið-
arenda. Sími hennar, sokkur og
skór fundust fljótlega við leikskóla í
nágrenni heimilis hennar. Lögregla
stendur ráðþrota gagnvart hvarf-
inu.
NOREGUR
Ákærður fyrir rangan framburð
LINNETSSTÍG 2 | SÍMI: 565-4854
Mánudag - Föstudag 11:00 - 18:00 | Laugardagur 11:00 - 14:00
w w w . s i g g a o g t i m o . i s
Handsmíðað í Hafnarfirði síðan 1993