Morgunblaðið - 31.08.2012, Qupperneq 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2012
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Kvikmynd byggð á Ávaxtakörfunni,
leikriti Kristlaugar Maríu Sigurð-
ardóttur, Kikku, verður frumsýnd í
dag, 31. ágúst. Ávaxtakarfan fjallar í
grunninn um einelti og fordóma og
leiðir til að sporna gegn þeim mein-
semdum. Segir í
henni af ávöxtum
sem búa í ávaxta-
körfu og því sem
á daga þeirra
drífur. Líkt og í
leikriti Kikku er
boðskapur mynd-
arinnar sá að
hægt sé að láta af
óæskilegri og
mannskemmandi
hegðun. Tónlist-
ina samdi Þorvaldur Bjarni Þor-
valdsson en um leikstjórn sá Sævar
Guðmundsson. Handrit kvikmynd-
arinnar skrifaði Kikka sem og að
sjónvarpsþáttum sem teknir voru
upp samhliða henni.
Tvö handrit og flókið ferli
„Ég veit ekki hversu mikið við
getum kallað þetta bíómynd, bíó-
skemmtun hefur hún (Kikka) viljað
kalla þetta sem er ágætisorð,“ segir
leikstjórinn Sævar. Tólf þættir verði
sýndir á Stöð 2, líklegast næsta vor.
Sævar segir efnið hafa verið svo gott
að teknar hafi verið upp aukasenur
til að hægt væri að búa til sjötíu
mínútna mynd, senur sem verði ekki
í þáttunum. Því hafi verið unnið eftir
tveimur handritum, annars vegar að
þáttunum og hins vegar að mynd-
inni. „Þannig að það er notað örlítið
úr þáttunum plús fullt af nýjum sen-
um,“ segir Sævar.
Hann segir það vissulega hafa
flækt hlutina að vinna eftir tveimur
handritum. „Sjónvarpsþáttahandrit-
ið var gert fyrst og síðan bíómynd-
arhandritið og bíómyndarhandritið
þurfti í raun að ganga upp með fjár-
hagsáætlun í huga, að hægt væri að
nota einhverjar senur sem voru í
þáttunum og hugsa svolítið um allar
hliðar. Þegar kom að tökum vorum
við að gera tólf þætti í einu, þetta
var ekki skotið þannig að við klár-
uðum einn þátt og snerum okkur svo
að þeim næsta heldur voru þeir allir
gerðir í einu og myndin líka, til að ná
sem mestri hagkvæmni. Þá þurfti
maður í raun að treysta voða mikið á
handritið,“ segir Sævar. Það hafi
verið hagkvæmt og flýtt fyrir ferlinu
að taka alla myndina og þættina upp
í myndveri en myndverið sem notast
var við er það sama og Latabæjar-
þættirnir hafa verið teknir í. Sævar
er ekki ókunnugur því myndveri því
hann hefur leikstýrt nokkrum Lata-
bæjarþáttum.
Líkt og hokinn af reynslu
Ávextina leika þau Matthías
Matthíasson, Ólöf Jara Skagfjörð,
Birgitta Haukdal, Helga Braga
Jónsdóttir, Magnús Jónsson, Ágústa
Eva Erlendsdóttir, Atli Óskar
Fjalarsson, Bára Lind Þórarins-
dóttir og Fannar Guðni Guðmunds-
son en þau tvö síðastnefndu eru
nemendur við Álftanesskóla.
– Höfðu allir reynt fyrir sér í leik-
listinni áður en að tökum kom?
„Nei, Matti er t.d. ekki með mikla
reynslu en kemur inn í þetta eins og
hann sé hokinn af reynslu. Og Ólöf
Jara er í raun ekki með mikla
reynslu heldur en flestir aðrir höfðu
einhverja,“ svarar Sævar. Ólöf hafi
staðið sig virkilega vel, líkt og allur
leikarahópurinn. „Tökuferlið gekk
mjög vel þótt við værum að skjóta
tólf þætti og eina mynd á 24 dög-
um,“ segir Sævar. Keyrslan hafi
verið mikil en ekki komið niður á
gæðum efnisins. „Við lögðum svolít-
ið upp úr t.d. tökuvélum, lýsingu,
búningum, það er mikið lagt í það og
það sést alveg á skjánum. Þetta lítur
vel út.“
12 þættir og kvikmynd á 24 dögum
Ávaxtakarfan verður frumsýnd í bíó á morgun Kvikmynd, eða bíóskemmtun, sem var tekin upp
samhliða sjónvarpsþáttum Unnið eftir tveimur handritum Kikku, höfundar leikritsins
Ávextir Mæja jarðarber (Ólöf Jara) og aðrir ávextir í einu af atriðum Ávaxtakörfunnar sem verður frumsýnd í dag.
Sævar
Guðmundsson
Færeyska tónlistarkonan Eivör
Pálsdóttir mun í kvöld kl. 20 halda
útgáfutónleika í Silfurbergi í
Hörpu vegna nýútkominnar breið-
skífu sinnar, Room. Eivör hefur
verið á tónleikaferð um Ísland og
heldur héðan til Danmerkur. Á tón-
leikunum í kvöld verða Eivöru til
halds og trausts þeir Mikael Blak
sem leikur á bassa, Jeppe Gram
trommuleikari og hljómborðsleik-
ararnir Magnus Johannesen og
Tróndur Bogason.
Eivör sótti innblástur víða við
laga- og textasmíðar á Room, m.a.
til æsku sinnar og fráfall ástvinar
en faðir hennar féll frá fyrir rúmu
ári. Eivör sá sjálf um framleiðslu
plötunnar ásamt eiginmanni sínum,
Tróndi Bogasyni.
Eivör heldur útgáfutónleika í Hörpu
Rými Eivör Pálsdóttir flytur lög af
Room í Silfurbergi í kvöld.
56.000 MANNS!
ÍSL TEXTI
THE EXPENDABLES 2 Sýnd kl. 6 - 8 - 10:10 (Power)
THE WATCH Sýnd kl. 10:20
PARANORMAN3D Sýnd kl. 4
INTOUCHABLES Sýnd kl. 3:50 - 5:50 - 8 - 10:20
ÁVAXTAKARFAN Sýnd kl. 4 - 6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
2 VIKUR Á TOPPNUM Í USA
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
ÍSL TAL
12
16
7
12
L
ÍSL TAL
MEÐÍSLENSKUTALI
TRYGGÐU
ÞÉR MIÐA
Á
3D
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
ÁVAXTAKARFAN KL. 3.50 - 6 L
THE EXPENDABLES 2 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
THE EXPENDABLES 2 LÚXUS KL. 5.40 - 8 - 10.2016
THE WATCH KL. 8 - 10.20 12
PARANORMAN 3D KL. 5.45 / 2D KL. 3.30 7
BRAVE: HIN HUGRAKKA 2D KL. 3.30 / 3D KL. 5.45 L
TOTAL RECALL KL. 8 - 10.35 12
ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 L
TED KL. 8 12 SPIDER-MAN 3D KL. 10.20 10
ÁVAXTAKARFAN KL. 6 L
THE EXPENDABLES 2 KL. 6 - 8 - 10 16
THE WATCH KL. 8 - 10 12
ÁVAXTAKARFAN KL. 6 L
THE EXPENDABLES 2 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
THE WATCH KL. 8 - 10.20 12
TO ROME WITH LOVE KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
INTOUCHABLES KL. 5.30 - 8 - 10.30 L