Morgunblaðið - 31.08.2012, Qupperneq 52
FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 244. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Jarðskjálfti upp á 4,6 stig
2. Óþægilega lík tengdamóðurinni
3. Ákærður í Sigrid-málinu
4. Grunaður um rangan framburð
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Þungarokkssveitin DIMMA heldur
tónleika á Bar 11 kl. 23 í kvöld og er
aðgangur að þeim ókeypis. Hljóm-
sveitin er að leggja lokahönd á þriðju
breiðskífu sína sem gefin verður út í
haust.
Beljandi þungarokk
á Bar 11 í kvöld
Síðustu tón-
leikar tónleika-
raðar djass-
klúbbsins Múlans
á Jazzhátíð
Reykjavíkur verða
haldnir í Norræna
húsinu í kvöld kl.
19.30. Á þeim
leika hljómsveit-
irnar Splashgirl og K-tríó. Splashgirl
er norsk hljómsveit og hefur hún sent
frá sér þrjár breiðskífur. K-tríó hefur
leikið reglulega á hátíðinni.
Seinustu tónleikar
Múlans á Jazzhátíð
Kjerringen og Rúsí Sæng er titill
samsýningar myndlistarmannanna
Helga Þórssonar og
Steingríms Ey-
fjörð sem opnuð
verður í kvöld kl.
19 í sýningarrým-
inu Tidens Krav í
Ósló. Sýningar-
stjórinn er einnig
íslenskur, Birta Guð-
jónsdóttir. Sýn-
ingin stendur til
16. september.
Kjerringen og Rúsí
Sæng opnuð í Ósló
Á laugardag Suðvestan 5-13 m/s. Skýjað og rigning eða súld með
köflum sunnan- og vestantil, en annars bjart með köflum. Hiti 8 til
16 stig, svalast við norðvesturströndina en hlýjast á A-landi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 5-13 og rigning en úrkomuminna
norðan- og austanlands. Snýst í suðvestan 8-15 með skúrum
seinnipartinn, fyrst SV-til. Hvessir NA-til í kvöld. Hiti 7 til 14 stig.
VEÐUR
FH-ingar stigu stórt skref
í átt að Íslandsmeist-
aratitlinum í Pepsi-deild
karla í knattspyrnu eftir
2:0 sigur gegn ÍBV í
Kaplakrika í gærkvöld.
Þegar fimm umferðir eru
eftir af mótinu hefur
Hafnarfjarðarliðið
sjö stiga forskot
á KR-inga sem
eru ríkjandi Ís-
landsmeist-
arar. »3
FH færðist skrefi
nær titlinum
Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari í
handknattleik, telur líklegt að Ólafur
Stefánsson hafi spilað sinn síðasta
landsleik. Ólafur, sem er 39
ára gamall, er án félags eft-
ir að danska störnuliðið
AG Köbenhavn fór á haus-
inn í síðasta mánuði. »1
Aron reiknar ekki með
Ólafi í landsliðinu
Íslenska karlalandsliðið í körfuknatt-
leik var tekið í kennslustund af frá-
bæru liði Serba þegar liðin áttust við
í undankeppni EM í Serbíu í gær. Ís-
lenska liðið sá ekki til sólar og þegar
yfir lauk var munurinn 56 stig. Sló-
vakar verða næstu mótherjar Íslend-
inga en liðin eigast við í Höllinni á
sunnudaginn. »4
Körfuboltalandsliðið
tekið í kennslustund
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Ég hugsa ekki um aldurinn,“ segir
Skagamaðurinn Dean Martin, sem
er fertugur í dag. „Aðalatriðið er að
hafa gaman af lífinu, en ég held að
fólk spái allt of mikið í aldurinn. Öllu
skiptir að vera í nógu góðu formi og
þá er aldurinn afstæður.“
Ísland tilviljun
Fótboltamaðurinn Dean Martin,
eða Dínó eins og hann er kallaður,
byrjaði að hrella íslenska mark-
menn í efstu deild 1995 og hann er
enn við sama heygarðshornið 17 ár-
um síðar, skoraði meðal annars í síð-
ustu umferð fyrir ÍA í Pepsi-
deildinni. „Ég er ánægður með
þetta en tek bara einn leik fyrir í
einu og næst er það ÍBV á sunnu-
daginn.“
1995 var Dínó laus allra mála á
Englandi. „Það var hringt í mig og
ég spurður hvort ég vildi fara til Ís-
lands og spila. Ég svaraði já, já, og
fór til Akureyrar nokkrum dögum
seinna,“ rifjar hann upp. Eftir að
hafa spilað með KA í tvö sumur lék
hann með liði í Hong Kong í tvö ár.
Hann gekk svo til liðs við ÍA 1998 og
hefur skipst á að leika með þeim
gulklæddu á Skaganum og á Akur-
eyri auk þess sem hann hefur verið
spilandi þjálfari á báðum stöðum og
er nú aðstoðarþjálfari ÍA. „Það er
gaman að vera á Íslandi og ég
skemmti mér rosalega vel í fótbolt-
anum hérna,“ segir hann.
Nóg að gera
Dínó er önnum kafinn maður og
tekur daginn snemma, byrjar að
þjálfa einstaklinga klukkan sex á
morgnana og afrekshópa ÍA hálf-
tíma síðar, annars vegar grunn-
skólakrakka og hins vegar fram-
haldsskólakrakka. „Ég get ekki
kvartað, hef nóg að gera. Dagarnir
eru langir en skemmtilegir,“ segir
Dínó sem er með hæstu þjálfara-
gráðu sem hægt er að taka á Íslandi,
a-gráðu Knattspyrnusambands Evr-
ópu, er þjálfari og einkaþjálfari og
byrjaði í íþróttafræðinámi við Há-
skólann í Reykjavík fyrir nokkrum
dögum. „Ég vil reyna að læra eins
mikið og ég get og stefni að því að
vera þjálfari í framtíðinni.“
Hann hefur svo sem nóg að gera
sem þjálfari og segir að Akranes
henti sér vel. „Bærinn snýst um fót-
bolta, klúbburinn er flottur, er að
gera vel og stefnir í rétta átt.“ Hann
segir að hugarfarið sé líka rétt. „All-
ir vilja alltaf sigra, gera vel og ná ár-
angri og það er mér að skapi. Ég vil
alltaf vinna þegar ég hleyp inn á
völlinn.“
Eitt orð á dag
Dínó talar glettilega góða ís-
lensku. „Það hefur tekið mig sautján
ár að læra málið en ég er ekki full-
numa enn, læri eitt og eitt orð á
hverjum degi.“
Aldurinn afstæður í boltanum
Skagamaðurinn Dean „Dínó“ Martin
fertugur á fullu í efstu deild fótboltans
Ljósmynd/Einar Logi Einarsson
Samstarfsmenn á Skaganum Þórður Þórðarson þjálfari, Dean Martin aðstoðarþjálfari og Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA.
Dean Martin er elsti leikmað-
urinn sem hefur tekið þátt í
Pepsi-deildinni í sumar og
sennilega elsti útileikmaðurinn
sem leikið hefur í efstu deild í
fótbolta hérlendis.
Kristján Finnbogason spilaði
með Fylki í bikarnum og var
hetja liðsins á móti FH þegar
hann varði þrjú víti í Kaplakrika
fyrr í sumar. Hann er 41 árs.
Birkir Kristinsson var 42 ára,
þegar hann varði mark ÍBV á
móti KR 2006, en hann hætti
ári fyrr vegna meiðsla.
Sir Stanley Matthews lék
með enska landsliðinu þegar
hann var 42 ára og var atvinnu-
maður til fimmtugs.
Elstur úti á
vellinum
EKKI BARA „KJÚKLINGAR“