Morgunblaðið - 15.09.2012, Síða 1

Morgunblaðið - 15.09.2012, Síða 1
L A U G A R D A G U R 1 5. S E P T E M B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  216. tölublað  100. árgangur  MIKILVÆGUR LEIKUR HJÁ LANDSLIÐINU Á SKÚTU UMHVERFIS JÖRÐINA SJÓNHVERFING, TÍMI OG ÁDEILA Í HAFNARHÚSINU SUNNUDAGSMOGGINN ÞRJÁR SÝNINGAR 48TVÆR LEIÐIR ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Júlíus Laun Gríðarleg óánægja ríkir meðal heil- brigðisstéttanna vegna launamála.  Nýstofnaður aðgerðahópur hjúkrunarfræðinga á Landspít- alanum hyggst næstkomandi þriðju- dag afhenda samninganefnd hjúkr- unarfræðinga kröfulista, áður en nefndin gengur til fundar við samn- inganefnd Landspítala sama dag, þar sem ræða á nýjan stofn- anasamning. Hópurinn hvetur hjúkrunarfræðinga til að sýna sam- stöðu og vera viðstaddir afhend- inguna. Gríðarleg óánægja ríkir meðal heilbrigðisstéttanna með þá ákvörð- un velferðarráðherra að hækka laun forstjóra Landspítalans, Björns Zoëga, sem segist skilja launaáhyggjur starfsmanna spít- alans. Formaður Læknafélags Reykja- víkur veltir því fyrir sér hvernig ráðherrann og forstjórinn hyggist bregðast við því ástandi sem nú sé upp komið. „Hvað ætla þeir að bjóða hinum almenna starfsmanni LSH?“ spyr Steinn Jónsson. »4 og 35 Hjúkrunarfræðingar hvetja til samstöðu og afhenda kröfulista Eimskip » Markaðsvirði Eimskips er 40,7 milljarðar króna ef horft er til kaupa Lífeyrissjóðs versl- unarmanna á hlut í sumar. » Fyrirtækið verður skráð á markað í haust. Mögulega verður verðið í hlutabréfa- útboðinu hærra. Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Sex lykilstjórnendur Eimskips fengu í ágúst kauprétt að 0,9% hlut í fyrirtækinu. Fyrir áttu þeir kauprétt að 3,5% og því eiga þeir rétt á að kaupa 4,4% hlut. Markaðsvirði kaup- réttarins er 1,9 milljarðar króna, miðað við viðskipti sem áttu sér stað í sumar. Þeir eiga rétt á að kaupa bréfin fyrir lægri fjárhæð, sam- kvæmt samningnum. Um það bil helmingurinn af kaup- réttunum var gerður við Gylfa Sig- fússon forstjóra. Möguleiki er á að stjórnendurnir fái úthlutaðan frek- ari kauprétt á næsta ári. Kaupgengið á kaupréttinum sem veittur var á liðnum mánuðum mun miðast við útboðsgengið þegar Eim- skip verður skráð á hlutabréfamark- að í haust, samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Lykilstjórnendurnir fengu einnig kauprétti árin 2010 og 2011 en mega ekki nýta réttinn fyrr en eftir þrjú ár. Þetta þýðir að það styttist í að þeir megi leysa út kaupréttinn sem gerður var árið 2010. Markaðsvirði þess hlutar er 763 milljónir króna en þeim býðst að kaupa bréfin á fimm hundruð milljónir. Hagnaðurinn næmi því 264 milljónum króna. Bragi Ragnarsson, stjórnarfor- maður Eimskips, segir í samtali við Morgunblaðið að með þessu sé verið að tvinna saman hagsmuni stjórn- enda og hluthafa. Hann áréttar að þeir verði að borga fyrir hlutabréfin. MAukið við kauprétt »24 1,9 milljarða kaupréttur  Sex lykilstjórnendur Eimskips fengu aukinn kauprétt í ágúst  Eiga rétt á samtals 4,4% hlut  Gætu innleyst hundraða milljóna hagnað á næsta ári Morgunblaðið/Golli Baltasar Víkingamynd er í farvegi og mynd um slys á Everest-fjalli. „Mér brá svolítið þegar ég áttaði mig á þessu, að nú væri þetta ekki lengur spurning um hvort mér tæk- ist að ná þangað, heldur væri ég kominn á staðinn, og nú þyrfti ég bara að standa undir því.“ Svona lýsir Baltasar Kormákur í viðtali í Sunnudagsmogganum í dag augnablikinu þegar það rann upp fyrir honum að hann væri við stjórn- völ stórmyndar sem bæði skartaði tveimur skærustu stjörnum Holly- wood og væri framleidd af tveimur stærstu kvikmyndafyrirtækjunum í bransanum. Um er að ræða glæpamyndina 2 Guns, með Denzel Washington og Mark Wahlberg í aðalhlutverkum, en dreifingarrétturinn á myndinni utan Bandaríkjanna, Kanada, Bret- lands og Ástralíu seldist á rúmar fjörutíu milljónir dollara á kvik- myndahátíðinni í Berlín í vetur. Eftirvinnsla myndarinnar er næst á dagskrá leikstjórans, sem nýlega frumsýndi sjóslysamyndina Djúpið á kvikmyndahátíðinni í Toronto við góðar undirtektir, en hún var m.a. lofuð fyrir sláandi raunsæisleg at- riði á sjó. „Það var virkilega erfitt að taka úti á hafi,“ segir Baltasar. „Ég at- hugaði með tanka, því myndir eru yfirleitt teknar í þeim, en þá verða öldurnar svo tilgerðarlegar. Ég held að Íslendingar myndu ekki falla fyr- ir slíku bulli hér í Norður-Atlants- hafi,“ segir hann. Baltasar er með nokkur verkefni á prjónunum í samstarfi við Wahlberg, víkingamynd er í farvegi, segir hann, og þá á hann í viðræðum við Working Title um að gera risamynd um stórslys á Everest-fjalli, sem til stendur að taka á Vatnajökli. Rís úr djúpinu og stefnir á tindinn  Risamynd um stórslys á Everest í farvatninu  Starfar áfram með Wahlberg Hápunktur söfnunarátaksins Á allra vörum fór fram í beinni útsendingu á RÚV í gærkvöldi en alls hafa safnast um 100 milljónir í átakinu og verður þeim varið til að koma á fót stuðnings- miðstöð fyrir langveik börn með ólæknandi sjúkdóma. Féð mun duga til að reka miðstöðina í fjögur ár, að sögn forsvarskvenna átaksins, en að þeim tíma loknum mun ríkið taka við rekstr- inum. Söfnunarsímarnir verða áfram opnir. Dugir til að reka miðstöðina í fjögur ár Morgunblaðið/Kristinn  Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að spara 250 milljónir með nýju greiðsluþátttökukerfi vegna lyfjakostnaðar. Yfirlýstur til- gangur með greiðsluþátttökukerf- inu var þó ekki að spara fjármuni. Aðstoðarmaður velferðarráðherra segir orðalag í frumvarpinu vera ónákvæmt. Sparnaðurinn upp á 250 milljónir eigi við um almennan lyfjakostnað og komi greiðslu- þátttökukerfinu ekkert við. »18 Ónákvæmt orðalag í fjárlagafrumvarpinu Grænlenska landstjórnin endurnýjaði ekki þjónustu- samning við Flugfélag Ís- lands um flug til Austur-Græn- lands. Félagið hefur sinnt þessu flugi í tíu ár. Þess í stað var samið við Air Greenland sem nú er með alla þjón- ustusamninga í landinu. Ákvörð- unin hefur vakið óánægju á Austur- Grænlandi og lýsa heimamenn áhyggjum vegna framtíðar ferða- þjónustu á svæðinu. »2 Breyting á flugi til Austur-Grænlands Grænlandsflug Ekki lengur samningur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.