Morgunblaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 50
Nýtt, nýtt, nýtt, alltaf þarfmaður að heyra eitthvaðnýtt. Og ekki endilega eitt-
hvað nýmóðins, nýtt efni frá göml-
um jálkum dugar líka vel til að
slökkva þennan þorsta. Sló því inn
„best americana 2012“ í google,
langaði til að sjá hvað væri að fara
framhjá mér í þessum regnhlífar-
geira sem tekur yfir jafn ólíkar
stefnur og tiltölulega venjulegt
kántrí, tilraunakennda appal-
asíutónlist og vírað tex-mex skotið
blúsrokk. Svo eitthvað sé nefnt.
Datt inn á síðu sem kallast The Bo-
ot, risavaxin kántrísíða sem er rekin
undir hatti AOL-risans.
Þar var listi yfir tíu bestu „am-
eríkana“ plötur ársins hingað til og
lesturinn nokkuð forvitnilegur. Í
fyrsta sæti situr reyndar Marty
gamli Stuart og ég var ekki alveg í
því stuðinu það augnablikið þannig
að ég kannaði óþekktari nöfn.
Tvennt vakti sérstaka athygli mína.
Frábær sólóplata Söru Watkins,
sem eitt sinn tilheyrði hinni fram-
sæknu ameríkana-sveit Nickel
Creek og svo sveitin sem hér er til
umfjöllunar, Punch Brothers, sem
koma frá Brooklyn af öllum stöðum.
Blöndun
„Að blanda saman „bluegrass“,
klassískri tónlist og samtíma rokki
er ekki heiglum hent,“ stóð um
plötu Punch Brothers í The Boot og
maður staldraði ósjálfrátt við. „Þeg-
ar hljómsveit lætur það líta út fyrir
að vera svona áreynslulaust og læt-
ur það hljóma eins spennandi og
raunin er, er ekki annað hægt en að
dást að meistaralegri nálgun henn-
ar.“ Þetta var selt og ég varð mér
óðar út um þennan nýjasta ópus
sveitarinnar, Who‘s Feeling Young
Now, sem er þriðja hljóðversplata
hennar.
Sveitin er leidd af Chris Thile
(sem var áður meðlimur í nefndri
Nickel Creek), en kauði þótti mikið
tónlistarundrabarn í æsku.
Eftir að hafa tekið út sína „þjálf-
un“ ef svo mætti segja í gegnum
Nickel Creek stýrir hann nú eigin
vagni en Punch Brothers var sett
saman árið 2006.
Blágresistónlistin sem á hug
Thile allan er þróuð út frá appal-
asíutónlistinni og á rætur í alþýðu-
tónlist Englands, Írlands og Skot-
lands. Bill Monroe er líkast til
þekktasti fulltrúi þessa forms og
merkilegt til þess að hugsa að hann
var á miklum stalli hjá frumkvöðlum
framsækinnar rokktónlistar í
Bandaríkjunum á sjöunda áratugn-
um en menn eins og Jerry Garcia úr
Grateful Dead og Chris Hillman úr
Byrds áttu þann draum heitastan að
fá að spila með Monroe.
Utangarðs
Samsláttur hins villta og form-
fasta lá því í loftinu á þeim tíma og
hafa ýmis vensl verið þar á milli
undanfarna áratugi, í formi stefna
eins og „new grass“ og framsæk-
innar blágresistónlistar. Thile og fé-
lagar fara reyndar það langt út á
brúnina að sumir tala um ut-
angarðs-„bluegrass“ (avant-garde
bluegrass).
Skemmst frá að segja þá gengur
þessi görótta blanda Punch Broth-
ers fullkomlega upp. Eyrun haldast
sperrt við hverja einustu taktbreyt-
ingu og hljómfall enda er verið að
koma manni á óvart í sífellu. Hvern-
ig fór þessi blágresissprettur allt í
einu yfir í höfugt, nútímatónlist-
arlegt flæði? Hvernig ná spilararnir
að læða surgandi neðanjarðarrokki
undir fumlaust mandólínplokk? Og
svo er það ábreiðan á titillag hins
magnaða tímamótaverks Radio-
head, Kid A. Þetta er tilkomumikil
plata hjá Punch Brothers, sann-
arlega, og sönnun á því að stundum
er gamalt nýtt.
Eldgamalt en
nýmóðins um leið
Endurreisnarmenn? Chris Thile og félagar í Punch Brothers.
Hljómsveitin Punch Brothers vinnur
með blágresistónlist Stefnir glæsi-
lega saman gömlum amerískum arfi,
nútímatónlist og neðanjarðarrokki
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012
Tónlistarmað-
urinn Borko mun
frumsýna nýtt
myndband við
lag sitt „Born to
be Free“ í Bíó
Paradís í dag kl.
16. Myndbandið
gerði myndlist-
armaðurinn Ingi-
björg Birgis-
dóttir en hún
hefur m.a. unnið myndbönd og
plötuumslög fyrir Sigur Rós. Að
lokinni sýningu mun Borko leika
nokkur lög af væntanlegri breið-
skífu sinni, ásamt hljómsveit. Einn-
ig verða leikin lög af plötu hans
Celebrating Life sem kom út 2008.
Borko sýnir mynd-
band og spilar
Borko
Njála í nýju ljósi er yfirskrift dag-
skrár sem haldin verður í Sögusetr-
inu á Hvolsvelli á morgun kl. 17.
Þar munu þeir Guðni Ágústsson
fyrrverandi ráðherra og Óttar Guð-
mundsson geðlæknir spjalla um
Njálu og túlkun hennar, en sá síð-
arnefndi gaf nýverið út bókina
Hetjur og hugarvíl. Aðgangseyrir
1.500 krónur.
Morgunblaðið/Ómar
Túlkun Óttar Guðmundsson.
Njála í nýju ljósi
RESIDENT EVIL: RETRIBUTION 2D Sýnd kl. 8 - 10
THE BOURNE LEGACY Sýnd kl. 7 - 10
THE EXPENDABLES 2 Sýnd kl. 5:50- 10:20
ÁVAXTAKARFAN Sýnd kl. 2 - 4
INTOUCHABLES Sýnd kl. 4 - 5:50 - 8
PARANORMAN 3D Sýnd kl. 2 - 4
BRAVE: HIN HUGRAKKA Sýnd kl. 2
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÍSL TEXTI 60.000 MANNS!
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
7
12
L
L
16
16
16
HÖRKU SPENNUMYND
60
ÞÚSUND
GESTIR
TRYGGÐU Þ
ÉR MIÐA Á
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%*AÐEINS LAUGARDAGGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
HEILNÆMT FJÖR
FYRIR ÞAU YNGSTU
-H.V.A., FBL
RESIDENT EVIL: RETRIBUTION 2D KL. 5.50 -8 - 10.10 16
RESIDENT EVIL: RETRIBUTION 3D KL. 10.20 ÓTEXTUÐ 16
THE BOURNE LEGACY KL. 8 - 10.45 16
THE BOURNE LEGACY LÚXUS KL. 10.20 16
ÁVAXTAKARFAN KL. 1 (TILBOÐ) - 3 - 6 L
THE EXPENDABLES 2 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
THE EXPEN... 2 LÚXUS KL. 1 - 3.20 - 5.40 - 8 16
THE WATCH KL. 5.40 - 8 12
PARANORMAN 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 3.30 7
ÍSÖLD 4 2D / 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 3.30 L
RESIDENT EVIL: RETRIBUTION 3D KL. 8 - 10.10 16
THE BOURNE LEGACY KL. 6 - 9 16
ÁVAXTAKARFAN KL. 4 (TILB.) - 6 L
THE EXPENDABLES 2 KL. 10.30 16
TO ROME WITH LOVE KL. 3 (TILB.) - 5.30* - 8 L
INTOUCHABLES KL. 3 (TILB.) - 5.30 - 8 - 10.30 L
PARANORMAN 3D KL. 3 (TILB.) - 7 L
RESIDENT EVIL: RETRIBUTION 2D KL. 6 - 8 - 10 16
THE BOURNE LEGACY KL. 10 16
THE EXPENDABLES 2 KL. 8 12
ÁVAXTAKARFAN KL. 4 (TILB.)- 6 / ÍSÖLD 4 3D KL. 4(TILB.)
Er ESB-umsóknin dauð?
Fimmtudaginn 20. september klukkan 12:00-13:00 heldur Heimssýn
opinn hádegisfund um stöðu aðildarumsóknar Íslands að ESB á Thor-
valdsen Austurstræti 8-10. Frummælendur verða Styrmir Gunnarsson,
fyrrverandi ritsjóri, og Mörður Árnason, alþingismaður. Opnað verður
á spurningar úr sal eftir erindi frummælenda. Fundarstjóri verður
Ásmundur Einar Daðason, formaður Heimssýnar og alþingismaður.
Fundurinn er öllum opinn
Stjórn Heimssýnar