Morgunblaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 46
46 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012
TREFJARÍKAR PRÓTEINSTANGIR
FYRIR KREFJANDI AÐSTÆÐUR
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt verkefnin hlaðist upp máttu
ekki vanrækja þig. Dagurinn í dag hentar
sérstaklega vel til að hefjast handa við nýtt
verkefni.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er margt að gerast í kringum þig
og þú mátt hafa þig alla/n við að straum-
urinn hrífi þig ekki með sér. Þú situr með
sveittan skallann í vinnunni. Hvíldu þig um
helgar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Varastu að bregðast um of við ut-
anaðkomandi áreiti. Er það uppskrift að æv-
intýri eða ógæfu að stökkva út í djúpu laug-
ina? Gakktu hægt um gleðinnar dyr.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er engin ástæða til þess að láta
öll tilboð heimsins fara framhjá sér. Svaraðu
bréfum og skilaboðum strax.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Yfirmenn þínir taka mark á því sem þú
hefur fram að færa í dag. Ef þú nærir lista-
manninn í þér bætir það sambönd þín við
aðra og ljær verkum þínum dýpt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft áreiðanlega að kyngja ýmsu
til þess að halda friðinn á vinnustaðnum.
Kannski sérðu ekki ávinning áhættunnar
þegar í stað.
23. sept. - 22. okt.
Vog Dagurinn í dag ber með sér óreiðu sem
aðeins fastmótuð áætlun getur unnið bug á.
Ekki fara á taugum, veldu að halda ró þinni,
sama hvað gengur á.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Yfirboðari veitir þér þá við-
urkenningu sem þú hefur verið að bíða eftir
til þess að setja tiltekið verkefni á laggirnar.
Farðu varlega í það að biðja nána vini eða
fjölskyldu um liðsinni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefðir gott af því að breyta
til á einhvern hátt, hvort sem er heima fyrir
eða í vinnunni. Láttu slag standa því hugs-
anlegt er að þú getir hagnast á aðgerðum
þínum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Velgengni þín að undanförnu
veldur þér gleði en einhverjir öfundast yfir
henni. Notaðu tækifærið til að koma ár þinni
sem best fyrir borð. Segðu eitthvað!
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nánustu sambönd þurfa að þola
ýmsar raunir um þessar mundir. Vinur er
kannski tilfinningasamur, en aldrei óviðeig-
andi eða grófur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhver kemur þér til aðstoðar án
þess þú hafir óskað eftir því. Um leið og þú
slakar á geturðu tekið réttar ákvarðanir.
Karlinn á Laugaveginum varmeð allan hugann við þing-
setninguna, þegar ég hitti hann.
Honum hafði verið meinað að fara á
þingpallana en fylgdist með í sjón-
varpinu. Síðan rifjaði hann upp at-
burðarásina eins og hann sæi hana
ljóslifandi fyrir sér eins og þessi
limra ber með sér:
Laus við ósvífni, leiðann og amann
segir Ólafur Ragnar: „en gaman!“
Úr stól sínum þá
starir hann á
Steingrímur svartur í framan.
Fyrir viku rifjaði ég upp stöku
eftir Einar Beinteinsson frá Graf-
ardal og eins og ég átti von á bárust
mér athugasemdir, m.a. frá Gylfa
Pálssyni: „Að gefnu tilefni: Í mínu
minni hefur geymst:
Rigningin til foldar fellur
fyrir utan gluggann minn.
Það er eins og milljón mellur
mígi í sama hlandkoppinn.
Í mínum huga fellur snjór í flyks-
um/flygsum, snjókornin loða saman,
en rigning í dropum – jafnvel þótt
steypiregn komi ofan, hellirigni.“
Við þetta er í rauninni engu að
bæta. Ég hygg að flestir fari með
vísuna eins og Gylfi, lítið eitt öðru-
vísi en höfundurinn orti hana.
Eftir Einar Beinteinsson hafa
komið út tvær ljóðabækur, Um dæg-
ur löng 1954 og Stuðlamál 1980,
heildarsafn ljóða hans. Einar naut
ekki skólamenntunar nema ein-
hverrar fræðslu fyrir fermingu, en
hann var sílesandi og síyrkjandi eins
og systkin hans. Hann var eftir-
sóttur til vinnu hvar sem hann kom
sökum dugnaðar og góðrar við-
kynningar, en missti heilsuna 25 ára
gamall. Um hann segir Jón Magn-
ússon í formála að Stuðlamálum að
Einar hafi verið hagur á fleira en
vísnagerð og smíðar, því að eftir að
hann hætti að geta unnið erfiðis-
vinnu gjörði hann talsvert af því að
mála og náði þar undraverðum
árangri. Það er þung raun að missa
heilsuna í blóma lífsins en þótt lífið
sé erfitt heldur maður í það dauða-
haldi:
Eðli mitt ég ekki skil,
ótal þrautir beygja
mér finnst vont að vera til
en vil þó ekki deyja
Og áfram:
Ýms þó meinin hafi hrjáð
hæfir varla að trega,
heldur reyna að drýgja dáð
og drepast karlmannlega.
Og þessi staka sver sig í ætt við
Hávamál:
Þó að lánið verði valt
veraldar í slarki
við skulum glaðir gegnum allt
ganga að hinsta marki.
Halldór Blöndal
halldor@simnet.is
Vísnahorn
Laus við ósvífni
eftir Jim Unger
„ÞEGAR PABBI VAR SEX ÁRA VAR
HONUM RÆNT AF HAUSAVEIÐURUM.
HANN SÁST ALDREI AFTUR.“
HermannÍ klípu eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
...að bjóða honum á
kappakstur á afmælinu
hans.
ELÍN, ÉG ER MEÐ HUGMYND AÐ FULL-
KOMNU KVÖLDI FYRIR MIG OG ÞIG.
ÞARF
HVAÐ?
JÁ, EIGINLEGA MEINTI ÉG NÚ AÐ
VIÐ MYNDUM EYÐA ÞVÍ SAMAN.
OG ALLT Í EINU
ER KVÖLDIÐ EKKI
FULLKOMIÐ.
Í SÍÐASTA
SINN ...
... EF VIÐ
SIGRUM Í DAG
GETURÐU FARIÐ
AÐ VERSLA ...
... EN EF VIÐ
TÖPUM ...
... GETURÐU
ÞAÐ EKKI!
ÓVISSUEYÐIR
50 KR.
ÞÚ VERÐUR
REKINN!
Björgunarsveitafólk okkar Íslend-inga er þjóðarhetjur okkar og
stolt. Vel gallaðar hetjurnar mæta
galvaskar í hvaða aðstæður sem er í
öllum veðrum, skepnum og mann-
fólki til halds og trausts.
Óvænt fannfergi í vikunni minnti
okkur Íslendinga rækilega á að við
búum á norðurhveli jarðar og þurf-
um að vera sjálfum okkur nóg um
mat, drykk og raforku.
x x x
Sumarið var með því betra semhefur verið síðustu ár og því
kom ísköld snjóbreiðan sólbrúnum
og freknóttum Íslendingum að óvör-
um. Sólardagarnir voru óvenju-
margir á kostnað rigningardaga,
malbikstúttum til ómældrar gleði.
Heita sumarið var þó ekki algott því
margir bændur glímdu við mikinn
þurrk, einkum og sér í lagi fyrir
norðan. Heimtur af túnum voru á
mörgum bæjum mun minni en síð-
ustu sumur, því vatnið var ósjaldan
af skornum skammti. Bændur dóu
þó ekki ráðalausir og reyndu eftir
fremsta megni að vökva til að fá al-
mennilega grassprettu.
x x x
Þjáningarsvipurinn sem sást ááhyggjufullum bændum í sjón-
varpi og viðtölum er raunverulegur.
Ekki nóg með fyrrgreinda þurrka
heldur standa þeir frammi fyrir því
að þurfa að gefa skepnum sínum í
byrjun september. Töluvert fyrr en
þeir höfðu nokkurn tíma reiknað
með. Það er að segja þeim skepnum
sem eru á lífi. Ótal kindur hafa drep-
ist, ýmist þær sem átti að slátra
seinna eða líflömbin.
x x x
Rafmagn er að komast á og bænd-ur geta orðið mjólkað kýr sínar,
smölun búfénaðar af fjalli gengur
eftir áætlun. Óveðrir minnir okkur
mannfólkið á hversu berskjölduð við
erum frammi fyrir aðstæðum sem
við getum ekki stjórnað. Samhug-
urinn og eljan sem býr í björgunar-
sveitafólkinu er einlæg og sönn því
það leggur í leiðangurinn sem sjálf-
boðaliðar! Að sjálfsögðu megum við
þakka fyrir að manntjón varð ekki
og ferðamenn sem hættu sér inn á
hálendið komust niður heilu og
höldnu. víkverji@mbl.is
Víkverji
Ég vil þakka þér, Drottinn, Guð minn,
af öllu hjarta og tigna nafn þitt að ei-
lífu. (Sálm. 86:12)