Morgunblaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012
Gjafir sem gleðja
LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660
Hálsmen 7.900 kr.
Eyrnalokkar
8.300 kr.
www.samgonguvika.is - Samgönguvika á facebook
Það vakti óneit-
anlega athygli þegar
það fréttist að velferð-
arráðherra hefði tekið
á sig rögg og hækkað
laun forstjóra Land-
spítalans um 530.000
kr á einu bretti. Allir
vita að forstjórinn hef-
ur staðið sig afar vel
við að stjórna LSH á
erfiðum tímum að-
halds og niðurskurðar.
Hinn almenni starfsmaður hefur
hins vegar einnig staðið sig afar vel
við það að halda uppi boðlegri þjón-
ustu við sjúklinga þrátt fyrir nið-
urskurð, aukið vinnuálag, erfiðari
starfsskilyrði og skerðingu tekna.
Viðbrögð margra voru því á þann
veg að þetta hlyti að boða gott og að
framundan væru umtalsverðar
launahækkanir ekki aðeins á LSH
heldur í heilbrigðiskerfinu almennt.
En það var ekki aðeins á LSH
sem þessi ráðstöfun vakti verðskuld-
aða athygli því að víða í ríkisstofn-
unum hafa menn verið í sömu spor-
um hvað snertir aðhald og
niðurskurð svo ekki sé talað um þá
sem verr eru settir í þjóðfélaginu.
Það hefur þó víða ríkt þegjandi sátt
um það að þetta væri nauðsynlegt
fyrir land og þjóð meðan verið væri
að koma efnahagsmálum á réttan
kjöl. Þegar spurt var hvort ákvörðun
launa forstöðumanna ríkisstofnana
væri ekki verkefni kjararáðs var það
upplýst að launahækkunin væri fyrir
læknisstörf á spítalanum sem for-
stjórinn vinnur samhliða því að
stjórna þessu stærsta fyrirtæki
landsins.
Í umræðum um málið hefur verið
upplýst að forstjórinn framkvæmir
aðgerðir á spítalanum hluta úr degi
og sér sjúklinga á göngudeild einn
morgun í viku. Nú gátu menn byrjað
að reikna út hvað þetta mundi þýða
fyrir aðra starfsfélaga forstjórans
sem líka eru vel menntaðir sér-
fræðilæknar og leggja hart að sér.
Ef forstjórinn fær 530.000 kr fyrir
25-30% klínískt starf mundi það
væntanlega þýða að eðlileg laun fyr-
ir þessa vinnu væru á bilinu
1.760.000 til 2.120.000
kr á mánuði fyrir fullt
starf. Víst má telja að
þetta þætti góður um-
ræðugrundvöllur í nýj-
um kjarasamningi
Læknafélags Íslands
við ríkið.
Við nánari umhugsun
verður auðvitað ljóst að
þessar skýringar eru
fráleitar og málið er allt
hið vandræðalegasta
fyrir ráðherrann og for-
stjórann. Hvað ætla þeir að bjóða
hinum almenna starfsmanni við
LSH? Er fyrirhugað að auka fjár-
framlög til spítalans, þannig að unnt
verði að skapa viðunandi starfsskil-
yrði og aðstöðu fyrir sjúklinga? Er
fyrirhugað að stórauka fjárframlög
til tækjakaupa þannig að fagfólk geti
unnið við betri aðstæður og veitt
betri þjónustu? Er fyrirhugað að
hækka laun umtalsvert til að sporna
við landflótta og laða nýtt starfsfólk
að heilbrigðiskerfinu? Það eru nán-
ast engir læknar að koma heim frá
námi og vel menntaðir íslenskir sér-
fræðilæknar eru eftirsóttir í útlönd-
um engu síður en forstjórinn.
Ég óttast að svarið við öllum þess-
um spurningum sé neitandi. Er ekki
útlit fyrir áframhaldandi aðhald í
rekstri og jafnvel ennþá meira
vinnuálag á sömu kjörum? Fjárlög
ársins 2013 gera ekki ráð fyrir neinu
öðru. Hætt er við því að þessi ráð-
stöfun grafi undan trúverðugleika
þessara forystumanna við það að
reyna að fá meira út úr starfseminni
með minni tilkostnaði. Stefna sem
hefur bitnað bæði á sjúklingum og
starfsfólki. Aðrir ráðherrar og for-
ystumenn ríkisstjórnarinnar sem
ma. hafa heimtað að kjör lækna
verði skert enn frekar hafa þagað
þunnu hljóði varðandi þetta mál.
Nú er það áleitin spurning hvort
ráðherrann muni komast upp með
þetta og, eins og oft vill verða hér á
landi, þegja málið af sér. Það er
ótrúlegt hvað við getum verið um-
burðarlynd og fljót að gleyma. Ætli
þetta mál verði gleymt þegar kemur
að næstu kjarasamningum?
Eru bjartari tímar framundan?
Eftir Stein Jónsson
Steinn Jónsson
»Nú er það áleitin
spurning hvort ráð-
herrann muni komast
upp með þetta og eins
og oft vill verða hér á
landi þegja málið af sér.
Höfundur er formaður
Læknafélags Reykjavíkur.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is