Morgunblaðið - 15.09.2012, Page 11

Morgunblaðið - 15.09.2012, Page 11
Ævintýraskógur Ráðherra heimsótti nemendur í 7. bekk Kársnesskóla í útikennslu í sjálfum Ævintýraskóginum á Degi íslenskrar náttúru 2011. jökli árið 1362 og þær hamfarir sem því fylgdu. Surtseyjarstofa í Vest- mannaeyjum verður opin, Sagna- garður í Gunnarsholti og Nátt- úrugripasafnið í Neskaupstað svo fátt eitt sé nefnt. Í höfuðborginni verður til dæmis efnt til fræðslu- hjólaferðar fyrir alla fjölskylduna og verður það mikil ævintýraferð, því á hverjum áningarstað verða sérfræð- ingar sem segja frá fuglum, vatna- fari, gróðri, jarðhita og fleiru tengdu svæðinu sem staldrað er við.“ Kennsla í söfnun birkifræja Í Grasagarðinum verður vænn og grænn ratleikur og rathlaup fyrir alla fjölskylduna, þar sem áhersla verður á umhverfis- og náttúru- upplifun. „Á Háskólatorgi Háskóla Íslands ætlar Árni Einarsson að segja nýjustu fréttir af kúluskítnum í Mývatni og í Keldnaholti verður al- menningi boðið upp á kennslu í söfn- un og sáningu birkifræja,“ segir Bergþóra og bætir við að allir þessir viðburðir séu ókeypis. „Skólarnir taka líka þátt, til dæmis á að afhjúpa útilistaverk í Grunnskóla Grindavík- ur eftir helgi. Alla dagskrána má svo sjá á heimasíðu okkar, umhverfis- ráðuneyti.is.“ Tvenn verðlaun veitt Formleg hátíðardagskrá um- hverfis- og auðlindaráðuneytis verð- ur á Árbæjarsafni klukkan tvö og þar verða meðal annars veitt tvenn verðlaun. Annars vegar fjölmiðla- verðlaun þar sem þrír hafa verið til- nefndir, Herdís Þorvaldsdóttir leik- kona fyrir heimildarmynd sem hún gerði um landeyðingu og ofbeit bú- fjár, tímaritið Fuglar sem Fugla- vernd gefur út og Rúnar Pálmason, blaðamaður á Morgunblaðinu, fyrir umfjöllun sína í áraraðir um akstur utan vega. Hins vegar er náttúru- verndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti, en hún var eldheitur náttúruverndarsinni sem m.a. kom Gullfossi til bjargar. Einhver ein- staklingur verður heiðraður á morg- un með þessari viðurkenningu fyrir mikilsvert framlag til náttúruvernd- armála á Íslandi.“ Hress Starfsmenn erlendra sendiráða og Umhverfisstofnunar lagfærðu í fyrra göngustíg að hellinum Leiðarenda í tilefni Dags íslenskrar náttúru. Hellir Árni B. Stefánsson fór með Svandísi í ferð í Leiðarenda. Fólki verður boðið upp á kennslu í söfnun og sán- ingu birkifræja. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012 „Á morgun ætla sérfræðingar á Náttúrufræðistofnun Íslands að taka á móti gestum og sjá um náttúru- gripagreiningu,“ segir Anna Sveins- dóttir hjá Náttúrufræðistofnun Ís- lands. „Í Garðabæ verða sérfræð- ingar í steinum, steingervingum, íslenskum plöntum, sjávardýrum, fuglum og villtum spendýrum. Á setri okkar á Akureyri verða sérfræð- ingar í sveppum, íslenskum plöntum, fléttum, fuglum og steinum. Fólk getur komið með steina, steingerv- inga, skeljar, kuðunga og annað slíkt og látið greina fyrir sig. Til dæmis eru til margar tegundir og ættbálkar skelja og gaman að fá að vita hvort viðkomandi gripur er algengur eða sjaldgæfur. Fólk getur komið með þurrkaðar plöntur eða myndir af plöntum sem það hefur rekist á úti í íslenskri náttúru en þekkir ekki. Eins getur verið gaman að koma með bein sem fólk veit ekki úr hvaða dýri er. Við rennum blint í sjóinn enda er- um við að gera þetta í fyrsta sinn, en það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr þessu. Nú þegar sveppa- tínslutíminn er, þá getur verið gam- an fyrir fólk að koma með sveppi til greiningar fyrir norðan þar sem sveppafræðingur verður á staðnum. Þar verður opið hús og starfsemi Náttúrufræðistofnunar kynnt, en hér fyrir sunnan verður einvörðungu gripagreining.“ Opið verður á báðum stöðum milli klukkan 14-16 á morgun. Steinar, skeljar, jurtir o.fl. Náttúrugripa- greining Gleðidagar kallast sýning á verkum Kristjáns Jóns Guðnasonar sem nú stendur yfir í Boganum í Gerðubergi. Verkin á sýningunni kallar Kristján Jón lífsgleðimyndir, en verk af þessu tagi hóf hann að skapa vorið 2011. Myndirnar málar hann frá hjartanu með sínum eigin stíl sem hann segir undir sterkum áhrifum frá alþýðu- list. Eru verkalýðsgangan á 1. maí í fjölmenningarsamfélagi, rokkband og almenn gleði á meðal myndefnis. Kristján Jón Guðnason er fæddur í Reykjavík 6. mars 1943. Hann stund- aði nám við Myndlista- og hand- íðaskólann 1961-1964 og Statens Håndverks og kunstindustriskole í Osló árið 1965-1967. Kristján Jón vann mestan sinn starfsaldur í Steinsmiðju S. Helga- sonar ásamt því að sinna myndlist sinni. Hann hefur haldið fjölmargar sýningar á verkum sínum bæði hér heima og erlendis. Meðal sýninga fyrri ára má nefna samsýningarnar; Ungdomsbienalinn í Osló 1970 og haustsýningar F.Í.M. árin 1973 og 1974. Þá hefur hann tvívegis sýnt á Mokka síðustu ár. Sýningin stendur til 28. október og er opin virka daga kl. 11-17 og kl. 13-16 um helgar. Sýning Kristjáns Jóns Guðnasonar Rokkband og verkalýðsganga á Gleðidögum í Gerðubergi Rokkband Kristján Jón Guðnason er undir sterkum áhrifum frá alþýðulist. Myndir úr barnabókinni „Í skóg- inum stóð kofi einn“ (Steht im Wald ein kleines Haus) verða til sýnis á aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, frá og með sunnu- deginum 16. september. Við opnum sýningarinnar mun höfundur bók- arinnar, Jutta Bauer, leiða gesti í gegnum sýninguna með dansi og söng en bókin byggist á vísunni um lítið héraskinn og veiðimann, sem margir þekkja. Sýningin er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins, Mýrarinnar – alþjóðlegrar barnabókmenntahátíð- ar, og Goethe-stofnunar. Allir eru velkomnir, ekki síst börn og for- eldrar. Léttar veitingar verða í boði. Endilega… Barnabók Mynd af sýningu Bauer. …skoðið héraskinn www.baendaferdir.is Sp ör eh f. s: 570 2790 A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R Travel Agency Authorised by Icelandic Tourist Board HAUST 10 Gardavatn hefur verið einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga til margra ára, enda líkti Goethe staðnum við himnaríki og skyldi engan undra. Eftir flug til München byrjum við á því að fá okkur hressingu í miðbæ München, en þaðan verður ekið til Kufstein í Tíról sem er mjög líflegur og skemmtilegur bær þar sem gist verður í 2 nætur. Þaðan verður ekið til Riva del Garda sem er einn vinsælasti ferðamannabærinn við Gardavatn og gist þar í 5 nætur. Farið í áhugaverðar skoðunarferðir, m.a til Feneyja, drottningar Adríahafsins, Veróna elstu borgar Norður-Ítalíu. Í siglingu á Gardavatni til Limone og Malcesine sem eru perlur Garda. Eftir ljúfa daga verður haldið til Seefeld í Tíról, Austurríki, þar sem ríkir mikil náttúrufegurð inn á milli fjallanna þar sem gist verður síðustu 2 næturnar. Ýmsar skemmtilegar uppákomur, farið verður á útimarkað, hádegisverður snæddur í kastala hjá vínbónda og margt fleira. Fararstjóri: Steingrímur Gunnarsson Verð: 188.400 kr. á mann í tvíbýli Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, hálft fæði, allar skoðunarferðir með rútu og íslensk fararstjórn. 11. - 20. október Hálftfæðiogallarskoðunarferðirinnifaldar Gardavatn & Feneyjar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.