Morgunblaðið - 15.09.2012, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012
Borgarstjórn Reykjavíkur og skákhreyfingin ætla að
minnast þess að 40 ár eru liðin frá einvígi Boris Spass-
kys og Bobbys Fischers með mikilli hátíðardagskrá í
Laugardalshöll í dag. Dagskráin hefst kl. 11 með mál-
þingi þar sem fjallað verður um einvígi aldarinnar frá
ýmsum hliðum, framkvæmd einvígisins og þýðingu
þess fyrir alþjóðamál, skákíþróttina og stöðu Íslend-
inga í alþjóðasamfélaginu.
„Valinkunnir menn munu fjalla um einvígið frá
mörgum hliðum. Friðrik Ólafsson, einn af frumkvöðl-
unum sem héldu einvígið, mun fara yfir persónuleg
kynni sín af Fischer og Spassky og gera upp aðkomu
sína að einvíginu,“ segir Kjartan Magnússon, formaður
undirbúningsnefndar, og tekur fram að fulltrúar sendi-
ráða Bandaríkjanna og Rússlands hér á landi muni
einnig halda tölu á málþinginu.
„Vegna kalda stríðsins og pólitískra aðstæðna á þess-
um tíma var þetta að sjálfsögðu stór viðburður og einn
frægasti skákviðburður sögunnar. Okkur þykir einkar
ánægjulegt að þeir skuli taka þátt í málþinginu. Nú er
töluverður tími liðinn frá kalda stríðinu og nú ættu
fulltrúar ríkjanna að geta tjáð sig um þýðingu einvíg-
isins á annan hátt en hingað til,“ segir Kjartan.
Á málþinginu verður velt upp með hvaða hætti mætti
minnast einvígis aldarinnar með meiri og betri hætti en
áður hefur verið gert. „Það hafa verið ábendingar um
að betur mætti nýta þennan atburð í landkynningu og
ferðamannaþjónustu hér á landi. Aðilar innan ferða-
þjónustunnar hafa bent á að ferðamenn spyrji mikið
um einvígið og meira mætti gera úr því að rækta minn-
ingar um atburðinn.“
Um þessar mundir er sýning í Þjóðminjasafninu á
munum tengdum einvíginu og Kjartan segir að eflaust
verði skoðað hvort og þá með hvaða hætti mætti gera
þá sýningu varanlega eða hvort leita megi leiða til að
heiðra minningu einvígisins með öðrum leiðum.
Í kjölfar málþingsins fer fram skákmót en það hefst
kl. 13. Kjartan segir að skipuleggjendur vilji nýta þenn-
an viðburð nú til að efla skákstarf meðal yngri kynslóð-
arinnar. Á mótinu munu grunnskólakrakkar etja kappi
auk þess sem keppt verður í sérstökum heiðursflokki
þar sem skákmenn 60 ára og eldri tefla.
Minnast einvígis aldarinnar
Valinkunnir einstaklingar
fjalla um þýðingu einvígisins
á málþingi í Laugardalshöll
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Tímamót Það þótti heimsviðburður þegar einvígi Bobbys
Fischers og Boris Spasskys fór fram hér á landi 1972.
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
60
81
6
08
/1
2
Gildir til 30. september
Lægra
verð
í Lyfju
15%
afsláttur
Nicotinell
Tropical Fruit
204 stk. 4 mg: 7.598 kr.
204 stk. 2 mg: 5.454 kr.
24 stk. 2 mg: 799 kr.
bbbb
P B B / F R É T T A T Í M I N N
bbbb
P B B / F R É T T A T Í M I N N
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
Hermiskaði , þriðja og síðasta
bókin í Hungurleikaþríleiknum
Á
ÍSLENSKU!
EINNIG FÁANLEG
INNBUNDIN
M E T S Ö L U B Æ K U R
Sextíu ofbeldisbrot voru skráð af
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
í ágústmánuði sem er einu færra
en í mánuðinum á undan. Hins
vegar er fjöldinn meiri en á sama
tíma og í fyrra.
Fram kemur í skýrslu lögregl-
unnar fyrir ágústmánuð, sem birt
var í gær, að fjöldi ofbeldisbrota á
höfuðborgarsvæðinu hafi verið
nær óbreyttur undanfarna fimm
mánuði eða í kringum 60 á mánuði
með þeirri undantekningu að í júní
hafi þeim fækkað nokkuð og verið
samtals 46. Hins vegar hafi orðið
fjölgun á tilkynningum um ofbeld-
isbrot í miðborg Reykjavíkur frá
því í byrjun árs.
477 ofbeldisbrot tilkynnt lög-
reglu frá áramótum
Sé horft aftur til ársins 2007,
þegar ákveðið hámark var í fjölg-
un tilkynninga um ofbeldisbrot,
hafi minniháttar líkamsárásum
fækkað stöðugt síðan eða um
helming.
Á sama tíma hefur orðið lítils-
háttar fækkun á meiriháttar og
stórfelldum líkamsárásum. Það
sem af er þessu ári er fjöldi til-
kynntra ofbeldisbrota 477 talsins.
Fleiri ofbeldisbrot tilkynnt
í ágúst en á sama tíma 2011
Karl á fimmtugsaldri var úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 21. sept-
ember í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Það var gert að kröfu lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu á
grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Maðurinn var handtekinn eftir að
lögreglan fann búnað og efni til
framleiðslu fíkniefna í bílskúr við
Efstasund í Langholtshverfinu síð-
degis í fyrradag. Talið var að am-
fetamín hefði verið framleitt í skúrn-
um.
Unnið hefur verið sleitulaust að
rannsókn málsins en ljóst er að það
er mjög umfangsmikið, að sögn lög-
reglunnar. Lagt hefur verið hald á
verulegt magn af tækjum og efnum í
þágu rannsóknarinnar. Lögreglan
framkvæmdi húsleit í iðnaðarhús-
næði í Hraunahverfi í Hafnarfirði í
gær í tengslum við málið.
Við rannsóknina hefur lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu notið aðstoðar
sérfræðinga frá Háskóla Íslands og
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
auk sprengjusérfræðinga frá emb-
ætti ríkislögreglustjóra.
Lögreglan sagðist í tilkynningu í
gær ekki geta upplýst nánar um
búnað og efni fyrr en eftir helgina í
fyrsta lagi. Flokka þyrfti og skrá
muni sem hald var lagt á og efna-
greina efnin. gudni@mbl.is
Ljósmynd/Pressphotos.biz
Gæsluvarðhald Maðurinn var handtekinn eftir að lögreglan fann búnað og
efni til framleiðslu fíkniefna í bílskúr í íbúðarhverfi í Reykjavík.
Settur í vikulangt
gæsluvarðhald
Húsleit fór fram í Hafnarfirði í gær
„Mér finnst sem þeir hafi brugðist
öllum loforðum,“ segir Bergur Rögn-
valdsson, fyrrverandi formaður
svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs í Garðabæ, en
hann hefur nú sagt sig úr flokknum
vegna mikillar óánægju með fram-
göngu forystumanna hans. Bergur
gekk til liðs við flokkinn árið 2003 og
hefur síðan verið virkur í starfi hans
og gegndi formennsku í VG í Garða-
bæ um árabil.
Bergur segir að ástæðan sé meðal
annars sú að loforð sem gefin hafi
verið, og þá ekki síst varðandi lands-
byggðina, hafi verið látin afskipta-
laus. Þá einkum varðandi flutnings-
jöfnuð sem hann hafi sjálfur lagt
mikla áherslu á. Aukin skattlagning á
ferðaþjónustuna komi ennfremur illa
niður á hinum dreifðu byggðum og
vísar hann þar til hækkunar á virð-
isaukaskatti á hótel- og gistiþjónustu.
Ennfremur nefnir hann þá ákvörð-
un að styðja umsókn um inngöngu í
ESB þrátt fyrir skýra stefnu VG
gegn inngöngu í sambandið svo fátt
eitt sé nefnt. Segir Bergur for-
ystumenn flokksins rúna trausti og
því hafi hann talið sig knúinn til þess
að stíga það skref að segja skilið við
hann. „Ég hef hugsað um þetta lengi
og beðið þess að mínir framámenn
gerðu eitthvað í málunum. Ég hef
hins vegar gefist upp á þeirri bið.“
„Brugðist
öllum
loforðum“
Segir sig úr VG
vegna óánægju
með forystuna