Morgunblaðið - 15.09.2012, Síða 17
Skráningargjald er 2.000 kr. og rennur óskert til Vildarbarna Icelandair.
Skráning fer fram á www.icelandairgroup.is
Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir.
75 ÁRA AFMÆLISRÁÐSTEFNA ICELANDAIR GROUP
FRAMTÍÐARTÆKIFÆRI
ÍSLENSKRAR FERÐAÞJÓNUSTU
Þriðjudaginn 25. september 2012,
kl. 13:00–17:00 á Hilton Reykjavík Nordica
+
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
IC
E
61
06
6
09
/1
2
Icelandair Group gegnir lykilhlutverki í þróun og uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu. Í tilefni afmælisársins efnir félagið
til ráðstefnu þar sem fjallað verður um stöðu greinarinnar og framtíðarmöguleika frá ýmsum hliðum af einstaklingum með ólíkan
bakgrunn og sýn.
HR. ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON, FORSETI ÍSLANDS:
Áfangastaður á veraldarvísu
Á undanförnum árum og áratugum hefur Ólafur
Ragnar haft einstakt tækifæri til þess sem forseti
Íslands að kynnast ólíkum skoðunum og viðhorfum til
lands og þjóðar, meðal almennings og fjölmiðlafólks
um allan heim og meðal helstu ráðamanna nær og fjær. Í erindi sínu
mun hann greina frá reynslu sinni og sýn á þau áhrif sem sívaxandi
áhugi á Íslandi hefur á sjálfsmynd þjóðarinnar og framtíð hennar
sem ferðamannalands.
MAGNEA ÞÓREY HJÁLMARSDÓTTIR,
FRAMKVÆMDASTJÓRI ICELANDAIR HÓTELANNA:
Upplifun, þjónusta og fagmennska í ferðaþjónustu
Magnea gjörþekkir innviði hótel- og veitingareksturs
hér á landi og hefur leitt félagið í gegnum miklar
breytingar á undanförnum árum. Í erindi sínu mun hún
stikla á stóru um helstu áskoranir sem nú blasa við ferðaþjónustu á
Íslandi og nauðsynleg skref til að tryggja fyrsta flokks upplifun fyrir
ferðamenn á Íslandi.
EMILIANO DUCH,
FORSTJÓRI COMPETITIVENESS.COM Í BARCELONA
Leiðir til að auka hagnað í ferðaþjónustu
Emiliano er náinn samstarfsmaður Dr. Michael Porter
og einn helsti frumkvöðull og sérfræðingur heims í
klasafræðum (e. cluster theory). Hann er gjörkunnugur
aðstæðum íslenskrar ferðaþjónustu og hefur um árabil horft til
möguleika greinarinnar í alþjóðlegri samkeppni.
BJÖRGÓLFUR JÓHANNSSON,
FORSTJÓRI ICELANDAIR GROUP:
Næstu skref eru mikilvæg
Áhrif Icelandair Group á ferðaþjónustu í landinu eru
mikil og næstu skref félagsins skipta máli fyrir alla sem
starfa í greininni. Björgólfur mun fjalla um hvernig
byggja á upp ferðaþjónustu á heimsmælikvarða á Íslandi og hvernig
áframhaldandi uppbygging Icelandair Group mun styðja við það
markmið. Hann mun einnig gera grein fyrir þeirri þróun sem hann
telur nauðsynlega í íslenskri ferðaþjónustu og hvernig Icelandair
Group getur lagt sitt af mörkum til að efla áfangastaðinn Ísland.
GREGG ANDERSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI
HJÁ FERÐAMÁLARÁÐI NÝJA-SJÁLANDS:
Lærum hvert af öðru
Fyrir þá sem starfa í ferðaþjónustu á Íslandi er það
næstum eins og að líta í spegil að hitta kollega frá
Nýja-Sjálandi. Gregg hefur starfað bæði í Bretlandi og
Bandaríkjunum við að markaðssetja ferðamannalandið Nýja-Sjáland
og hann mun deila reynslu sinni og hugmyndum.
SØREN ROBERT LUND, ARKITEKT:
Veturinn gerður vinsæll
Þeir sem heimsótt hafa Kaupmannahöfn á undan-
förnum árum átta sig á því að Tívolí, sem áður var ávallt
lokað á haustin, dregur nú að sér milljónir gesta yfir
vetrarmánuðina. Søren Robert hefur stýrt hönnun og
þróun skemmtigarðsins undanfarin 15 ár. Hann hefur áhugaverðar
hugmyndir um það hvernig arkítektúr og hönnun geta breytt
upplifun og ferðaþjónustu hér á Íslandi.