Morgunblaðið - 15.09.2012, Side 31
ekki síst vilja Hægri grænir einir
flokka fara í ítarlega endurskoðun á
EES-samningnum, með það í huga
að gera tvíhliða viðskiptasamning
við ESB eins og Sviss. En færa má
að því gild rök að tæknilega hefði
aldrei geta orðið hér allsherjar
bankahrun án EES, enda hentar
EES-samningurinn alls ekki smá-
þjóð eins og okkar, eins og ótal
dæmi sanna.
Auk þessa hefur flokkurinn ætíð
barist hart á móti Icesave, gagn-
stætt t.d. Icesave-forystu Sjálfstæð-
isflokksins. En Icesave hefur mjög
tengst ESB-aðildarferlinu. Þá hafn-
ar flokkurinn alfarið upptöku evru,
en hefur samtímis skýrar og klárar
lausnir í peningamálum, sbr. endur-
upptöku ríkisdals, gengisfestur við
bandaríkjadal, og afnámi gjaldeyr-
ishafta og verðtryggingar, og lausn
á aflandskrónuvandamálinu í kjöl-
farið. En um allt þetta má nánar
lesa á heimasíðu flokksins á
www.xg.is
„Nýja Norðrið“ og nýja
aflið til hægri
Í stað blinds ESB-trúboðs hér-
lendra sósíaldemókrata Fjórflokks-
ins undir forystu Samfylking-
arinnar, er „Nýja Norðrið“ einn af
hornsteinum í stefnu Hægri grænna
í utanríkismálum. Þar sem horft er
til hinna gríðarlegu tækifæra sem
uppbygging og umsvif á norð-
urslóðum munu skapa okkur á kom-
andi árum. Í góðri sátt og stór auk-
inni samvinnu við þær frjálsu þjóðir
sem að norðurslóðunum koma. Og
þá ekki síst í öryggis- og varn-
armálum, og fríverslunarsamning
við Bandaríkin.
Hægri grænir eru því nýja aflið á
hægri kanti íslenzkra stjórnmála. Í
raun eina hægriaflið, sem best sést í
afstöðunni til aðildar Íslands að
ESB eins og hér hefur verið bent á.
Berandi auk þess með sér þá ferska
vinda, sbr. stórbrotna stefnuskrá
Hægri grænna, sem íslenzk þjóð
þarf einmitt svo mikið á að halda í
siglingu sinni inn í hina íslenzku
framtíð 21 aldar.
Áfram frjálst og fullvalda Ísland.
»Fyrir alla þjóðfrelsis-
og fullveldissinna, og
heimastjórnarsinnaða
íhaldsmenn, virðast
Hægri grænir því mjög
fýsilegur kostur í Evr-
ópumálum í dag.
Höfundur er bókhaldari og
félagi í Hægri grænum.
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar
alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar
sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að ný-
skrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu.
Hvern ætlar þú að
gleðja í dag
Viltu læra bridge?
Bridgesambandið getur útvegað leiðbeinendur fyrir hópa, fyrirtæki
og skóla, og einnig forgefin spil. Guðmundur Páll Arnarson starfrækir
Bridgeskólann, þar geta þeir lært sem eru að stíga sín fyrstu skref í
bridge og einnig þeir sem vilja bæta við kunnáttu sína.
Ný námskeið hefjast 24. september.
Upplýsingar hjá Guðmundi Páli s. 898 5427 eða gpa@talnet.is
Landslið Íslands í bridge á Evrópumótinu í Dublín 2012,
13. sæti af 36 þjóðum , í 5.-8. sæti á síðasta Heimsmeistaramóti
Upplýsingar á bridge.is
BRIDGESAMBAND ÍSLANDS – SÍÐUMÚLA 37 – 108 REYKJAVÍK – SÍMI 587 9360 – www.bridge.is
Bridgefélög og klúbbar eru starfræktir um allt land.
Bridge gerir lífið skemmtilegra
Árlegt
alþjóðlegt st
órmót
Reykjavík Br
idgefestival
fer fram 23.-
27. janúar 20
13,
skráning á
bridge@brid
ge.is