Morgunblaðið - 15.09.2012, Side 53

Morgunblaðið - 15.09.2012, Side 53
MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012 Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Skáldsagan Sumarhús með sund- laug eftir hollenska rithöfundinn Herman Koch hefur vakið verð- skuldaða athygli hér á landi, fengið afbragðsdóma og selst afar vel. Að- alpersóna bókarinnar er heim- ilislæknirinn Marc Schlosser en eftir að einn sjúklinga hans deyr vakna spurningar um það hvort lækninum hafi orðið á mistök eða hvort hann hafi óhreint mjöl í pokahorninu. Þetta er bók um breyskar persónur og bresti í samskiptum manna á milli. Læknisfræðin kemur allnokkuð við sögu í bókinni og Koch er spurð- ur hvort hann hafi lagst í miklar rannsóknir við gerð bókarinnar. „Ég lagðist ekki í neins konar rannsóknir,“ segir hann. „Ég nýtti mér eigin reynslu og reynslusögur annarra, þá aðallega sjúklinga, ekki lækna. Ég tékkaði á staðreyndum þegar ég var búinn að skrifa bókina, en gerði samt ekkert of mikið af því, bara hæfilega mikið svo frásögnin yrði trúverðug.“ Þú skrifar um breyskar persónur sem eru oft ekki sérlega aðlaðandi. Af hverju viltu skrifa um þannig per- sónur? „Ég vona alltaf að persónur mínir verði trúverðugar; það skiptir mig meira máli en að þær séu viðkunn- anlegar eða góðar. Mér þykja dökku hliðar mannlífsins mun áhugaverð- ari en björtu hliðarnar og mér finnst ögrandi og skemmtilegt að sýna að „gott“ fólk er ekki eins gott og það þykist vera. Hvað vonda fólkið varð- ar þá er best að láta það lýsa skoð- unum sem gætu verið manns eigin skoðanir, þannig að maður fer að efast um eigin góðmennsku.“ Það er ákveðin spenna í bókum þínum. Sækistu markvisst eftir því að skapa spennu? „Að mínu mati þarf alltaf að vera viss spenna í skáldsögu, eitthvað sem fær lesandann til að halda áfram að lesa, þó það skipti ekki jafn miklu máli í skáldsögum eins og ég skrifa og í spennusögum. Í spennu- sögum getur útkoman oft valdið miklum vonbrigðum. Í skáldsögum mínum er ekki að finna hefðbundna niðurstöðu spennusögunnar að því leyti að enginn er handtekinn og enginn fer í fangelsi. Þetta er frekar eins og í hinu venjulega lífi, persón- ur mínar komast upp með það sem þær gera af sér.“ Finnst þér gaman að skrifa? „Mér hefur alltaf fundist gaman að skrifa, líka þegar ég var átta ára. En ég hugsaði aldrei um skriftir sem alvöru atvinnugrein fyrr en fremur seint á ævinni. Ég óttaðist jafnvel dálítið að ef ég gerði skriftir að aðal- atvinnu minni myndi það á einhvern hátt eyðileggja fyrir mér ánægj- una.“ Dökkar hliðar lífsins heilla  Höfundur Sumarhúss með sundlaug ræðir um verk sín Spenna Herman Koch í óvenjulegri stellingu. Hann segir vissa spennu þurfa að vera í skáldsögu. Afkoma hinnar skatt- ogskuldsliguðu Hörpuhallará nýhöfnu starfsári SÍ lof-aði góðu. Því þótt ætluð megintekjulind af ráðstefnuhaldi hafi hingað til brugðizt, þá var að- sóknin að upphafstónleikum vetr- arins hins vegar söm við sig. Hús- fyllir að vanda. Og veitti svosem ekki af, miðað við þessa dýrustu allra list- greina í rekstri. Má merkilegt telja hvað klassíkin laðar enn marga – á tímum þegar frétzt hefur af áform- um nýrra stjórnvalda sunnar á Norðurlöndum í fyrra um að leggja niður fjölda sinfóníuhljómsveita og veita fénu í staðinn til svokallaðrar rytmískrar tónlistar; e.t.v. í von um skjótfengin atkvæði. Annars má spyrja hvernig skil- greina beri „rytmíska“ tónlist. Eftir núgildri málnotkun að dæma á lýs- ingarorðið aðeins við einföldustu af- brigði, líkt og í dæmigerðu fjór- gengu popprokki. Klassíkin er að því leyti mun fjölbreyttari, jafnvel á hrynföstustu augnablikum hennar eins og á marsleitum stöðum D-dúr konserts Ravels eða 5. sinfóníu Tsjaikovskíjs – vel að merkja án að- stoðar vélrænna trommusetts- dynkja. Restin snýst um varanleg gæði. Eða hver man t.d. lengur eftir grúppum 10. áratugar þá hæst var hossað í dægurpressunni? Þetta flaug manni fyrir hugskots- heyrn á afburðavel heppnuðum tón- leikum SÍ umrætt fimmtudagskvöld. Enda tæptu píanókonsertarnir eftir Maurice Ravel frá 1930/31 sumpart á sama djass-blúsaða tónmáli er gegnsýrt hefur flestallt rokk síðustu 60 ára – en með margfalt víðfeðmari hætti. Þótt Ilan Volkov hafi að vísu ekki reynzt með öllu ómistækur frekar en flestir aðrir dírígentar, þá tókst honum hér frábærlega upp við að skila töfrum franska orkestr- unargaldramannsins í dáleiðandi fögrum en líka snörpum leik SÍ, og skozki sólistinn sá um sitt með áreynslulausum glæsibrag, hvort heldur með báðum höndum eða þeirri vinstri einni. Fimmþætt 5. hljómkviða hins rússneska melódíukonungs kastaði þó tólfum með afburðahvössum og krafthlöðnum leik hljómsveitarinnar er spannaði allt tónalitróf erkitýp- ískrar rómantískrar sinfóníu. Fínall- inn var dúndur sem sagði sex, m.a. fyrir óvenjuöflugan strokhljóm á efsta sviði er kom manni snöggvast til að halda að fjölgað hefði verið í fiðlum um fjórðung. Undirtektir áheyrenda voru að sama skapi á suðupunkti. Að svo komnu hefði venjulegu kvöldi verið lokið. En þá tók nýjung við, að líkindum undan rifjum stjórn- andans, er nefndist „Eftirleikur“ og hófst kl. 22. Manni datt hér í hug aukafyrirsögnin „Vill einhver elska 38 ára gamalt framúrstefnuverk?“, því rifjuð var upp tónögrun Atla Heimis Sveinssonar frá 1974, Flo- wer Shower. Mesta spennan fólst þó í hversu margir gestir myndu þrauka þessa viðbót, enda var fyrst ákveðið á síðustu stundu að rýma allar hæðir Eldborgar nema gólf- hæðina – sakir 50% fráfalls. Undirritaður lét sig samt hafa að þreyja þorrann, og ekki alveg að er- indisleysu því einkum síðasti þriðj- ungur blómabaðsins lét á köflum vel í eyrum; þ. m. t. skemmtilegur slag- verkskafli og ýmislegt annað er minnt gat á Zen-náttúrubúddisma. En mikil ósköp hefði nú farið stykk- inu vel að stytta undangenginn – og drepleiðilegan – „kaos“-kafla um helming! Vænleg vertíðarbyrjun Eldborg í Hörpu Sinfóníutónleikar bbbbn / bbnnn Ravel: Píanókonsert í G; Píanókonsert í D fyrir vinstri hönd. Tsjajkovskíj: Sin- fónía nr. 5 í e. / „Eftirleikur“ kl. 22: Flo- wer Shower eftir Atla Heimi Sveinsson. Steven Osborne píanó og Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Stjórnandi: Ilan Vol- kov. Fimmtudaginn 13. september kl. 19:30. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.