Morgunblaðið - 20.09.2012, Side 1
F I M M T U D A G U R 2 0. S E P T E M B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 220. tölublað 100. árgangur
ÞJÓÐIN GENGUR
MEÐ STAF EFTIR
VONDA BYLTU
SVIGRÚM
MEÐ GÓÐU
ORÐSPORI
EIGUM AÐ FAGNA
BREYSKLEIKA
OKKAR
VIÐSKIPTABLAÐ NÝ PLATA SVAVARS KNÚTS 37NÝ LJÓÐ MATTHÍASAR 34
23 af 41 loforði svikin
» Samkvæmt úttekt Morgun-
blaðsins telja SA og ASÍ stjórn-
völd hafa svikið eða dregið að
efna samanlagt 23 af 41 fyrir-
heiti vegna samninganna.
» Samningarnir kváðu á um
4,25% hækkun launa í júní í
fyrra, 3,5% hækkun í febrúar
sl. og 3,25% hækkun í febrúar
á næsta ári.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Samtök atvinnulífsins (SA) telja að
stjórnvöld hafi ekki staðið við nokkr-
ar veigamestu forsendur kjarasamn-
inganna og ætla því að meta stöðu
samninganna í janúar næstkomandi.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, segir það „ekki
gefið“ að laun hækki 1. febrúar nk.
„Við veltum því fyrir okkur hvaðan
innistæðan fyrir launahækkun eigi að
koma. Við höfum rétt til þess að opna
samninginn í janúar. Það er gert ráð
fyrir því að samningsaðilar hittist
reglulega og ræði forsendur samn-
inga. Þær standast ekki og því þurf-
um við að íhuga viðbrögð.“
Þungar byrðar á fyrirtækin
Meðal fyrirheita af hálfu ríkis-
stjórnarinnar var að fjárfesting yrði
ekki undir 350 milljörðum 2013. Vil-
hjálmur segir þetta óraunhæft.
„Það er deginum ljósara að skatta-
hækkanir á fyrirtæki og einstaklinga
upp á 22,5 milljarða á næsta ári munu
þrengja mjög að fyrirtækjum og
svigrúmi þeirra til fjárfestinga.
Ríkisstjórnin ætlar að auka útgjöld
og senda fyrirtækjum reikninginn.
Með þessu eru stjórnvöld að falla frá
fyrri stefnu í stöðugleikasáttmálan-
um um að ná fram jöfnuði með blöndu
af skattahækkunum og niðurskurði.“
Erfiðar viðræður framundan
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir stjórnvöld ekki hafa staðið við
forsendur samninga.
„Framundan eru því erfiðari við-
ræður um endurskoðun samninga en
síðast. Það er hins vegar ekki komið
að því að taka ákvörðun um hvort
þeir verða opnaðir.“
MTelja stærstu loforðin »6
Launahækkanir í uppnámi
SA ætla að yfirfara kjarasamninga í ljósi svika stjórnvalda í atvinnumálum
Skattahækkanir ógni fjárfestingu ASÍ átelur vanefndir ríkisstjórnarinnar
„Ef þetta hefði komið strax þá
hugsanlega hefði málið ekki orðið
eins alvarlegt og raun ber vitni. En
þegar líður hálfur mánuður og
bæði ráðherra og forstjóri eru bún-
ir að koma fram og réttlæta þessa
aðgerð og færa fyrir henni rök í
fjölmiðlum, þá er að mínu mati orð-
ið of seint að bæta þann skaða sem
orðið hefur. Trúnaðarbresturinn er
staðreynd,“ segir Elsa B. Friðfinns-
dóttir, formaður Félags hjúkrunar-
fræðinga, um það samkomulag sem
Guðbjartur Hannesson velferð-
arráðherra og Björn Zoëga, for-
stjóri Landspítalans, gerðu í gær
um að boðuð launahækkun til
handa Birni um næstu mánaðamót
yrði dregin til baka. Elsa segir
þessa ákvörðun koma of seint.
Mánaðarlaun Björns áttu að
hækka um nærri 450 þúsund krón-
ur. Í yfirlýsingu frá velferðarráðu-
neytinu segir að ákvörðun ráð-
herrans sé gerð með hagsmuni
Landspítalans að leiðarljósi. »2
„Trúnaðarbresturinn er staðreynd“
Vinkonurnar Ásdís Inga Bjarnadóttir, Karólína Hrönn Johnstone og
Guðný Helga Garðarsdóttir héldu upp á sjö ára afmæli sín í Keiluhöllinni í
Öskjuhlíð í gær og buðu vinum og bekkjarfélögum í Hörðuvallaskóla í
Kópavogi. Frekar en að þiggja afmælisgjafir báðu þær gestina að gefa
pening í átakið „Á allra vörum“. Söfnuðust 30 þúsund krónur í veislunni
sem þær vinkonur munu með hjálp foreldranna skila á réttan stað.
Báðu gesti að gefa til góðs málefnis í stað afmælisgjafa
Morgunblaðið/Ómar
Friðbert Traustason, formaður
Samtaka starfsmanna fjármálafyr-
irtækja, segir að hærri fjársýslu-
skattur á launagreiðslur fjármála-
fyrirtækja þýði að verið sé að færa
álögur af erlendum kröfuhöfum yf-
ir á íslenska launamenn. Lagt er til
í fjárlagafrumvarpinu að hækka
fjársýsluskattinn um helming. Frið-
bert segir þetta koma verst niður á
minni fjármálafyrirtækjum. »4
Fjársýsluskattur
leggst á launamenn
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
„Það verður algjörlega séð til
þess að Bjargráðasjóður uppfylli
allt sem að honum snýr,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon atvinnu-
vegaráðherra eftir komu sína af
þremur íbúafundum sem haldnir
voru í Þingeyjarsýslu í gær um að-
gerðir í þágu bænda og umfang
þess skaða sem þeir hafa orðið fyrir
vegna slæmrar tíðar.
„Spurt var um marga aðra kostn-
aðarliði sem ekki koma beint að
Bjargráðasjóði. Sumt er ekki
tryggt, auk þess sem ýmis kostn-
aður fellur til. Hlutverk stjórnvalda
á þessum fundi var að draga saman
allar upplýsingar um kostnað og
miðla þeim áfram til að átta sig á
stærðargráðu tjónsins. Upplýs-
ingar um það munu ekki liggja fyr-
ir fyrr en lengra líður. Enn er
margt fé týnt en auk þess eru ónýt-
ar girðingar og annað. Sumt af því
er hægt að bæta en annað er mats-
kennt eftir tilvikum.“ »4
Bjargráðasjóður
uppfyllir sitt
Ljósmynd/Hermann Aðalsteinsson
Fundir Sérfræðingar sátu fyrir svörum.
Markarfljót Varnargarður skemmdist í
miklu flóði í Markarfljóti árið 2010.
Landeigendur í innri hluta Fljóts-
hlíðar vilja skaðabætur vegna lands
sem Markarfljót hefur eytt. Legu
nýs varnargarðs var breytt eftir að
hann var uppbyggður að nýju eftir
að hann skemmdist í hamfara-
hlaupi árið 2010.
Breytingin var í óþökk Fljótshlíð-
inga. Telja landeigendur að við
hana hafi hundruð hektara af landi
skemmst vegna vatns sem flæmist
yfir gríðarstór landsvæði sem áður
voru varin.
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri telur að breytt rennsli fljóts-
ins stafi af auknum framburði eftir
flóðin árið 2010. »16
Landeigendur vilja skaðabætur