Morgunblaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 6
Aðgerðalisti ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninga
Loforð Staða að mati SA Staða að mati ASÍ
Bókun um framkvæmd yfirlýsingar Hefur ekki gengið eftir
Bókun ummálsmeðferð í sjávarútvegsmálum Gekk ekki eftir
Bókanir
Höfuðstóll gengistryggðra lána hefur verið færður
niður í samræmi við dóma Hæstaréttar
Fleiri dóma Hæstaréttar
þarf til að eyða óvissu
Hefur gengið eftir enmálið enn í
lagal. óvissu eftir nýja dómaHæstar.
Sérstök vaxtaniðurgreiðsla til heimila sem greidd verður
árin 2011 og 2012 sem áætlað er að muni kosta um 6
milljarða króna
Hefur gengið eftir Hefur gengið eftir
Húsnæðismál
Stjórnvöld skipi starfshóp með fulltrúumASÍ, SA og
fjármálaráðherra til að gera tillögur um útfærslu. Skili
niðurstöðum fyrir lok september 2011
Nefnd skipuð Aðeins einn fundurog engin umræða
Jöfnun áunninna lífeyrisréttinda milli almenna og
opinbera vinnumarkaðarins Hefur ekki gengið eftir Hefur ekki gengið eftir
Lífeyrismál
Framlög ríkisins og lífeyrissjóðanna til
starfsendurhæfingar verði lögbundin Hefur gengið eftir Hefur gengið eftir
Virk heilsuvernd á vinnustöðum sporni gegn ótímabæru
brottfalli af vinnumarkaði, meðal annars með forvörnum Hefur gengið eftir
Tilraunaverkefni um aukna þjónustu við atvinnuleitendur Gengið eftir að hluta Hefur gengið eftir
Stofnaður verður þróunarsjóður til að efla starfstengt námá
framhaldsskóla- og háskólastigi og þróa styttri námsbrautir Hefur gengið eftir Hefur gengið eftir
Aukin framlög til LÍN Hefur ekki gengið eftir
Starfstengdum úrræðum fyrir atvinnuleitendur fjölgað
um allt að 1.500 árið 2011 Nánast gengið eftir Hefur verið efnt
Aðgengi atvinnuleitenda og fyrirtækja að starfstengdum
úrræðum verði bætt og umsýslukerfi einfaldað Hefur verið efnt að hluta Hefur verið efnt að hluta
Þeim sem eru 25 ára og eldri verður gefinn kostur á
úrræðum í framhaldsfræðslu Hefur gengið eftir Hefur gengið eftir
Öllumsemeftir leita verða tryggðnámstækifæri haustið 2011 Hefur gengið eftir Hefur gengið eftir
Menntamál og vinnumarkaðsúrræði
Átak til að fjölga erlendum ferðamönnum um
50.000 yfir vetrartímann og skapa þannig 1.000 störf Hefur gengið eftir Hefur gengið eftir
Hindrunum í vegi erlendrar fjárfestingar verði rutt burt Hefur ekki gengið eftir
Ísland verði kynnt fyrir erlendum fjárfestum sem
fjárfestingarkostur með markvissum aðferðum og
auknu fé til markaðssóknar
Hefur ekki gengið eftir Íslandsstofa fékk auknarfjárveitingar
Fjárfesting lítilla og meðalstórra fyrirtækja verði aukin Hefur ekki gengið eftir Hefur ekki gengið eftir
Stefnt að afgreiðslu samninga um tvö umtalsverð
fjárfestingarverkefni, þar af annað á Norðausturlandi,
og að framkvæmdir hefjist árið 2012
Ófrágengið Hefur ekki gengið eftir
Stefnt að afgreiðslu rammaáætlunar haustið 2011 Hefur ekki gengið eftir Hefur ekki gengið eftir og útlitfyrir mikinn ágreining
Sókn í orku- og iðnaðarmálum Hefur ekki gengið eftir
Nýbygging fyrir stofnun Vigdísar Finnbogadóttur Mjög hægur gangur
Undirbúningur vegaframkvæmda á Suðvesturlandi Gekk ekki eftir Lítið samráð og enginnáhugi ráðherra
Ofangreint feli í sér aukna fjárfestingu um 13 milljarða til
loka árs 2012 Hefur ekki gengið eftir
Aukið fé verði sett í vegaframkvæmdir á Vestfjörðum Hefur gengið eftir
Um 5milljarða króna fjárfesting í nýjum hjúkrunarheimilum Komið í gang Hefur gengið eftir
Gerð Vaðlaheiðarganga hefjist haustið 2011 Verksamningur ófrágenginn Hefur dregist og endaði meðábyrgð ríkisins
3,1 milljarður vegna byggingar nýs Landspítala Hefur ekki gengið eftir Hefur dregist
Framkvæmdir á árinu 2011 og 2012
Fjárfesting verði ekki minni en 350 milljarðar á ári í lok
samningstímans Hefur ekki gengið eftir Hefur ekki gengið eftir
Atvinnuleysi verði ekki meira en 4-5% í lok samningstímans
Stefnir í meira atvinnuleysi,
verður líklega 5,5% í lok
samningstímans
Atvinnuleysi er að minnka, en
ekki vegna fjölgunar starfa heldur
fækkunar á bótaskrá, brottflutn-
ings og fækkunar á vinnumarkaði
Sókn í atvinnumálum Hefur ekki gengið eftir Hefur ekki gengið eftir
Samráð um umbætur í skattamálum Gengið eftir að hluta
Breytingar á lögum um tekjuskatt vegna atvinnulífsins Gengið eftir að hluta
Embætti ríkisskattstjóra standi fyrir tímabundu átaki með
fulltingi fjármálaráðuneytisins í samvinnu við SA og ASÍ
ummeðal annars að sporna gegn svartri atvinnustarfsemi
Gekk eftir.
Samvinna er í gangi
Gott samstarf hefur verið um
þessi mál
Tryggingargjald skuli lækkað skapist svigrúm
til þess vegna minnkandi atvinnuleysis
Vanefndir áformaðar í
fjárlagafrumvarpi 2013
Var efnt í ársbyrjun 2012 en áform
um að efna þetta ekki 2013
Starfsskilyrði atvinnulífsins
Stjórnvöld endurskoði bætur almannatrygginga með
hliðsjón af niðurstöðum kjarasamninga milli ASÍ og SA
þannig að lífeyrisþegar og atvinnulausir njóti hliðstæðra
kjarabóta og um verður samið í kjarasamningunum
Áform umminni tekjutengingar
bæta hag lífeyrisþega
Atvinnuleysisbætur ekki
hækkaðar með sambærilegum
hætti og laun. Bætur almanna-
trygginga ekki hækkaðar
með sambærilegum hætti,
en samstaða í þverpólitískri
nefnd um að draga verulega úr
tekjutengingum sem skilar sama
eða meiri ávinningi fyrir launafólk.
Persónuafsláttur Efnt
Persónuafsláttur hefur verið
verðtryggður og neðri mörk
hækkuð umfram verðlag.
Bætur almannatrygginga og persónuafsláttur
Afnám gjaldeyrishafta, höftin verði ekki lengur en brýna
nauðsyn beri til
Enn er stefnt að afnámi
í árslok 2013 Hefur ekki gengið eftir
Þátttaka í endurmati efnahagsáætlunar Hefur ekki gengið eftir
Mótun nýrrar umgjarðar fyrir peningastefnuna Hefur gengið mjög hægt
Hefur gengið mjög hægt og
mikill ágreiningur um samhengi
launa, gengis og veðlags
Ríkisfjármálastefna Heildarafgangur 2013 næst ekki
Efnahagsstefnan almennt Verðbólga, vextir og gengi ekkií samræmi við væntingar
Efnahagsstefnan
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir verð á vörum og þjónustu hafa
hækkað meira en gert var ráð fyrir
við gerð samninga. Því stefni í for-
sendubrest milli aðila vinnumark-
aðarins og atvinnurekenda.
Forsendubrestur við stjórnvöld
„Það hefur líka orðið forsendu-
brestur í samskiptum okkar við
stjórnvöld. Þegar við gerðum kjara-
samningana og lögðum upp með
ákveðið samstarf milli okkar, at-
vinnurekenda og stjórnvalda var
lagður fram heildarpakki sem af-
staða var tekin til við afgreiðslu
samninganna. Þar hefur margt ekki
gengið eftir. Framundan eru því erf-
iðari viðræður um endurskoðun
samninga en síðast. Það er hins veg-
ar ekki komið að því að taka ákvörð-
un um hvort þeir verða opnaðir.
Það hefði haft mjög mikla þýð-
ingu fyrir afkomu félagsmanna okk-
ar ef atvinnutryggingar og
atvinnuleysisbætur hefðu hækkað í
samræmi við kjarasamninga, eins
og til stóð.
Svo eru það efnahagsmálin. Við
teljum að það hefði breytt miklu ef
þau tækifæri sem við Íslendingar
höfum til að auka fjárfestingu og út-
flutning hefðu verið nýtt. Það hefði
haft umtalsverð áhrif til batnaðar,
gagnvart bæði atvinnustiginu og
tekjumyndun minna félagsmanna.
Það hefði jafnframt gert þeim
miklu auðveldara um vik að mæta
skuldbindingum sínum og standa
vörð um fjölskyldur sínar. Það er
ekki nógu ofarlega á forgangslist-
anum að skapa forsendur fyrir fjölg-
un starfa og auknum tekjum. Ég
hygg að það sé grundvöllur mikillar
reiði gagnvart stjórnvöldum.“
Við gerð kjarasamninga skuldbatt ríkisstjórnin sig til að láta þessi áform ganga eftir
Telja stærstu
loforðin hafa
verið svikin
Vilhjálmur
Egilsson
Gylfi
Arnbjörnsson
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þegar kjarasamningar voru undir-
ritaðir 5. maí 2011 fylgdi með yfir-
lýsing frá ríkisstjórninni um þær að-
gerðir sem ráðast átti í samhliða
kjarabótum til handa launafólki.
Fyrirheitin eru útlistuð hér til
hliðar og fylgir með afstaða Sam-
taka atvinnulífsins og Alþýðu-
sambands Íslands til þess hvort þau
hafi verið efnd. Skal tekið fram að
listinn er ekki tæmandi. Einhver at-
riði standa út af en meginatriðin, svo
sem í efnahagsmálum, eru tiltekin.
Kjarasamningarnir giltu frá maí í
fyrra og út næsta ár og fólu í sér
4,25% launahækkun 1. júní í fyrra-
sumar, 3,5% launahækkun 1. febr-
úar á þessu ári og 3,25% hækkun 1.
febrúar á næsta ári, með fyrirvara
um endurskoðun í janúar ár hvert.
Ekki minni en 350 milljarðar
Skýr markmið voru sett um fjár-
festingu sem skyldi ekki vera minni
en 350 milljarðar á ári í lok samn-
ingstímans, það er í lok næsta árs.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, telur nær engar
líkur á því að þetta markmið náist.
„Ríkisstjórnin hefur að okkar mati
nálgast þessi fyrirheit af ótrúlegri
léttúð. Það var augljóslega ekki efst
á forgangslista hennar að standa við
þau. Reyndar hefur maður á tilfinn-
ingunni að sumir stjórnarliðar telji
sig með öllu óbundna af þeim.
Launahækkanir voru m.a. byggð-
ar á þeirri forsendu að fjárfesting
myndi aukast, að hagvöxtur yrði
4-5% og að krónan myndi styrkjast
samfara vexti í hagkerfinu. Þar hef-
ur ekkert gengið eftir. Fjárfesting
er áfram í sögulegri lægð.
Við brjótum því heilann um hvað-
an innistæðan fyrir frekari launa-
hækkunum eigi að koma. Hér
standa veigamikil atriði út af frá því
sem lofað var. Við höfum rétt til þess
að opna samninginn í janúar. Það er
gert ráð fyrir því að samningsaðilar
hittist reglulega og ræði forsendur
samninga. Ef þær standast ekki
þurfum við að íhuga viðbrögð.“
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2012
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
VERÐI LJÓS
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
T5 Flúor lampi
2x28w 120cm
5.390
SHA-3902A
T8 Loftljós flúor rakaþ.
2x36w 128x16,6cm
5.595
SHA-V5228 IP65
SHA-3901
T8 Loftljós flúor rakaþ.
1x18w 67,5x11,2cm
2.865
SHA-3901A
T8 Loftljós flúor rakaþ.
2x18w 67,5x16,6cm
3.595
Gæðavara
!
Margra ár
a
reynsla
á Íslandi