Morgunblaðið - 20.09.2012, Side 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2012
Ég hef ekki skipulagt það enda er þetta svosem ekki stór-afmæli,“ segir Sigurjón Kjartansson skemmtikraftur að-spurður hvort hann hyggist gera eitthvað sérstakt í tilefni
dagsins en hann fagnar í dag 44 ára afmæli sínu. „Ég hafði hugs-
að mér að vinna og kannski fær maður góðan mat um kvöldið,“
bætir Sigurjón við.
Aðspurður hvort hann eigi von á einhverjum gjöfum í tilefni
dagsins segir Sigurjón svo vera. „Ég er búinn að mælast til þess
við syni mína að þeir gefi mér að minnsta kosti eina Seinfeld-
þáttaröð, þær eru á góðu verði í Elko, ég var að minna þá á þetta
svona vinsamlega,“ segir Sigurjón og bætir við að hann sé að láta
sig dreyma um að fá fjórðu þáttaröðina af Seinfeld, en hana mun
víst vanta í safnið. „Ég yrði ánægður ef ég fengi það,“ segir
Sigurjón.
Aðspurður segir Sigurjón engan gamlan afmælisdag eftir-
minnilegri en annan. „Ég hætti að halda upp á þetta sirka 12 ára
en manni hefur svosem verið komið á óvart, sem er ánægjulegt.
Það var eitthvað svona sett upp þegar ég varð fertugur og ég
hafði bara gaman af því,“ segir Sigurjón.
Sigurjón Kjartansson er 44 ára í dag
Morgunblaðið/Þorkell
Tvíhöfði Sigurjón Kjartansson fagnar afmæli sínu í dag en hér sést
hann í glæsikerru ásamt vini sínum Jóni Gnarr borgarstjóra.
Dreymir um Sein-
feld í afmælisgjöf
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Katrín Birta Reynis-
dóttir og Viktoría Tóm-
asdóttir gengu í hús og
söfnuðu varningi sem
þær síðan seldu fyrir ut-
an Hagkaup í Spönginni.
Ágóðann, 5.151 kr.,
færðu þær Umhyggju,
félagi til stuðnings lang-
veikum börnum.
Söfnun
Höfn Ægir Þór fæddist 26. nóvember.
Hann vó 18 merkur og var 54 cm lang-
ur. Foreldrar hans eru Hulda Björk
Svansdóttir og Sævar Rafn Guð-
mundsson.
Nýir borgarar
Selfoss Þorgeir Óli fæddist 20. des-
ember. Hann vó 3.910 g og var 53 cm
langur. Foreldrar hans eru Ragnheiður
Árbjörg Ólafsdóttir og Eiríkur Ari
Valdimarsson.
C
arl fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp, fyrst við
Týsgötu til sex ára ald-
urs og síðan við Skúla-
götu. Hann var í Mið-
bæjarskóla, Austurbæjarskóla,
Gagnfræðaskólanum við Lindargötu
og stundaði nám við Iðnskólann í tvo
vetur.
Lærði m.a. hjá Carl Billich
Carl lærði á píanó hjá Sigursveini
D. Kristinssyni um skeið er hann var
átta ára, síðan hjá Annie Leifs og þá
Ásgeiri Beinteinssyni og loks hjá Carli
Billich. Hann hóf síðar nám við Tón-
listarskólann í Reykjavík 1979 og út-
skrifaðist þaðan með BSc-próf í tón-
listarkennslu 1983.
Carl hóf að spila opinberlega árið
1959 er hann varð píanóleikari með
Carl Möller, djasspíanisti og tónlistarkennari – 70 ára
Morgunblaðið/Heiddi
Á afmælistónleikum Papa Jazz Carl spilar á tónleikum í Ráðhúsi Reykjavíkur í tilefni af 80 ára afmæli Guðmundar
Steingrímssonar en þeir tveir hafa heldur betur hrært saman í djasspottinum um langt árabil.
Í lávarðadeild píanó-
djassara í hálfa öld
Sumargleðin Carl að æfa skemmtiatriði með Sumargleðinni á árum áður
ásamt Magnúsi Ólafssyni, Bessa Bjarnasyni og Ómari Ragnarssyni.
ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG!
KULDAGALLA
R
Á ALLA
FJÖLSKYLDU
NA
Dynjandi hefur úrval af
vönduðum kuldafatnaði
fyrir alla, börn og fullorðna.
Komdu og skoðaðu úrvalið.
Dynjandi örugglega fyrir þig!
Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is