Morgunblaðið - 29.10.2012, Side 1

Morgunblaðið - 29.10.2012, Side 1
M Á N U D A G U R 2 9. O K T Ó B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  253. tölublað  100. árgangur  www.kaupumgull.is Græddu á gulli Kringlunni 3. hæð mán. þri. mið. frá kl. 11.00 til 18.00 Upplýsingar og tímapantanir: Sverrir s. 661-7000 MYNDAFLOKKUR GAMALL DRAUMUR THORS BASTARÐAR FRUMSÝNDIR LEITA SÍFELLT LEIÐA TIL AÐ TAKAST Á VIÐ NÝJA TÍMA BROTIN FJÖLSKYLDA Í BORGARLEIKHÚSINU 28 VERSLUN GUÐSTEINS 10PÍLAGRÍMSGANGA Í FIMM HLUTUM 26 Rýma hefur þurft stór svæði við austurströnd Bandaríkjanna vegna fellibylsins Sandy sem gengur á land í nótt. Lára Hilmarsdóttir er í námi í New York en þar hefur þurft að rýma nokkur svæði sem liggja lágt við ströndina. „Hverfið sem ég bý í verður ekki rýmt en sum svæði í borginni, eins og á neðri hluta Man- hattan, eru svokölluð skyldurýming- arsvæði og fólki því skylt að rýma þau,“ segir Lára en hún segir þó ekkert óðagot á fólki. „Það er helst að hér séu langar biðraðir í verslanir og fólk er að kaupa vasaljós, vatn á flöskum og dósamat.“ Veðrið hefur áhrif á samgöngur á þeim svæðum þar sem það gengur yfir og má búast við að flug- samgöngur liggi niðri í einhvern tíma. „Ég átti pantað flug til Þýska- lands á þriðjudaginn en það er búið að aflýsa því,“ segir Lára. Þá hefur Icelandair fellt niður flug til og frá New York í dag, mánudag, vegna fellibylsins. »15 Hluti Manhattan rýmdur  Fellibylurinn Sandy lamar allar sam- göngur  Flug til New York fellt niður AFP Fellibylur Fólk hamstrar vatn á flöskum og dósamat. Bríet Bjarnadóttir, Þór Óli Bjarnason, Ása Elísabet Guðmundsdóttir og Una Guðríður Guðmundsdóttir voru á röltinu í góða veðrinu í Elliðaárdal í gær, á öðrum degi vetrar. Virtu þau trén vel fyrir sér en laufin eru að lang- mestu leyti fallin og skjólið því minna á göngu um dalinn. Laufin fallin í vetrarbyrjun Morgunblaðið/Eggert Krakkar á rölti um Elliðaárdalinn Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Búist er við að hlýnandi veðurfar með hraðari bráðnun jökla auki vatnsmagn á Þjórsár- og Tungnaár- svæðinu á næstu árum um nær 15%. Hjá Landsvirkjun sem rekur fimm virkjanir á svæðinu – og þá sjöttu með Búðarhálsvirkjun, sjá menn ýmsa möguleika felast í þessu. Því er nú í skoðun t.d. að endurnýja þrjár vélar Sigölduvirkjunar og bæta þeirri fjórðu við. Með því er fyrirsjá- anlegt að auka megi framleiðsluget- una úr 150MW í 200MW. Við Búrfell má einnig auka fram- leiðslu. Hluta af vatni Þjórsár er veitt fram hjá virkjuninni undir Sámsstaðamúla um upphaflegan far- veg árinnar. Því hafa áform um stækkun Búrfells aftur verið dregin fram – það er um byggingu lítillar virkjunar sem nýtt gæti yfirfalls- vatnið og framleitt um 70MW. Framangreind atriði – og fleiri til – eru í skoðun hjá Landsvirkjun og gætu komið til framkvæmda á næstu árum standist þau skoðun, að sögn Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar. „Í stækkun núverandi virkjana felast möguleikar,“ segir Steingrím- ur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra sem telur svona framkvæmdir ekki þurfa að verða umdeildar með tilliti til umhverfissjónarmiða. MMöguleikar með meira vatni »6 Landsvirkjun skoðar stækk- un virkjana  Framkvæmdir þurfa ekki að verða umdeildar, segir atvinnuvegaráðherra Virkjunarkostir » Búrfellsvirkjun hugsanlega stækkuð og vélbúnaður í Sig- öldu endurnýjaður. Gæti aukið framleiðslu um 70 MW. » Miklir möguleikar felast í stækkun stöðvanna, segir at- vinnuvegaráðherra.  „Ég held að þetta sé lang- skynsamlegasta leiðin,“ segir Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram- sóknarflokksins, um þá ákvörðun kjördæmisþings framsóknar- manna í Norð- austurkjördæmi að boða til tvöfalds kjördæmisþings 1. desember nk. Var það samþykkt með 115 atkvæð- um gegn 48. Höskuldur Þórhalls- son, alþingismaður og keppinautur Sigmundar um efsta sætið í kjör- dæminu, segir hins vegar að lýð- ræðislegustu leiðinni við val á lista hafi verið hafnað en stuðningsmenn hans vildu að flokkurinn héldi lok- að prófkjör. »4 Sigmundur náði fram öðru þingi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson  Ragnar Stef- ánsson jarð- skjálftafræðingur segir að það sé lít- il hætta á flóð- bylgjum í kjölfar jarðskjálfta hér á landi. „Okkar skjálftar orsakast af láréttum hreyf- ingum, þar sem plöturnar ganga á misvíxl meðfram hvor annarri, en þar sem flóðbylgjurnar verða mestar, eins og í Kyrrahafinu, eru plötu- hreyfingarnar lóðréttar.“ Það þýðir að sjávarbotninn sem er nær landi rís upp og sá sem er fjær fer niður. Vatnsmassinn lyftist þá upp líka og myndar bylgju. Ragnar segir eitt dæmi um mjög litla flóðbylgju hér á landi sem kann að hafa verið af völd- um skjálfta en það hafi verið á Siglu- firði árið 1838 og séu heimildir óljós- ar um þann atburð. Lítil hætta á flóð- bylgjum hérlendis Ragnar Stefánsson Óvíst er hvort þingmeirihluti er fyrir samþykkt þingsályktunartillögu um rammaáætlun. Að sögn Marðar Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar, er ljóst að tillagan verður „varla samþykkt sam- hljóða“. Mörður segist hins vegar hafa góðar von- ir um að meirihluti sé fyrir tillögunni, þó svo að hann viti ekki nákvæmlega hvernig sá meirihluti líti út nú. Róbert Marshall alþingismaður tekur í sama streng en hann segir að það verði að koma í ljós hvort þingmeirihluti sé fyrir málinu. »6 „Varla samþykkt samhljóða“ ÓVÍST MEÐ ÞINGMEIRIHLUTA FYRIR RAMMAÁÆTLUN Miklir möguleikar eru til staðar fyrir íslensk fyrirtæki í Suður- Ameríku, sérstaklega á sviði sjáv- arútvegs. Þetta segir Svavar Svav- arsson, markaðsstjóri HB Granda. Íslandsstofa undirbýr nú tvær ferð- ir íslenskra fyrirtækja til S- Ameríku í lok nóvember nk. og byrjun næsta árs. Þar verða kann- aðir möguleikar á viðskiptum við Brasilíu og Argentínu. Í fyrri ferð- ina fara ferðaþjónustufyrirtæki en sjávarútvegsfyrirtæki í seinni ferð- ina. Að sögn Þorleifs Þórs Jóns- sonar hjá Íslandsstofu er mikill áhugi á þessum ferðum. »16 Íslensk fyrirtæki hafa mikla mögu- leika í S-Ameríku

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.