Morgunblaðið - 29.10.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Það er vonlaust mál að elta ólar við
allt það sem birtist í erlendum fjöl-
miðlum um málið,“ segir Steingrím-
ur J. Sigfússon, atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðherra, um ummæli
kínverska fjárfestisins Huangs Nu-
bos við þýska blaðið Der Spiegel um
að áhugi hans á Grímsstöðum á
Fjöllum væri að dvína. „Við erum
ekki að velta því fyrir okkur eða láta
það trufla okkur og skoðum þetta á
þeim forsendum sem blasa við okk-
ur,“ segir Steingrímur en hann fer
fyrir sérstökum samráðshópi ráð-
herra og ráðuneyta sem skipaður
var í lok júlímánaðar til að fara yfir
álitamál vegna áforma um erlenda
fjárfestingu á Grímsstöðum á Fjöll-
um. Auk Steingríms sitja innanrík-
isráðherra, utanríkisráðherra, fjár-
málaráðherra og umhverfisráðherra
í hópnum ásamt embættismönnum
úr viðkomandi ráðuneytum.
Á meðal þess sem Huang sagði við
Der Spiegel um helgina var að sér
sárnaði það vantraust sem hann og
kínverska þjóðin hefðu mætt á Ís-
landi. Áform hans um að kaupa
Grímsstaði á Fjöllum hefðu fallið í
grýttan jarðveg hér á landi og verið
sett í samhengi við útþenslustefnu
kínverska kommúnistaflokksins. Sér
hafi meðal annars verið líkt við Dr.
No, skúrkinn í fyrstu kvikmyndinni
um James Bond.
Huang segir að hann hafi glatað
þeim eldmóði sem hann hafi haft
gagnvart fjárfestingu á Íslandi og
einbeiti sér því meira að ljóðasköpun
sinni en greint er frá því í viðtalinu
að kveðskapur Huangs hafi unnið til
verðlauna og að hann sitji gjarnan á
skrifstofu sinni á kvöldin og yrki.
Beðið eftir fullri mætingu
Steingrímur segir að vinnufundur
verði haldinn í samstarfshópnum í
dag og sá fundur verði að öllum lík-
indum sá næstsíðasti miðað við
ganginn í málinu. „Það styttist í að
við förum að taka þetta saman,“ seg-
ir Steingrímur. „Við erum búin að
hitta flesta ef ekki alla beint og
óbeint og afla upplýsinga og ráðu-
neytin hafa verið að skoða þetta á
sínum forsendum.“
Nokkrir ráðherrar eru erlendis í
dag. Steingrímur segir að málið
verði ekki klárað frá nefndinni fyrr
en haldinn verði fundur sem allir
ráðherrarnir geti mætt á. „Það kom
ekki upp fyrr en um helgina að það
yrði ekki eins góð mæting og menn
höfðu vonað, en nefndin er skipuð
bæði ráðherrum og embættismönn-
um þannig að við höfum þennan
fund, en bíðum þá með það sem þarf
að taka fyrir þegar allir ráðherrar
geta mætt.“
Styttist í niðurstöðu nefndar
Huang Nubo ekki lengur „fullur eldmóðs“ gagnvart fjárfestingum á Íslandi
Samráðshópur ráðherra og ráðuneyta fundar í dag Næstsíðasti fundurinn
Huang
Nubo
Steingrímur J.
Sigfússon
Jón Bjarnason,
þingmaður og
oddviti Vinstri-
grænna í Norð-
vesturkjördæmi,
hefur ekki gefið
neina yfirlýsingu
um hvort hann
ætli að sækjast
eftir setu á listan-
um. Aðalfundur
kjördæmisráðs
VG í Norðvesturkjördæmi sam-
þykkti í gær að efna til póstkosn-
ingar um val á framboðslista flokks-
ins vegna kosninga næsta vor. Á
fundinum var ákveðið að efna til for-
vals meðal félagsmanna VG í kjör-
dæminu í samræmi við reglur
flokksins. Kosningunni á að ljúka 27.
janúar næstkomandi.
Enginn sem sótti aðalfundinn lýsti
yfir framboði á fundinum, en Lárus
Ástmar Hannesson, formaður kjör-
dæmisráðs, sagði í samtali við mbl.is
að tveir hefðu þegar lýst yfir fram-
boði, Lilja Rafney Magnúsdóttir al-
þingismaður og hann sjálfur.
Jón Bjarnason sagði í samtali við
mbl.is að þetta hefði ekki verið stað-
ur eða stund til að lýsa neinu yfir um
framboðsmál. egol@mbl.is
Óljóst
hvort Jón
fari fram
Jón
Bjarnason
Forkosningu VG
lýkur í janúar
Helgin var anna-
söm hjá lögregl-
unni á höfuðborg-
arsvæðinu og
mikið um útköll
vegna ölvunar og
óláta gesta á öld-
urhúsum mið-
borgarinnar, sér í
lagi í fyrrinótt.
Tvær líkams-
árásir voru til-
kynntar. Í öðru tilvikinu veittist
maður að dyravörðum og síðan lög-
reglumönnum, eftir að hann taldi
dyraverðina hafa litið eiginkonu sína
hýru auga.
Samkvæmi í Vesturbænum fór úr
böndunum í gærmorgun. Fimm
samkvæmisgestir í íbúð við Meist-
aravelli voru handteknir en við sögu
komu fíkniefni, vopnaburður og lík-
amsárásir.
Skömmu síðar var lögreglu til-
kynnt um ölvaðan mann sem reyndi
að komast inn í bíl á Laugavegi. Sást
hann kasta grjóti í gegnum hlið-
arrúðu bílsins og var handtekinn.
Mikill erill
hjá lögreglu
Lögreglan hafði í
nógu að snúast.
„Alls tóku 220 manns þátt í göng-
unni og var þátttakan framar vænt-
ingum,“ segir Jónatan Garðarsson,
en hann leiddi í gær hópgöngu til að
mótmæla áformum Vegagerð-
arinnar og meirihluta bæjarstjórnar
Garðabæjar um flutning hluta Álfta-
nesvegar. Samtökin Hraunavinir
efndu til göngunnar en gengið var
um svæðið þar sem áætlað er að
færa Álftanesveg til norðurs út í
Garðahraun. Margir þátttakenda
undirrituðu mótmælaskjal sem látið
var ganga milli manna. „Við höfum
einnig safnað undirskriftum á vefinn
alftanesvegur.is, en alls 3.500 manns
hafa skráð sig á listann. Ljóst er að
fólki finnst málstaðurinn verðugur,“
segir Jónatan. Að hans sögn eru fyr-
irætlanirnar meingallaðar. „Með
færslunni yrði vegur lagður gríð-
arlega langt úr í hraunið þannig að
það yrði hreinlega klofið í sundur.
Hraunið er mikil heild, þarna eru
klettar sem eru á meðal þeirra sem
Jóhannes Kjarval málaði. Þar að
auki er um að ræða náttúru- og úti-
vistarsvæði sem liggur mjög nærri
byggð og í því eru fólgin mikil verð-
mæti. Jafnframt eru þetta söguslóð-
ir, en embættismenn landsins lögðu
leið sína í gegnum hraunið til Bessa-
staða. Hraunið er auk þess leiksvæði
fyrir börn og hefur að geyma mikið
berjaland,“ segir Jónatan. „Við höf-
um rökstutt okkar afstöðu í málinu
og lagt til aðra lausn. Ekki hefur
verið tekið tillit til hennar og óljóst
er hvers vegna,“ segir hann.
gudrunsoley@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Vígreifur Jónatan Garðarsson hraunavinur, með hljóðnema, ávarpaði göngufólk við Gálgahraun í gær.
Fjölmennt í hraunagöngu
3.500 manns
hafa skráð sig á
undirskriftalista
Lilja Mósesdóttir
þingmaður hefur
sent Helga
Hjörvar, for-
manni efnahags-
og viðskipta-
nefndar, bréf þar
sem hún ítrekar
beiðni sína um
upplýsingar frá
Seðlabankanum
um skuldastöðu
þjóðarbúsins, í ljósi umræðu í
Morgunblaðinu í síðustu viku um að
bankinn hafi fram til þessa van-
metið hana. Að auki óskar hún eftir
að seðlabankastjóri komi fyrir
nefndina og útskýri „misskilning-
inn“ sem hann fullyrti í Silfri Egils í
gær að væri í umræðunni varðandi
skuldastöðu þjóðarbúsins.
Ítrekar beiðni sína
um upplýsingar
Lilja
Mósesdóttir
Eftir heldur blautan og kuldalegan fyrsta vetr-
ardag á laugardag létti víða til í gær og margir
nýttu tækifærið til útivistar. Hér er hjólreiða-
maður á fleygiferð eftir Sæbrautinni, framhjá
einu listaverkanna við göngu- og hjólreiðastíg-
inn við sjávarsíðuna.
Morgunblaðið/Eggert
Á fleygiferð eftir Sæbrautinni