Morgunblaðið - 29.10.2012, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012
ar
t&
co
nc
ep
t
>
z-
on
e
cr
ea
tiv
e
te
am
ph
ot
o
>
K
am
il
S
tru
dz
iń
sk
i
ISON Sìmi 588 2272
Fæst aðeins á hársnyrtistofum
fyrir hárið
Mjúkt, glansandi...
slétt eða krullað, aldrei aftur úfið.
> Inniheldur lífræna Argan olíu
frá Marocco
> Inniheldur hvorki
paraben né súlfat
> þyngir ekki hárið
Prófaðu þú finnur muninn.
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er
undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í
prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap.
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
OKTÓBER-
FEST
Verslunin Belladonna á Facebook
Ýmsar gerðir
af tunicum,
kjólum, skyrtum
og bolum á
30-50% afslætti
Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is
Boddýhlutir
Ljósmynd/Hjalti Árnason
Nemendur 10. bekkjar Árskóla á Sauðárkróki luku ár-
legu dansmaraþoni sínu á föstudag, undir dyggri leið-
sögn Loga Vígþórssonar danskennara. Maraþonið er
liður í söfnun fyrir útskriftarferð til Danmerkur næsta
vor. Áheitum var safnað meðal fyrirtækja og ein-
staklinga á Sauðárkróki. Eftir að hafa dansað í sólar-
hring tóku 10. bekkingar þátt í danssýningu í íþrótta-
húsinu með öllum nemendum Árskóla. Dagskránni
lauk svo að vanda með danssýningu 10. bekkinga, við
undirleik tónlistarmanna, ásamt matsölu til bæjarbúa.
Dansmaraþon og -sýning á Sauðárkróki
Árið 2010 var velta kvikmyndafram-
leiðslu á Íslandi um þrír milljarðar
króna og í ár stefnir hún í að verða
hátt í átta milljarðar, sem er nær
þreföldun á þremur árum. Lang-
mestur hluti þessarar veltuaukn-
ingar er til kominn vegna fram-
leiðslu á erlendum kvikmyndum.
Þetta kom m.a. fram á nýlegum
aðalfundi Sambands íslenskra kvik-
myndaframleiðenda, SÍK, þar sem
farið var yfir stöðu kvikmyndafram-
leiðslu hér á landi, auk hefðbundinna
aðalfundarstarfa. Kosin var ný
stjórn til tveggja ára og þau tímamót
urðu að konur mynda nú meirihluta
sjö manna stjórnar SÍK í fyrsta sinn.
Innan vébanda sambandsins eru 77
kvikmyndaframleiðslufyrirtæki,
stór og smá.
Í tilkynningu frá SÍK segir að fáar
atvinnugreinar á Íslandi séu í jafn
örum vexti. Auk kvikmyndafram-
leiðslu velti greinin að auki umtals-
verðu í sýningum, leigu og öðrum
tekjum. Þannig hafi komið fram í
bók dr. Ágústs Einarssonar að heild-
arvelta kvikmyndagreinarinnar á Ís-
landi árið 2010 hafi verið rúmir 10
milljarðar króna.
Kvikmyndagerðarmenn segja
ljóst að framleiðsla á íslenskum
verkum hafi átt undir högg að sækja
frá árinu 2010, þegar þriðjungs nið-
urskurður varð á framlögum í kvik-
myndasjóð. Árið 2010 voru frum-
sýndar níu íslenskar kvikmyndir en
á næsta ári verða þær 2-3 talsins.
Þrjár myndir fóru í tökur í ár.
Binda kvikmyndaframleiðendur
miklar vonir við að markmið fjárfest-
ingaáætlunar stjórnvalda rati að
fullu inn í fjárlög næsta árs með til-
heyrandi eflingu kvikmyndasjóðs.
Fimmfalda þurfi opinber framlög.
8 milljarðar í kvikmyndir
Kvikmyndagerðarmenn fóru yfir stöðu greinarinnar á
aðalfundi SÍK Hafa áhyggjur af minni íslenskri framleiðslu