Morgunblaðið - 29.10.2012, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Glaumur og gleði eru lykilorð næstu
vikna. Ef þú sýnir þolinmæði og heldur þetta
tímabil út áttu eftir að uppskera ríkulega.
20. apríl - 20. maí
Naut Gerðu það sem þú þarft til þess að gera
þig sýnilegri. Skemmtu þér vel. Haltu þig inn-
an þeirra marka sem þú ræður við.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér finnst þú eiga gott skilið fyrir
verk þín. Gættu þess hversu langt þú gengur
til þess að forðast leiðindi. Þér er alveg óhætt
að hafa meiri trú á samstarfsmönnum þínum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Engar hindranir geta haldið þér fjarri
þeim sem þér var ætlað að vera með. Borð-
aðu og njóttu lífsins eins og enginn sé morg-
undagurinn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú færð hugmynd að því hvernig mögu-
legt er að treysta fjárhagslega framtíð þína.
Slæmar aðstæður annarra verða hugmynd
að hjálparstarfi af þinni hálfu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Einhver óeirð er í þér í dag. Ef þú biður
um eitthvað og trúir að þú fáir það – þá verð-
ur það.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert viðkvæm/ur þessa dagana. Taktu
skilaboðum eins og vísbendingum sem gott
er að fara eftir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Líklegt er að einhver muni veita
þér aðstoð eða gefa þér gjöf í dag. Treystu á
eðlisávísun þína. Það er erfitt að vita hvað
hamingja er.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Mundu að þú þarft líka að hugsa
um sjálfa/n þig; annars hefur þú ekkert að
gefa öðrum. Þú átt auðvelt með samskipti,
nýttu þér það.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Til átaka getur komið milli þín og
fjölskyldumeðlims í dag. Og skemmtiatriði
sem þú sérð eru alls ekki á þeirri línu sem þú
kannt að meta. Reyndu að gefa þér tíma til
að lyfta þér upp.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það þarf ekki mikið til þess að ýta
undir köfnunartilfinningu eða að þér finnist
þrengt að þér núna. Þó að ástvinur hafi lifað
lengur en þú er ekki þar með sagt að hann
viti allt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Reyndu að horfast í augu við stað-
reyndir mála. Eitthvað innra með þér finnur
ekki taktinn. Þú færð heimboð sem á eftir að
breyta ýmsu hjá þér.
Ása Ketilsdóttir á Laugalandi viðÍsafjarðardjúp hringdi í mig í
vikunni í tilefni af því að ég hafði
fengið að gjöf bókina „Aldrei
gleymist Austurland“, ljóðasafn sem
Helgi Valtýsson tíndi upp „úr frjó-
um jarðvegi á Austurlandi“ og ég
nýtti mér í Vísnahorni. Hún rifjaði
upp, að þeir séra Friðrik A. Frið-
riksson og Karl Kristjánsson hefðu
séð um útgáfu á bókinni „Þingeysk
ljóð“ árið 1940 til styrktar sjúkra-
húsbyggingu á Húsavík. Í bókinni
koma fram 50 höfundar allir búsett-
ir í Þingeyjarsýslum. Vegna hins
takmarkaða rúms varð að hafna
ljóðum burtfluttra Þingeyinga.
Þetta rifjaði Ása upp og sagði að
karlarnir fyrir norðan hefðu verið
að spauga með að Helgi skyldi taka
með í ljóðasafn sitt ljóð alls staðar
að, líka frá Vestur-Íslendingum. Þar
tek ég sem dæmi Guttorm J. Gutt-
ormsson, sem fæddur var að Víði-
völlum í Nýja-Íslandi, en hann átti
að vísu til Austfirðinga að telja. Mér
þykir hann fremstur þeirra vestur-
íslensku skálda sem fædd eru vestra
og bullandi hagmæltur:
Miklum vanda er ég í
– orðinn fjandi mæðinn –
get ei andað út af því
að í mér standa kvæðin.
Ása fór með þessa stöku um
„Aldrei gleymist Austurland“ eftir
Egil Jónasson:
Á bókinni finna má flaustur
en furðu veldur þó mestri
að Austurland nær svo langt austur
að andlitin sjást í vestri.
Síðan fór hún með aðra vísu eftir
Egil:
Helgi röskan róður tók,
rýmka vildi Múlaþing,
veiddi hann á vísnakrók
vestur-heimskan Skagfirðing.
Tilefni seinni vísunnar er, að Hall-
ur Engilbert Magnússon var fæddur
á Sauðárkróki árið 1876. Hann flutt-
ist til Austfjarða fjögra ára og ólst
upp í Stakkahlíð í Loðmundarfirði.
Þeir Helgi Valtýsson voru ferming-
arbræður og ortu allmikið í bernsku
og æsku og fram að fermingu. Hall-
ur fluttist til Vesturheims 1904 og
gerðist byggingameistari og kaup-
maður í Seattle á Kyrrahafsströnd.
Þessi staka eftir Hall ber yfirskrift-
ina „Sigling lífsins“:
Þótt þú brjótir skip á skerjum,
skolist hrönn og týnir verjum,
mátt þú ekki láta linna
lífsþrá dýrstu vona þinna.
Og án fyrirsagnar:
Þér var löngum létt um vik
og laginn varstu, greyið,
en þú hefur ótal asnastrik
um ævi þína dregið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Munnleg geymd
eftir Jim Unger
„BORGAÐIR ÞÚ EKKI STÖÐ 2?“
HermannÍ klípu
„GERÐU ÞAÐ BARA. EN ÉG VARA ÞIG VIÐ,
ÞÚ VÆRIR AÐ SETJA MJÖG HÆTTULEGT
FORDÆMI.“
eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar bestu
minningarnar eru þær
sem þið eigið saman.
VERÖLDIN ER TIL, MÉR
TIL SKEMMTUNAR!
ÞAÐ ER LÍKLEGA
HLÉ NÚNA.
ÉG ÆTLA AÐ FARA OG BERJAST
VIÐ ATLA HÚNAKONUNG, OG HANS
BLÓÐÞYRSTA ÞÝ!
JÁ JÁ, FARÐU
BARA VARLEGA ...
... ÞETTA ERU EINU HREINU FÖTIN
SEM ÞÚ ÁTT TIL.
Verkið Bastarðar, sem sýningarhófust á í Borgarleikhúsinu á
laugardag, er ekki beinlínis hugguleg
lítil fjölskyldusaga. Ekkert er í lagi í
samskiptum auðmannsins Magnúsar
við börnin sín – eða reyndar nokkurn
mann, ef út í það er farið. Eins og
venjulega þegar Vesturport er á ferð
er nóg að gerast á sviðinu, ærin tæki-
færi fyrir fimleika og gnótt af vatni til
að sulla í og skvetta. Leikritið virðist
gerast á gróðursælli eyju, sem gæti
verið hvar sem er eða þá hvergi. Svið-
ið er nokkuð frumlegt með áhorf-
endur á alla vegu. Í gróðurþykkninu
er grind með þaki og athafna leik-
ararnir sig bæði undir því og ofan á.
Fyrir miðju sviðinu er síðan tjörn,
sem gegnir sínu hlutverki, þótt ekki
komist í leikskrá.
x x x
Fyrrnefndur Magnús er hið full-komna fól og gefur leikritið hon-
um engar málsbætur. Jóhann Sig-
urðsson skemmtir sér greinilega
konunglega við að túlka varmennið,
sem hefur unun af því að lítillækka
þá, sem næst honum standa, við hvert
tækifæri. Umhyggja kemst hvergi
fyrir hjá þeim ágæta manni, en
mannfyrirlitning og mannvonska eru
þeim mun fyrirferðarmeiri.
x x x
Nína Dögg Filippusdóttir er einnigaðsópsmikil í hlutverki tálkvend-
isins, sem hyggst giftast Magnúsi,
gefur sig alla í hlutverk konunnar,
sem hyggst nota aðdráttarafl sitt til
að komast alla leið í lífinu. Þá getur
Víkverji ekki sleppt því að nefna
Hilmi Snæ Guðnason, sem með ein-
stökum hætti nær að gæða einn af
sonum Magnúsar lífi. Hann fer með
einræður sínar af slíkri list að unun er
að fylgjast með.
x x x
Bastarðar eru metnaðarfullt verk-efni, samstarf milli Borgarleik-
hússins, Vesturports, þjóðleikhússins
í Malmö og Får302 í Kaupmanna-
höfn. Verkið var sýnt á Listsahátíð í
fyrra og var síðan sýnt í Kaupmanna-
höfn og Malmö. Nú er þessi verð-
launaða sýning komin aftur heim og
var Víkverji nokkuð sleginn eftir
kvöldstund í návist þessarar lítt geðs-
legu fjölskyldu. víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er nálægur þeim sem hafa
sundurmarið hjarta, hann hjálpar
þeim sem hafa sundurkraminn anda.
(Sálmarnir 34:19)
Thermowave plötuvarmaskiptar
Þýsk hágæða vara á hagkvæmu verði
Eimsvalar fyrir sjó og vatn
Olíukælar fyrir sjó og vatn
Í mjólkuriðnað gerilsneiðingu
Fyrir orku iðnaðinn
Glycol lausnir fyrir byggingar og
sjávarútveg í breiðu stærðar úrvali
Títan–laser soðnir fyrir
erfiðar aðstæður svo sem
sjó/Ammoníak
Kælismiðjan Frost – leiðandi afl í kæliiðnaði
www.frost.is