Morgunblaðið - 31.10.2012, Síða 1
„Það er ekki
vantraust milli
Alþingis og Rík-
isendurskoðunar
fyrr en Alþingi
lýsir því yfir að
svo sé. Enginn
þingmaður eða
þingmenn, jafn-
vel þótt þeir
gegni mikilvægu
hlutverki í eft-
irliti þingsins með framkvæmda-
valdinu, getur talað fyrir Alþingi í
þessum efnum,“ segir Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir, forseti Al-
þingis, í tilefni af nýrri skýrslu
ríkisendurskoðunar um fjárhags-
og mannauðskerfið Orra.
Nokkrir þingmenn hafa gagn-
rýnt ríkisendurskoðanda harðlega
vegna skýrslugerðarinnar. »14
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
Aðeins Alþingis að
lýsa yfir vantrausti
M I Ð V I K U D A G U R 3 1. O K T Ó B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 255. tölublað 100. árgangur
www.kaupumgull.is
Græddu
á gulli
Kringlunni 3.
hæð í dag frá kl.
11.00 til 18.00.
Loka dagurinn.
Upplýsingar og tímapantanir:
Sverrir s. 661-7000
ÞROSKAÐRA VERK
OG RÖKRÉTT
FRAMHALD
ROKK AF
GAMLA
SKÓLANUM
TOLLI OG ÓÐURINN
TIL FRIÐAR OG
FEGURÐAR
THEE ATTACKS 40 30 ÁR FRÁ FYRSTU SÝNINGUNNI 10ÖNNUR BREIÐSKÍFA BORKO 41
Slökkviliðsmenn í New York þurftu að fást við a.m.k. 23 elds-
voða eftir að fellibylurinn Sandy hóf að herja á borgina af
fullum krafti í fyrrinótt. Mesta tjónið varð í Breezy-Point í
Queens-hverfi borgarinnar en þar urðu um 80 heimili eldi að
bráð. Meira en 190 slökkviliðsmenn börðust við eldinn en hinn
gríðarlegi vindstyrkur Sandy varð til þess að logarnir bárust
hratt á milli húsa og við lítið varð ráðið. Sjór hafði víða flætt
um götur hverfisins og því urðu slökkviliðsmenn stundum að
fara á milli húsa í bátum. Í einu tilviki björguðu þeir 25 manns
sem komust ekki út úr brennandi fjölbýlishúsi með því að
flytja fólkið þaðan á bát. Á myndinni sjást íbúar í hverfinu í
rústum húsa sem sum brunnu algjörlega til grunna.
Eftir eldhafið blasti eyðileggingin við íbúunum
AFP
Þrátt fyrir endurskipulagningu
skulda eru mörg fyrirtæki í „brot-
hættri stöðu“. Þetta er mat Ingólfs
Bender, forstöðumanns greiningar-
deildar Íslandsbanka, sem telur
heimilin einnig í viðkvæmri stöðu.
Tæplega 800 fyrirtæki urðu
gjaldþrota á fyrstu níu mánuðum
þessa árs. Það er yfir meðalári. »12
Mörg fyrirtæki í
„brothættri stöðu“
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Að minnsta kosti fjörutíu eru látnir og
nokkurra er enn saknað eftir að felli-
bylurinn Sandy gekk á land á austur-
strönd Bandaríkjanna aðfaranótt
þriðjudags. Fárviðrið olli gríðarlegu
tjóni í New York, New Jersey og víð-
ar og sagði ríkisstjóri New York-ríkis
að ekki væri of sterkt til orða tekið að
nota orð á borð við „hamfarir“ eða
„sögulegur“ um fellibylinn.
Sjávarborð við austurströndina
hækkaði um meira en fjóra metra og
flæddi sjór niður í neðanjarðarlestar-
kerfi New York-borgar og yfir stóra
hluta neðri Manhattan. Þremur
kjarnorkuverum var lokað í varúðar-
skyni, tveimur í New York og einu í
New Jersey.
Alls voru 8,5 milljónir manna án
rafmagns í 15 ríkjum í gær og voru
7.400 heimavarnarliðar kallaðir út til
að aðstoða við björgunarstörf í 11
ríkjum. Flóð og vindar voru ekki eina
hættan sem steðjaði að fólki en í Vest-
ur-Virginíu sló stórhríð út rafmagn,
þar snjóaði mikið og vindurinn reif
upp tré. Í Norður-Karólínu var neyð-
arástandi lýst yfir í 24 sýslum vegna
ofankomunnar.
„Stormurinn er enn ekki genginn
yfir,“ sagði Barack Obama Banda-
ríkjaforseti þegar hann heimsótti höf-
uðstöðvar Rauða krossins í Wash-
ington í gær en sérfræðingar vöruðu
við því að áfram myndi flæða með-
fram þéttbyggðri strandlengjunni.
MHamfarirnar »2, 18, 19 og 20
Tugir látnir og
New York lömuð
Fellibylurinn Sandy veldur gríðarlegu tjóni Ekki búið
AFP
Hjálp Margir urðu að yfirgefa heim-
ili sín vegna flóða í New Jersey.
40
manns a.m.k. hafa týnt lífi
vegna hamfaranna á austurströnd
Bandaríkjanna.
8,5 milljónir
heimila eru án rafmagns. Þar búa
um 7% bandarísku þjóðarinnar.
20 milljarðar
Bandaríkjadala er eignatjónið sem
Sandy er talinn hafa valdið. Það
jafngildir 2.500 milljörðum króna.
‹ SLÓÐ EYÐILEGGINGAR ›
»
Um 370 manns munu búa á Bygg-
garðasvæðinu miðað við deiliskipu-
lagstillögu sem bæjarstjórn Sel-
tjarnarness hefur samþykkt til
auglýsingar. Þar með mun Seltirn-
ingum, sem eru um 4.300 nú, fjölga
um 8,5%.
Einnig á að reisa fjölbýlishús
með 33 íbúðum á Hrólfsskálamel og
ef gert er ráð fyrir að yfirleitt séu
a.m.k. tveir í hverri íbúð mun Sel-
tirningum fjölga um 10% þegar
flutt hefur verið inn í húsin. »6
Seltirningum mun
fjölga um 10%